Dagblaðið - 27.12.1976, Blaðsíða 6
6
DAGBLAÐIÐ MANUDAGUR 27. DESEMBER 1976.
Lífíd gekk
sinn gang
um jolm
Fréttir jólanna báru þess glögg merki, að
þrátt fyrir jólin gekk lífið áfram sinn vana-
gang. Okkur bárust fréttir af hörmungum og
áhyggjum víðs vegar að úr heiminum, og óvissu
um hvað komandi ár, 1977, beri í skauti sér
fyrir heim umvafinn stjórnmála- og efnahags-
legum vandamálum.
Að minnsta kosti 55 manns fór-
ust í flugslysi í Thailandi, þar sem
egypzk farþegaflugvél fórst.
Flestir hinna látnu voru Egyptar.
Og á Rauðahafinu leituðu
björgunarsveitir að ekki færri en
tuttugu og fimm pílagrímum, sem
menn álitu að hefðu komizt lífs af
þegar eldur kom upp í skipi
þeirra svo það sökk á skömmum
tíma. Skipið var skráð í Egypta-
landi.
En í Líbanon, þar sem vopnahlé
hefur nú verið í gildi í fjörutíu
daga, héldu kristnir menn jól í
friði eftir nítján mánaða grimmd-
arlega borgarastyrjöld. t hópi
hinna bjartsýnu var húsmóðir í
Beirút sem sagði: „Það er eins og
lífið sé að byrja á ný.“
I Evrópu miðri þyrptust ætt-
ingjar og vinir þúsundum saman
skir hermenn viðbúnir hugsan-
legum aðgerðum arabiskra
skæruliða.
Annars staðar í ísrael var
stjórnmálaástandið ofarlega í
hugum manna eftir afsögn
Yitzhaks Rabins forsætisráðherra
skömmu fyrir jól. Kosningar
verða í ísrael eftir fjóra mánuði.
Rom: Þúsundir pílagríma
flykktust til Péturstorgsins í Róm
til að heyra Pál VI. páfa hvetja
mannkynið til að virða mann-
gildishugsjónir kristninnar. Þetta
var árlegt ávarp páfa til heims-
byggðarinnar og virtist hann ald-
urhniginn og veikbyggður.
Madríd: Skugga bar á jólin
vegna háværrar umræðu um
handtöku kommúnistaleiðtogans
Jól voru víða haldin í Sovétríkjunum, þótt ekki væri það með
þátttöku stjórnvalda. Meðal þess sem hressilégast er i jólaundirbún-
ingi íbúanna í Cherepovets í Vogoda-héraði, er að baða sig i vök í
isnum. Sá gamli með skeggið, sem heldur í jóiatréð, er ekki jólaveinn.
á milli Austur- og Vestur-
Þýzkalands til að vera saman á
jólum. Jólin voru fjölbreytileg og
yfirleitt friðsamleg. Undir niðri
var þó víða spenna.
Santiagos Carriios og nýleg
pólitisk mannrán, sem einnig
hafa orðið til að setja svip sinn á
iausn Spánar úr viðjum Franco-
tímans.
Betlehem: Fornir söngvar
Fransisku-munkanna og sálma-
söngur kóra frá mörgum löndum
setti mark sitt á jólahaldið 1 fæð-
ingarborg Krists. Talið er að
aldrei hafi fleiri verið viðstaddir
jólahátiðina í Betlehem. Mióaust-
urlandaspennan var þó ekki langt
undan; í bakstrætum voru ísrael-
Beirút: t höfuðborg
Lfbanons var jólum heilsað með
riffilskotum. I þetta skipti þó
ekki á milli bræðra, heldur upp í
loftið i virðingarskyni vegna fæð-
ingar Krists. Glitrandi jólatré og
söngur prestanna var alger and-
stæða jólanna i fyrra, þegar fjöldi
fólks var veginn og borgin nötraði
af skothriðinni.
'm
Jólamarkaður i Beirút, höfuðborg Líbanon, þar sem jólahátiðin fór fram i
fremst á myndinni var hinn ánægðasti með leikföngin og jólatréð, sem stendur I
friðsemd. Sölumaðurinn
tunnu fyrir aftan hann.
Moskva: Af opinberri hálfu
voru engin jól í Sovétríkjunum.
Fjölmiðlar skýrðu frá því að á
Vesturlöndum væri fólk of hlaðið
áhyggjum vegna efnahagshörm-
unganna til að geta haldið jól. t
blaði einu í Moskvu var birt mynd
af bandarískri konu með tvö börn
sín. Blaðið sagði að konunni hefði
verið hent út úr íbúð sinni með
börnin á aðfangadagskvöld þar
sem hún hefði ekki staðið í skil-
um með leiguna.
Buenos Aires: Að minnsta
kosti fjórar herforingjastjórnir
(eða stjórnir sem herinn styður) í
Suður-Ameríku slökuðu örlitið á
stefnu sinni gagnvart stjórnmála-
föngum þegar jólin nálguðust og
létu nokkra lausa. Bæði í Chile og
Lima í Perú var útgöngubann á
kvöldin og setti það svip sinn á
hátíðahöldin.
Sameinuðu þjóðirnar:
Embættismenn og fulltrúar hjá
Sameinuðu þjóðunum í New York
flúðu margir stórborgina til að
njóta sumars og sólar sunnar í
álfunni. Meðal þeirra var Kurt
Waldheim, framkvæmdastjóri,
sem orðinn er þreyttur eftir erf
iða fundi í samfellt þrjá mánuði.
Þeir hefjast á ný skömmu eftir
áramót.
Budapest: Leiðtogar
kommúnistaflokksins og stjórnar-
innar skoruðu á þjóðina um helg-
ina að leggja meira 'að sér við
vinnu og sýna ýtrasta sparnað til
að leysa þá efnahagsörðugleika,
sem við Ungverjum blasa.
SeOUl: Rúmlega þrjú þúsund
pólitískir fangar voru látnir laus-
ir í Suður-Kóreu í tilefni jólanna.
Meðal þeirra voru 287 fangar,
sem enn hafa ekki náð iögaldri.
Nýja-Sjóland: Mikii fióð i
vikunni fyrir jólin settu sinn svip
á hátíðahöldin í höfuðborginni
Wellington og nágrenni hennar.
Mikill fjöldi manna missti heimili
sín í flóðunum og margir aðrir
eiga um sárt að binda. En jól voru
haldin og reynt að gera það bezta
fyrir alla.
Ástralía: Frá Sydney bárust
þær fréttir að jólin væru haldin á
hefðbundinn hátt, en landsmenn
væru þó órólegir undir niðri
vegna óvissunnar um stöðu efna-
nagsmálanna. Þeir hafa ekki enn,
að sögn„fylliiega áttað sig á gildi
aógerða á borð við 17,5% gengis-
lækkun gagnvart dollar nýlega.
og kvíða árinu 1977.
London: Elizabeth Englands-
drottning fór lofsamlegum orðum
um Friðarþreyfingu kvenna á
Norður-Irlandi í jólaávarpi sínu
til þjóðarinnar. Friðarhreyfing-
una stofnuðu tvær konur á blóð-
ugum götum Belfast fyrir þremur
mánuðum.
Brezka ríkisútvarpið (BBC)
Santiago Carriilo, leiðtogi
spánskra kommúnista, hefur nú
verið tekinn fastur og verður
leiddur fyrir rétt, enda afþakkaði
hann boð um útlegð. Carrillo er
orðinn heimavanur i fangelsum
Spánar.
Bensín á bíiinn er orðið svo dýrt á
Ítalíu. segir í texta með þessari
mynd frá Róm. að það er gefið i
jólagjöf. Jólasveinninn er heidur
torkennilegur. — með arabiskan
túrban í stað jólasveinshúfunnar.
beindi útsendingu sinni til norð-
anverðrar Eþiópíu. Ung stúlka las
orðsendingu til skæruliða þar,
sem halda systur hennar, mági og
tveimur börnum f gíslingu, og
grátbað þá að láta fangana lausa
um jólin.
Salt Lake City: Gary Gilmore,
morðinginn dauðadæmdi, sem á
að deyja 17. janúar, eyddi síðustu
jólum sínum í einangrunarklefa.
Gilmore, sem óskað hefur eftir
því að fá að „deyja eins og mað-
ur“ í refsingarskyni fyrir morð,
fékk hefðbundinn amerískan
jólamat í klefann sinn.
PoriS: Lögreglan var önnum
kafih um helgina við að leita að
dularfullum morðingja fyrrum
ráðherra, Jean de Groglie prins,
sem skotinn var til bana á götu í
París á aðfangadagskvöld.
Gleðilegra var að iðrandi þjófur
skilaði vörum að verðmæti 1,5
millj. kr„ sem hann hafði stolið úr
kjörbúð fyrir tveimur mánuðum.
Það kostaði þjófinn 4500 krónur
að skila vörunum f pósti.