Dagblaðið - 27.12.1976, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 27.12.1976, Blaðsíða 5
DACBLAÐIÐ MANUDAGUR 27. DKSKMBKR 1976. Wöruskiptajöfnuðurinn mun skárri en í fyrra Vöruskipta.jöfnuðurinn við útlönd er ekki nærri eins óhag- stæður og hann var í fyrra. Hann var óhagstæður unt tæpa sjö milljarða króna f.vrstu ellefu mánuðina í ár en óhag- stæður um hátt i tuttugu og fjóra milljarða á sama tíma í fyrra. Utflutningur nam alls rúm- um 67 milljörðum en innflutn- ingur rúmum 74 milljörðum. t fyrra nam útflutningur á þess- um tíma rúmum 42 milljörðum en innflutningur rúmum 66 milljörðum. Við samanburðinn verður að hafa í huga, að gengi krónunn- ar hefur lækkað talsvert milli áranna. Meðalgengi erlends gjaldeyris nú í nóvember er tal- ið vera tólf af hundraði hærra en það var í nóvember í fyrra, og meðalgengi erlends gjald- eyris mánuðina janúar- nóvember er talið 13,4 prósent- um hærra en það var á sama tíma í fyrra. Miklu betri stöðu veldur aukning á útflutningi áls, sem hefur numið 11,7 milljörðum fyrstu ellefu mánuðina í ár en nam um 4,6 milljörðum á sama tíma í fyrra. Innflutningur til álfélagsins hefur einnig minnkað um sem næst milljarð. Þá hefur 2,4 milljörðum minna verið varið til innflutn- ingsskipa. -HH ■\ ✓ Hljóðlát athöfn á leiði látinna ástvina: Þúsundir kerta loguðu í stilltu veðri Fiskistofnarnir betri en físki- fræðingamir ætla — segir aflamaðurinn Eggert Gíslason ,,Að mínum dómi er útlitið ekki eins dökkt og haldið er fram af lærðum mönnum og leikum. A flakki mínu á sjón- um, vítt og breitt kringum land- ið, hef ég re.vnt að skoða hlut- ina, fylgjast með, og ég trúi því ekki að þorskstofninn sé eins hrjáður og mikið veður hefur verið gert út af.“ Þetta segir hinn kunni afla- maður Eggert Gíslason í viðtali við tímaritið Faxa, sem birtist í jölablaði þess. Hann segir, að vaxandi sildarstofn, kolmunni og spærlingur eigi eftir að skapa okkur geysilega mikil verðmæti á næstu árum. ,,Við ættum ekki að þurfa að kvíða á islandi með allt gullið i sjónum við strendur landsins. Við þurf- um ekki að bæta við neinum stóriðjum til að lil'a göðu lífi á hólmanum, heldur nýta betur sjávarfangið,“ segir Eggert. ,,Eg vil rökstyðja þetta atriði svolítið nánar. Við þurfum ekki að fara mörg ár aftur i tímann. Þá þekktist ekki að nýta loðnu nema til beitu í litlum mæli, humar, rækju, karfa, kol- munna, spærling og skötusel. Þorskur og ýsa var það eina, sem m'enn kölluðu fisk. Sumar tegundirnar nýtum við í dag, en aðrar eru í sjónmáli. Fiskistofn- arnir eru ekki eins slæmir og fiskifræðingarnir ætla. Ýsu- stofninn er injög vaxandi, en um þorskstofnann vil ég ekkert full.vrða eða um deila. Að mín- um dömi er útlitið ekki eins dökkt og haldið fram af lærðum mönnum og leikum...," segir Kggert (’.íslason, -IIII Eggerl (líslason Ljúfsárar minningar um látna ástvini leita á hugann um jólin. Þúsundir manna lögðu grenigreinar á leiði í kirkjugörðum og fjöldi kertaljósa var tendraður. Var það fögur sjón að sjá þau loga í stilltu veðri dagana fyrir og um jólin. Mæðgur, sem ljósmyndari Dagblaðsins hitti í Fossvogskirkjugarð- inum á aðfangadag, veittu honum góðfúslega leyfi til þess að taka mynd, þegar þær tendruðu sitt litla ljós á leiði feðganna Jóns G. Ölafssonar, forstjóra, sem andaðist mjög fyrir aldur fram árið 1962, og Ólafs G. Jónssonar, sonar hans, sem andaðist 19 ára að aldri árið 1975. Hljóðlát, óbrotin athöfn lýsir því kristlega hugarþeli, sem er í samræmi við boðskap jólanna, og gefur þeim mest gildi þegar grannt er skoðað. Þess má og geta, að kirkjusókn var með afbrigðum góð um allt land, svo sem frarn kemurí fréttum blaðsins af jólahald- inu. BS Lausar stöður Verðlagsstjóri óskar eftir starfsmönnum til eftirtalinna starfa. 1. Símavörslu og fleira. 2. Yfirfara verðútreikninga og fieira. 3. Almennra eftirlitsstarfa, nauðsynlegt er að við- komandi starfsmaður hafi bifreið til umráða. Upplýsingar um störfin veitir skrif- stofustjóri. Umsóknum, ásamt upplýs- ingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist Verðlagsskrifstofunni. Verðlagsstjórinn. ”Flugeldar----------------- Sólir — Gos — Blys Stjörnuljós — Bengaleldspýtur Fjölskyldupokar 7 teg. Flugeldamarkaðurinn Háteigsvegi 20 — Laugavegi 42 (Frakkastígsmegin) Skodabúðin verður lokuð frá þriðjudeginum 28.12.76 til áramóta vegna vörutalningar Tékkneska bifreiðaumboðið hf. Auðbrekku 4446 Kóp.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.