Dagblaðið - 27.12.1976, Qupperneq 4
DAGBLAÐIÐ MANUDAGUR 27. DESEMBER 1976.
Friðsæl jól hjá lögreglunni
Vmsir góðir lesendur Dagbiaðsins brugðu skjótt við, þegar þeir lásu um afnám jólaglaðningsins til lögregluvaktanna, sem vinna
um jólin, og sendu ýmisiegt góðgæti. Frá Njarðarbakaríi komu til dæmis þessar forlátatertur. Tvær þeirra voru raunar búnar. En hér
er hluti af vakt Páls Eirikssonar (hann er þriðji frá vinstri) að fá sérgómsætan bita á jólanótt.
Þessi bifreið var í jóiapóstin-
um til lögreglunnar. Það er rétt
hjá Óskari litla, svona fer fyrir
ýmsum sem flýta sér of
hratt.(DB-myndir Sv. Þorm.)
,,Við hjá lögreglunni áttum
ákaflega friðsæl jól að þessu
sinni og ef ekki hefði komið til
bruninn - á Hverfisgötunni,
hefði engan skugga borið þar
á,“ sagði Páir Elríksson aðál-
varðstjóri í samtali við Dagblað-
fð í gær.
Að sögn Páls gistu tveir
fangageymslurnar á jólanótt,
— í fyrra voru þeir fimm. — Þá
var ekkert um að lögreglan
væri kvödd í heimahús til að
stilla til friðar. Sömu sögu kvað
Páll hafa gilt um jóladaginn.
AUs staðar nefði ríkt friður og
sþekt og borgararnir verið
sjálfum sér til sóma.
Sömu sögu var að segja frá
þeim lögreglustöðvum víða um
landið, sem Dagblaðið hafði
samband við i gær.
-AT-
JÓLATÓNLEIKAR
í SELFOSSKIRKJU
Samkór Selfoss hefur að und-
anförnu æft jólasöngva sem
hann mun flytja í Selfosskirkju
dagana 27. og 30. des. nk.
Stjórnandi kórsins er dr. Hall-
grímur Helgason og undirleik
annast Glúmur Gylfason. Kór-
inn hefur starfað í fjögur ár og
er þetta í 3ja sinn sem hann
heldur jólatónleika. Formaður
kórsins er frú Sigríður Þor-
geirsdóttir. -KE-
Kvennakór Suðumesja heldur tvenná tónleika
Kvennakór Suðurnesja heldur
jólatónleika i Keflavikurkirkju og
Bústaðakirkju í Reykjavík á milli
hátíðanna.
Annað kvöld syngur kórinn í
Keflavíkurkirkju, kl. 20.30 og á
fimmtudagskvöld, 30. desember, í
Bústaðakirkju, einnig klukkan
20.30.
Kórnum til aðstoðar eru
strengjahljóðfæraleikarar úr
Tónlistarskóla Keflavíkur. Ragn-
heiður Skúladóttir leikur á píanó.
Tveir strengjaleikaranna,
Unnur Pálsdóttir og Kjartan Már
Kjartansson, leika saman á fiðlur.
Kórinn syngur erlend og inn-
lend lög undir stjórn Herberts H.
Agústssonar, sem lengi hefur
stjórnað kórnum, en Guðrún As-
björnsdóttir hefur verið radd-
þjálfari í vetur.
-ÖV.
Kvennakór Suðurnesja ásamt nemendum úr Tónlistarskóla Keflavíkur á æfingu skömmu fyrir jól.
Jólahappdrættin:
Margur ríkari en hann hyggur
,,Margur er ríkari en hann
hyggur" á víst við um margan
manninn núna að nýafstaðinni
jólahátíð. A það ekki aðeins við
um þann gjafafjölda sem flestir
hafa fengið, því í mörgum
happdrættum var dregið núna
rétt fyrir hátíðarnar og bíða
margir glæsilegir vinningar
eigenda sinna.
Hjá happdrætti Krabba-
meinsfélagsins var dregið 24.
desember sl. Dregið var um
þrjá veglega vinninga, 1 bifreið
og 2 vélsleða. Þeir heppnu eru
eigendur miða nr. 70729, sem
bifreiðin Audi 100 LS kom upp
á, og svo nr. 84802 og 87346 sem
hreppa vélsleða. Verða þetta að
teljast veglegar jólagjafir.
Fleiri voru með happdrætti í
gangi en Krabbameinsfélagið.
Styrktarfélag vangefinna dró
út 6 bifreiðar, en númerin voru
innsigluð og verða birt i fjöl-
miðlum á morgun 28. desemb-
er. I happdrætti Sjálfsbjargar
voru dregnir út 100 vinningar.
þeirra veglegastur bifreið,
Ford Granada, en vinninga-'
skráin verður ekki birt fyrr en
eftir áramót.
Eflaust eru það mun fleiri
félög eða samtök sém efndu til
happdrættis fyrir jólin, og bíða
margir spenntir eftir að sjá
hvort lánið hefur leikið við þá
að þessu sinni. En þó svo sé
ekki, hafa þeir þó a.m.k. styrkt
gott málefni.
JB
Útafkeyrsla við Grafarholt:
Flaug langar leiðir á
grindverki við veginn
Stór amerískur fólksbíll fór út
af veginum í beygjunni við Graf-
arholt á Þorláksmessu. Flughálka
var á veginum og lenti bíllinn
uppi á grindverki við veginn. sem
á að varna þvi að bílar lendi langt
úti í móa ef ökumenn ntissa stjórn
á þeim.
Að sögn lögreglunnar barst bíll-
inn nokkuð langt á grindverkinu
og endaði síðan með því að lenda
út af, en með hjólin hangandi
uppi á grindverkinu. Talsverðar
skemmdir urðu á undirvagni bíls-
ins. en húsið sjálft var óskemmt.
— Engan í bílnum sakaði i þessari
útafkeyrslu.
-AT-