Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 16.12.1976, Qupperneq 24

Dagblaðið - 16.12.1976, Qupperneq 24
Alit Kristjáns Péturssonar og yfirsakadómara í Reykjavík: Á kvörðun saksóknara tefur rannsóknina hinsvegar ylli dráttur á svona rannsókn enn meiri óþægind- um og sárindum meðal nánustu ættingja sakborninga en þyrfti. — nöfn háttsettra embættis manna tengiast málinu Þaö er álit bæöi Kristjáns Péturssonar. deildarstjóra, og Halldórs Þorbjörnssonar, yf- irsakadómara í Reykjavík að það muni tefja fyrir rannsókn mála Guðbjarts Pálssonar, leigubílstjóra, að færa rann- sóknina frá þeim stað þar sem frumrannsókn fór fram, til ann- ars umdæmi þar sem byrja þarf að rannsaka málið frá grunni að nýju. Eins og fram kom í DB í gær vildi varasaksóknari ekki full- yrða um gang mála ef bæjar- fógeti í Keflavík hefði ekki sent málið frá sér. En skv. völdum saksóknara hefði hann eins get- að sent málið aftur til Keflavík- ur til framhaldsrannsóknar, eins og.til Sakadóms Reykjavík- ur. Þá má ætla að það flýti sízt fyrir að fá þá Kristján og Hauk ekki til samstarfs við Sakadóm Reykjavíkur, þar sem þeir hafa eytt fleiri mánuðum í undir- búningsrannsóknir. 1 DB í gær segist yfirsakadómari ekki bú- ast við að svo verði gert. I viðtali við blaðið sagðist, Kristján telja það skyldu sína' ef um veröur beðið, að vinna með sakadómi að þessari rann- sókn til að flýta henni þar sem það væri mikilvægt af tveim ástæðum m.a.: Annars vegar gæti óeðlileg töf valdið því að ákveðin sakargögn spilltust og Er hann var spurður hvort nöfn háttsettra embættismanna tengdust málinu á einhvern hátt, hvað hann já við og sama væri að segja um nöfn kunnra manna úr lögmannastétt og við- skiptalífinu. Þá var hann spurður hvort einhverjir eða einhver hinna nefndu væru eða væri í röðum æðstu stjórnmálamanna þjóðar- innar. Sagðist Kristján ekkert um það vilja segja enda ekki haft tækifæri ti! að rannsaka málið til hlftar, en framhalds- rannsókn málsins leiddi væntanlega hið sanna í ljós í því tilviki. Þess má geta að í viðtali við DB í gær sagði Kristján að ástæða væri til að rannsaka pólitísk afskipti af dómsmeðferð tiltekinna mála, m.a. þessa máls. —G.S. Það ber margt fyrir sjónir á götum Reykjavikur eins og þessi mynd ber með sér. Hvort vekur meiri athygli. bíllinn á toppnum eða furðutækið sem er hálft á götu og hálft á gang- stétt. skal ósagt látið. En furðu- tækið varð orsök þessa óhapps. Bilnum var ekið á vinstra aft- urhorn furðutækisins. sem er skorðað við Ijósastaurinn. Bíll- inn kastaðist síðan út á götuna og stöðvaðist á nefi og toppi. Kona ók bílnum og i aftursæti var litið barn.Barnið fé.kkskurð á enni en konan reyndist ómeidd að kalla. Furðutækið er heimasmíðaður bíll. sex hjóla. enn óyfirbyggður og Volkswag- en vél. óvarin, í afturenda. Atburðurinn varð í Langagerði um kl. 11 í gærmorgun og Ijós- m.vndari DB Sveinn Þormóðs- son var ekki langt undan—ASt. REYKJAVÍK frjálst, úháð daghlað FIMMTUDAGUR 16. DES1 19761 Brunavarnir efidar í Borgarnesi Junion Chamber í Borgarnesi hefur ákveðið að gangast fyrir auknum eldvörnum í heimabyggð sinni. Hyggjast þeir heimsækja alla íbúa staðarins og öll fyrirtæki og bjóða bæði slökkvitæki og revkskynjaratilkaups á hagstæðu verði og með góðum kjörum. Hreppsnefnd Borarness hefur ákveðið að greiða einhvern hluta eldvarnartækjanna, en ekki hefur endanlega verið ákveðjð hver upphæðin verður. Félagsmenn í Junior Chamber heimsækja Borgnesinga um næstu helgi. Föstudaginn 17. des. gangast Junior-félagarnir fyrir borgara- fundi þar sem útskýrð verður meðferð tækjanna. sýnd verða brunavarnartæki og myndir frá ýmsum eldsvoðum. Leiðbeinandi á fundinum verður Ástvaldur Eiriksson slökkviliðsmaður á Keflavíkurflugvelli. Einnig verður sýnd notkun slökkvi- tækjanna og fólki gefinn kostur á að reyna þau. Þá verður gefið út blað með greinum og upplýsingum um eld- varnir. Einnig verður gefinn út hand- hægur bæklingur með leið- beiningum um hvað gera skal ef eldur verður laus. I Borgarnesi er nú einn slökkvi- bíll og stendur til mjög bráðlega að annar slökkvibíll komi á staðinn.Annast slökkviliðið í Borgarnesi brunavarnir í Borgar- nesi og nærsveitum. Junior Chamber var stofnað í Borgar- nesi í marz 1974 og eru félags- menn þrjhtíu og sex talsins. For- seti er Theódór Kristjánsson.-A.Bj Hættulegum flugeldum stolið Fjöldi skipaflugelda af öflugustu gerð er nú í hönd- um einhverra hafnfirzkra unglinga eða drengja. Var flugeldum þessum stolið úr vélbátnum Sjóla sem er í skipasmíðastöðinni til við- gerðar. Þeir sem að verki hafa verið brutu sér leið að flug- eldunum með látum og til- heyrandi skemmdum. Flug- eldunum var öllum stolið en prikin, sem nota verður við flugeldaskotin voru skilin eftir. Öttast lögreglan að séu þarna ungir drengir að verki geti priklausir flugeldarnir verið hættulegir í höndum þeirra. Ættu foreldrar að hafa gát á leikjum barna sinna. —ASt. Djúpivogur: - FRYSTIHUSBYGGINGIN ER STOPP VEGNA VANSKILA FISKVEIÐASJÓÐS en 20 íbúðarhús einstaklinga og hreppsins eru í smíðum „Hér á Djúpavogi er alger- lega snjólaust og tíð hefur verið sérstaklega góð, enda bjargaði það fólki hér almennt, er raf- stöðin brann, að veður var stillt og 4-5 stiga hiti,“ sagði Sigurður Ananíasson, hótel- stjóri og fréttaritari DB á Djúpavogi. „Þrátt fyrir það héldust sumir illa við í sínum húsum sökum kulda og leituðu þá á náðir þeirra, sem búa við gamla lagið og eru ekki háðir rafmagni með upphitun." Sigurður sagði að þrír bátar frá Djúpavogi væru við rækjuveiðar inni á Berufirði og hefur þeim gengið mjög vel. Rækjan er unnin á Djúpavogi. Tók rækjuvinnslan við af síld- arsöltuninni í haust en þá voru saltaðar 5000 tunnur. Rjúpnaveiði hefur verið frek- ar dræm ennþá en talsvert hefur veiðzt af svartfugli úti á firði. Hreppurinn er með tvi) íbúðarhús i byggingu og verða þau fokheld i vetur. Miklar framkvæmdir voru á döfinni hjá hreppnum í sumar, m.a. malbikun gatna, lagnir í nýjar götur svo eitthvað sé nefnt. Átján ný hús eru í byggingu og er það talsvert á ekki stærri stað, sagði Sigurður og talar sínu máíi um trú fólksins á staðnum. I haust var tekin í notkun ný 540 fermetra álma við skóla staðarins en þar var 300 fermetra bygging fyrir. Er það stór og mikil bót því skólahús- næði vanlaði tilfinuanlega. , Hér vantar hd/.t aukið félags líf. Þao parf endilega að drífa upp veglegt félagsheimili á staðnum, því i samkomuhúsinu sem fyrir er, er ekki aðstaða til bíó- eða leiksýninga." Fiskveiðar hafa verið lélegar það sem af er vetri Flugunesið, sem er tæplega 100 tonna bátur og hefur verið á togveiðum. kom inn um daginn með 3 tonn af fiski og einn hákarl. Sagði skiptjórinn, annar útgerðar- mannanna, að hesta- og rollu- búskapur úterðarmannanna hefði bjargað því að útgerðin færi ekki a nausinn. Mana- tindur heitir veglegasta fiski- skip staðarins (áður Sigurður Bjarnason). Hann er nú í slipp en hefur veioar eftir áramót. Mikið hraðfrystihús er í b.vggingu en framkvæmdir eru nú stöðvaðar, þar sem Fisk- veiðasjóður héfur ei staðið vio sínar greiðslur til þessa. Er það nijög bagalegt. Húsið er orðið fokhelt og skortir þvi ekki nema lokaátakið. Með nýju frvstihúsi í stað eða við hlið hins gamla horfa Djúpavogs- búar bjartsýnir til framtíðar- innar. -ASt.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.