Dagblaðið - 27.12.1976, Qupperneq 9
DACBLAÐIÐ MANUDAGUR 27. DKSKMBKR 1976.
„Olían um það bil tvö ár að
berast hingað til lands”
— segir Svend Aage Malmberg
haffræðingur
9
Þær fréttir berast nú frá
Massachusetts í Bandaríkjun-.
um, að hætta sé á, að olían, sem
fór í sjóinn, er olíuskipið Argo
Merchant strandaði, lendi í
Golfstraumnum og berist til
stranda Evrópu og þar með Is-
lands. Alls fóru um 28,5
milljónir lítra af olíu í sjóinn er
skipið brotnaði og þekur olíu-
brákin nú um 4800 ferkíló-
metra svæði úti fyrir strönd
Bandaríkjanna.
Dagblaðið hafði í gærkvöld
samband við Svend Aage Malm-
berg haffræðing og bað hann að
segja sitt álit á hættunni á að
oiían bærist hingað til lands.
,,Ég held nú að við megum
ekki vera of svartsýnir á hætt-
una af þessari olíu,“ sagði
Svend Aage. „Hún er um það
bil tvö ár að berast hingað til
lands. Samkvæmt hlutfalls-
reikningi fáum við hér ekki
nema um 3/60 af því vatns-
rnagni, sem leggur af stað frá
upptökum Golfstraumsins við
Florídasund, hingað til lands.
„Hitt er svo á að líta,“ sagði
Svend Aage Malmberg enn-
fremur, ,,að vitaskuld hafa
vindáttir töluverð áhrif á dæm-
ið. En þrátt fyrir það, hygg ég
að við verðum ekki í bráðri
hættu á næstunni.
„Hins vegar er sjálfsagt fyrir
okkur haffræðingana að fylgj-
ast með málinu frá byrjun og
sjá hverju fram vindur," sagði
Svend Aage Malmberg að lok-
um. -AT-
Liberíska olíuskipið Argo Merchant brotnaði aðfaranótt 23. des-
ember og streymdi þá öll olian úr þvf. Grunur leikur á að skipinu
hafi verið strandað með vilja.
r *
Flugf reyjur / Flugþjónar
Annríki prestanna um jólin:
FJOLDISKIRNA, GIFTINGA
r
OG JOLAMESSA — kirkjusókn yfirleitt mjög góð
Ungir sem gamlir sóttu jólamessurnar. Hér er fólk að koma til
messu í Bústaðakirkju í Reykjavik (DB-mynd Sveinn Þormððsson).
felli hefur stórt umráðasvæði til
að sinna yfir jólin. Auk þess sem
hann messar að Mosfelli, þá held-
ur hann helgistundir og guðsþjón-
ustur að Lágafelli, Víðinesi,
Reykjalundi og víðar.
„Við byrjuðum jólahaldið á
Þorláksmessu, þegar ég hafði
helgistund fyrir vistmenn í Víði-
nesi. A aðfangadag var síðan
messað í nýjum samkomusal að
Reykjalundi og síðar um kvöldið í
Lágáfellskirkju, en þar var mjög
fjölsótt. Þar söng m.a. ein kona úr
sveitinni einsöng, Nanna Egils
A jóladag var messað að Mos-
felli og þar var einnig margt um
manninn og eins á annan dag jóla,
þegar að fjögur börn voru skírð í
Lágafellskirkju. Ein giftingarat-
höfn fór fram þann sama dag, en
mikið var um slíkar athafnir fyrir
hátíðarnar. Allt hefur þetta farið
fram með miklum sóma og hinn
mesti hátíðablær verið yfir öllu,“
sagði séra Birgir. Auk þess sem
hér hefur verið nefnt hélt hann
barnasamkomu tileinkaða jólun-
um 19. desember, hafði helgi-
stund með vistmönnum í Skála-
túni þann 18. þ.m. og fleira.
Sýnir þetta glöggt að ekki geta
allir tekið jólunum með sömu ró-
seminni og mörg eru störfin sem
sinna þarf þessa daga.
JB
Flugleiðir h.f., v/Loftleiða h.f. œtla fró og
með maímónuði 1977 að róða allmargar
nýjar flugfreyjur og flugþjóna til starfa. í
sambandi við vœntanlegar umsóknir skal
eftirfarandi tekið fram:
1. Umsækjendur séu á aidrinum 20—26 ára. Þeir hafi
góða almenna menntun, gott vald á ensku og öðru
erlendu tungumáli, helst þýsku, frönsku eða Norður-
landamáli.
2. Umsækjendur séu reiðubúnir að sækja kvöldnám-
skeið í febrúar/marz n k. (3—4) vikur og ganga undir
hæfnispróf að því loknu.
3. A umsóknareyðublöðum sé þess greinilega getið
hvort viðkomandi sæki um starfið til lengri eða
skemmri tíma.
4. Umsóknir um endurráðningu flugfreyja, sem áður
hafa starfað hjá Loftleiðuin h.f„ skulu hafa borist
starfsmannahaldi fyrir 31. þ.m.
5. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannahaldi félags-
ins fyrir 31. þ.m.
Þó að flestir Islendingar geti
notið þess að slappa af og hvíla sig
á jólahátíðinni. þá er þó ein stétt
manna sem á mjög annríkt þessa
daga, en það eru prestarnir.
Fyrir utan hin „venjulegu"
störf. þ.e.a.s. messuhald um jóla-
dagana, þá eru aukaverkefnin
mörg svo sem skírnar- og
giftingarathafnir, því margir vilja
nota hátíðina til slíkra hluta. Til
marks um annríki klerkanna, má
geta þess að af þeim tíu prestum
sem DB reyndi að r.á sambandi
við í gær, náðist aðeins í þrjá og
fer smáspjall við þá hér á eftir.
Sérstaklega
hótíðleg jól
„Fólk hefur verið mjög kirkju-
rækið hér í Vestmannaeyjum um
þessi jól og guðsþjónusturnar ver-
ið sérstaklega hátíðlegar, sagði
séra Þorsteinn Lúter Jónsson í
samtali við DB. „Á aðfangadags-
kvöld voru tvær messur, önnur kl.
18.00 og hin kl. 23.30. Einnig var
messað á jóladag og annan dag
jóla. 13 börn voru skírð um hátíð-
arnar og tvö ungmenni notuðu
þessa daga til að ganga í heilagt
hjónaband. Mikil aðsókn var í
kirkjurnar og hátiðabragurinn
einstakur. Söngkór Landakirkju
skilaði hlutverki sínu sérlega vel
og lagði sitt af mörkum til að gefa
mönnum gleðileg jól.“ Séra Þor-
steinn er nú að kveðja Vestmann-
eyinga eftir 15 ára lánsama þjón-
ustu og flytur kveðjumessu sína á
nýársdag.
Nýtt form ó
aftansöngnum
„Báðar messurnar, bæði á að-
fangadag og jóladag, voru mjög
vel sóttar og allt var með miklum
hátíðarblæ," sagði séra Emil
Björnsson, prestur í kirkju Óháða
safnaðarins. Við tókum upp nokk-
uð nýtt form á messunni á að-
fangadag. Ræðan var samsett úr
nokkrum jólakvæðum, sem ég hef
sjálfur samið, en inn á milli léku
þeir Jónas Þ. Dagbjartsson, fiðlu-
leikari og Jón tsleifsson, organ-
isti, jólasálma. Má því segja að um
sannkallaðan aftansöng hafi verið
að ræða. Ai' öðrum prestsverkum
má nefna að tvö börn voru skírð á
jóladag."
Séra Emil hefur prestsstarfið
sem tómstundaáhugamál, því
hann starfar sem fréttastjöri hjá
Sjónvarpinu. A jöladagsmorgun
fór hann að heimsækja sjúkt fólk
sem liggur á sjúkrahúsunum og
FLUGLEIÐIR HF.
elliheimilum, bæði safnaðarfólk
sitt og annað. Er þetta fastur liður
í jólahaldinu að fara og minnast
þessa fólks á jólunum.
Hefur í mörg
horn að líta
Séra Birgir Ásgeirsson á Mos-
Það var fullt út úr dyrum af prúðbúnu fólki eins og myndin sýnir.
Koma þyrfti fýrir lausum stólum i anddyri þannig að allir gætu látið
fara vel um sig.