Dagblaðið - 21.12.1976, Side 23

Dagblaðið - 21.12.1976, Side 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 21. DESEMBER 1976. 9 Utvarp 23 Sjónvarp í) x Stiklað á stóru í jóladagskrá útvarpsins Það ríkti regluleg „stemmning" hjá leikurunum og Þorsteini Hannessyni, þegar gert var hlé á upptöku á ára- mótaskaupi útvarpsins á dögunum. Þarna eru frá hægri: Nína Sveinsdóttir, Arni Tryggvason, Bessi Bjarnason og Róbert Arnfinnsson. Það er engu líkara en Þorsteinn sé: að stjórna söng í leikhléi. DB-mynd Bjarnleifur. ,—, BÓKA- OG RITFANGAVERZLUN ARNARVAL ARNARBAKKA 2 - BREIÐHOLTI Bækur — Ritföng - Leikföng — Ljósmyndavörur — Jólaskraut Montemario Handsaumaðar ítalskar karlmannamokkasíur úr leðri Sérlega mjúkar og vandaðar Reimaðar og óreimaðar. S Lltir: Brúnt. svart. ryðrautt. J Verð: kr. 7.550.- Skór í sérstökum gœðaflokki jj X/.Sy.sU.sJ. lauöavegi 69 sirrn 168bU Miðbsjarmarkadi — simi 19494 Það er nú jafnan svo að fðlk bíður þess með meiri eftirvænt- ingu að fá upplýsirigar um jóla- dagskrá sjónvarps en útvarps. Það staf-'r trúlega af því að fólk treystiralmennt útvarpinu bet- ur til þess að koma ekki á óvart. — minni líkur séu á því að útvarpsdagskráin valdi von- brigðum. En til eru þeir, sem ekki hafa tækifæri til þess að horfa á hátíðadagskrá sjónvarpsins og hlusta eingöngu á útvarp. Verð- ur hér stiklað á stóru í útvarps- dagskránni. eins og hún liggur fyrir í dag. 'A Þorláksmessu er að jafnaði b.vrjað að lesa jólakveðjur til fólks og svo er einnig að þessu sinni. Hefst lestur jólakveðj- anna kl. 15.00 og stendur þá i klukkutíma, milli fastra dag- skrárliða. Eftir fréttirnar kl. 19.40 leikur Sinfóníuhljómsveit íslands undir stjórn Páls P. Pálssonar jólalög í útsetningu Arna Björnssonar. Um kl. 20.00 verður lestri jólakveðjanna haldið áfram og aðeins gert hlé á meðan lesnar eru veðurfréttir og fréttir. Á aðfangadag klukkan 10.30 sér Kristín Sveinbjörnsdóttir um öskalög sjúkiinga ásamt Jónasi Jónassyni. Kl. 13.15 lesa jólasögur og jólaljóð og lýkur dagskránni með útvarpi frá jólaguðsþjónustu í sjónvarpssal. A jóladag hefst dagskráin kl. 10.40 með klukknuhringingu og síðan leikur Litla lúðrasveitin jólalög. Klukkan 13.00 er þáttur í umsjá Kristínar Mantylá um jólahald í Finnlandi og leikin finnsk jólalög. Klukkan 15.00 er á dagskrá þáttur er nefnist Höfðingi á upplýsingaöld, myndir úr ævi Magnúsar Stephensen í Viðey á tveggja alda afmæli hans. Vilhjálmur Þ. Gíslason fyrrum útvarps- stjóri sér um þáttinn. Var hann áður á dagskrá í desember 1962. Vandað er til barnatím- ans sem verður kl. 16.15 og er stjórnandinn Guðrún Ásmunds- dóttir. Sr. Hjalti Guðmundsson ræðir við börnin, Armann Kr. Einarsson og Þórhallur Sigurðsson segja sögur. jóla- sveinn kemur í heimsókn. Telpnakór Melaskólans syngur undir sljórn Magnúsar Péturs- sonar sem einnig er hljómsveit- arstjóri. A jóladagskvöld skiptast á talmálsliðir og tónlist. Björn Þorsteinsson prófessor tekur saman þátt um jólagjafir Nú er tekið við jólakveðjum í andd.vri ríkisútvarpsins við Skúlagötu. Það er Sigríður Margrét Njálsdóttir sem tekur Margrét Guðmundsdóttir og Sigrún Sigurðardóttir jóla- kveðjur til sjómanna á hafi úti. Að þeim loknum leikur Sinfóníuhljómsveit íslands jólalög undir stjórn Jóns Þórar- inssonar. Að því loknu er at- hyglisverður þáttur á dag- skránni, en þá ræðir Kári Jónasson fréttamaður við Ingi- björgu Indriðadóttur húsfreyju á Höfðabrekku í Kelduhverfi. Segir Ingibjörg frá hamagang- inum sem þar varð í fyrra um jólin er jarðskjálftinn varð þar. Kl. 16.15, að loknum lestri veðurfregna, verða á dag- skránni jólakveðjur til islenzkra barna og sér Gunnvör Braga um tímann. Lesnar verða kveðjur frá börnum á Norður- löndunum og Herdís Egilsdóti- ir les jólasögu. Utvarpið verður frá aftan- söng í Dómkirkjunni og er það séra Iljalti Guðmundsson sem predikar. A aðfangadagskvöld verður mikið af jolatonlist og lesnat á móti þeim. Jólakveðjulestur- inn kentur manni í jólaskap á Þorláksmessu. DB-mynd Bjarnleifur. Kristjáns þriðja til Islendinga. Þá er dagskrá um huldufólk og álfa í samantekt Sólveigar Halldórsdóttur og Viðars Eggertssonar. Sr. Jón Thorarensen segir frá jólasið- um fyrr og nú. Útvarpað verður frá tónleik- um Félags Isl. einsöngvara i Háteigskirkju 5 þ.m.. Halldór Haraldsson leikur einleik á píanó og einnig verða erlendir tónleikar á dagskránni um kvöldið. A.Bj. Laus staöa Staða einkaritara við lögreglu- stjóraembættid er laus til umsóknar. Umsækjandi þarf að hafa góða æfingu í vélritun og gott vald á íslenzku. Laun samkvæmt launakerfi starfs- manna ríkisins. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf, sendist embættinu fyrir 5. janúar nk. Lögreglustjórinn í Reykjavík. 16. desember 1976. PELSARIURVALI Hlý og falleg jólagjöf sem vermir. Ath. Góðir greiðsluskilmálar. Njálsgötu 14 Sími 20160.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.