Dagblaðið - 21.12.1976, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1976.
=1 Laxness og Alistair
I MacLean soluhæstir
Laxness og Alistair MacLean
virðast ætla að slá öll sölumet í
jólabókaflóðinu í ár og virðist
tvísýnt hvor hefur vinninginn,
skv. könnun sem DB gerði í
þrem bókabúðum í gær.
I bókaverzlun Braga sagði
Regína Bragadóttir að Laxness
væri í sérflokki hvað íslenzkar
bækur snerti, en bók hans nú
heitir Ungur ég var. Þá nefndi
hún bókina um Ölaf á Oddhóli,
í samantekt Dags Þorleifssonar.
Stiklað á stóru um sr. Gunnai
Benediktsson, Líf og lífsviðhorf
eftir sr. Jón Auðuns og Formað-
ur í friði og stríði, eftir Jóhann-
es Helga. Þessar bækur eru all-
ar á verðbilinu 3,500 til 4,500.
Af erlendum bókum nefndi
nún fyrst Sirkus eftir Alistair
MacLean, SS foringjann eftir
Svend Hazel, Hamingju hennar
eftir Theresu Charles,
Poseidon slysið eftir Paul
Gallico og Fram í rauðan dauð-
ann eftir Douglas Deeman.
Þessar bækur eru á verðbilinu
2,400 til 3,00.kr.
Jónas í bókaverzlun Jónasar
Eggertssonar taldi bók Laxness
einnig fyrst upp, þá bækur
prestanna Jóns Auðuns og
Gunnars Benediktssonar, þá 30.
marz 1949 i samantekt Páls
Heiðars Jónssonar og Baldurs
Guðlaugssonar, Húsfreyjuna á
Sandi eftir Þórodd Guðmunds-
son, Ölaf á Oddhóli og bók
Jóhannesar Helga.
Fleiri bækur vildi hann telja
upp í sambandi við bækur í
sérflokki hvað sölu snerti, og
ekki vildi hann gera upp á milli
þeirra, sem hann taldi, nema
hvað Laxness væri söluhæstur.
Af erlendu bókunum taldi
hann fyrst Sirkus, Til móts við
hættuna eftir Hammond Innes,
SS foringjann, Teflt á tæpasta
vað eftir Lyall og Hamingju
hennar.
Ragnheiður Lárusdóttir í
bókabúð Lárusar Blöndal tók
strax fram að barnabókinni
Helgi skoðar heiminn eftir
Njörð P. Njarðvík með mynd-
skreytingum Halldórs Péturs-
sonar, væri mjög vel tekið.
Laxness er í sérflokki þar
eins og annars staðar, þá Ólafur
á Oddhóli, bók sr. Jóns Auðuns,
Skrafað við skemmtilegt fólk
eftir Guðmund Daníelsson og
ljóðabókin Ljóðmæli Olínu og
Herdísar.
Af erlendum bókum taldi
hún fyrst Sirkus, þá Luis og
Clark, SS foringjann, Upp á lif
og dauða eftir Francis Clifford
og siðan bætti hún við bókun-
um Engir karlmenn takk, eftir
Sigge Stark og Örninn er sestur
eftir Jack Higgings.
Bóksalar þessir virtust nokk-
uð sammála um að salan I ár
ætlaði ekki að verða lakari en I
fyrra, hún hefði farið fremur
hægt af stað en tekið vel við sér
síðustu daga. -G.S.
Flugáhafnirnar úr
pílagrímaf lutningunum:
Koma
væntanlega
heim
fyrir jól
„Við vonum að það takist að
koma flugfólkinu heim fyrir jól,
en síðasta flug frá Luxemburg er
á Þorláksmessu," sagði Sveinn
Sæmundsson, blaðafulltrúi Flug-
leiða, I viðtali við DB.
„Pílagrímaflugiriu milli Jedda
og Kano lauk sl. sunnudag en þá
var beðið um fjögur aukaflug
milli Jedda og Lagos. Byrjað var á
þeim í morgun og þeim’ verður
lokið á miðvikudag. Búið er að
biðja um yfirflugsheimild
þannig'að þoturnar fara báðar frá
Nigeríu aðfaranótt Þorláksmessu
og koma til Luxemburg klukkan
átta um morguninn.
Það eru milli áttatíu og níutíu
manns sem hér er um að ræða.
Pílagrímaflugið hófst 1. nóv-
ember og lauk fyrri önninni 22.
nóv. Þá höfðu verið fluttir 7200
pílagrímar i þrjátíu og tveimur
ferðum. Þá var hlé þar til 5. des.,
en þá hófst heimflugið með píla-
grímana. Var frekar rólegt í byrj-
un en seinni dagana hefur verið
alveg stanzlaus törn.“
—Er þetta svipuð tala farþega
og samið var um flutninga á?
„Nei, þetta eru heldur færri
farþegar en samið var um en við
búumst við því að greitt verði
fyrir þá tölu sem upphaflega var
samið um.“
—Hvernig gekk þetta flug?
„Það gekk alveg prýðilega að
öllu leyti nema hvað veðrið var
ekki alltaf upp á það bezta,“ sagði
Sveinn Sæmundsson.
I pílagrímafluginu voru notað-
ar tvær Flugleiðaþotur sem flogið
var af Loftleiðaáhöfnurfr, TF-FLA
og TF-FLB. Þær fara nú báðar í
skoðun í Luxemburg og að henni
lokinni hefja þær aftpr'áætlunar-
flug hjá Loftleiðum'^NjjOftleiðir
leigðu sér þotur til þess að nota í
áætlunarílugi slnu á'xmeðan á
þessu stóð.
A.Bj.
Jólasveinarnir
komnir austanfjalls
Nú eru jólasveinarnir komnir
til byggða austanfjalls. A sunnu-
daginn komu þeir akandi til
Hveragerðis á dráttarvél. Kváðust
þeir koma beint ofan úr fjöllum.
Aftan á vennni þeirra var vagn
hlaðinn jólatrjám og innan um
trén voru pokar fullir af eplum.
Þeir óku um allt þorpið og af-
hentu fólki tré og gáfu börnum
epli. Að vnnum vakti heimsökn
þessara prúðu sveina mikla at-
h.vgli ullra, einkum þó þeirra
.vngri.
BP/EVI
NY SENDING
og vegglömpum — sérstaklega
af kristalsljósakrónum
GLÆSILEGT
ÚRVAL
Einnig margar gerðir raðljósa
(grúppulýsinga)
•
Norsku silkiskermarnir, fjölbreytt
úrval í mörgum litum
P0STSENDUM
UM LAND ALLT
LANDSINS MESTA
LAMPAURVAL
U0S & 0RKA
Suðurlandsbraut 12 — Sími 84488