Dagblaðið - 23.02.1977, Síða 1
3. ARG. — MIÐVIKLDAGUR 23. FEBRÚAR 1977 — 45. TBL. RITSTJÓRN SlÐUMÚLA 12, sr,MI 83322. AUGLÝSINGAR OG AFGKEIÖSLA, ÞVERHOLTI 2, SÍMI 2702*2.
Bjórtillaga Jóns Sólness á
erfítt uppdráttar óbreytt
Getur þjóðaratkvæðagreiðsla ein leyst margra ára bjórþrætur
— Sjábaksíðu
Ný rannsdkn íSakadómi:
Meðferð Kristjáns á
skjölum Guðbjarts
Meint óheimil meðferð
Kristjáns Péturssonar,
fulltrúa í tollgæzlunni á
Keflavíkurflugvelli, á gögnum
þeim er hann tók með vitund og
samþykki Guðbjarts Pálssonar
á heimili hans, er nú rannsökuð
i Sakadómi Reykjavíkur.
Lögmaður Guðbjarts, Tómas
Gunnarsson, ritaði ríkissak-
sóknara erindi út af meðferð
þessara gagna. Öskaði hann
rannsóknar á þvihvortKristján
hefði haft ljósrit af þeim eftir
að þau voru afhent Sakadómi
Reykjavíkur. Var talin ástæða
til að kanna hvort Kristján
hefði notað þessi gögn >
heimildarleysi í umræðu _
opinberum vettvangi.
Ríkissaksóknari óskaði eftir
rannsókn Sakadóms Reykja-
víkur á þessum atriðum. Erla
Jónsdóttir, fulltrúi yfirsaka-
dómara, hefur haft rannsókn
þessa með höndum. Hefur
Kristján Pétursson skýrt frá
því fyrir dómi að hann hafi
brennt ljósritum þeim er hann
lét gera af skjölum Guðbjartar
á sínum tíma.
Handtökumál Karls Guð-
munssonar er en rannsakað.
Ekki hefur tekizt að finna
stúlkurnar tvær sem þeir Karl
og Guðbjartur halda stöðugt
fram að hafi verið í bílnum með
þeim er Keflavíkurlögreglan'
handtók þá í Vogum á Vatns-
leysuströnd. Hefur stúlknanna
mjög verið leitað. Tvisvar hafa
verið kvaddar til sakbendingar
nokkrar stúlkur. Ekki hefur sú
viðleitni borið árangur i þá átt,
að stúlkurnar finnist.
Dagblaðinu er kunnugt upt
að stöðugt er unnið í málinu
undir stjórn skipaðs
setudómara, Steingríms Gauts
Kristjánssonar. -'BS.
Hrannastsönnunargögn
gegn læknum upp hjá
landlækni? — bis.8
Bessi Bjarnason um tóbaksauglýsingarnar:
Ríkið er söluaðilinn
hefði ekki gert þetta vitandi um afleiðingarnar
,,Eg er ríkisstarfsmaður og
eins og flestir ríkisstarfsmenn
þarf ég einhverja aukavinnu,
auglýsingarnar eru mitt auka-
starf og svo má benda á að ríkið
sjálft er söluaðili sígarettna
hér,‘‘ sagði Bessi Bjarnason,
leikari. Var hann spurður hvort
hann væri þess meðvitandi að
hann væri hátt skrifaður í
röðum yngstu borgaranna eins
og annarra.
Sagðist hannekki geta metið
það.en hinsvegar hefði hann
aldrei tekið þátt í þessari
auglýsingu ef hann hefði gert
sér nokkra grein fyrir hvaða
fjaðrafok hún myndi gera.
Hann sagðist t.d. auglýsa
bækur án þess að hafa lesið
þær, hann léki róna, konunga,
refi og fursta í leikhúsinu og að
sjálfsögðu tæki hann þátt í
auglýsingu gegn reykingum
væri þess óskað. Sagðist hann
reyndar undrast að andreyking-
amenn hefðu ekki talað við sig
um það, fyrst þeir væru svo
vissir um áhrifamátt hans nú.
-G.S.
bls.9
I undralandi Bláf jallanna
Það var ævintýri líkast að
sjá alla litadýrðina á fötum
skíðafólksins uppi í Bláfjölluin
í gær. Þar voru milli fimmtán
og tuttugu stórir rútubílar. sem
flutt höfðu skólakrakka upp-
eftir. Það vorú ekki aðeins
skólakrakkar úr Reykjavík
heldur einnig úr Hafnarfirði og
Keflavik. Löng biðröð var við
skíðalyftuna, sem flutti skíða-
mennina upp snarbratta
hliðina og um leið og garparnir
voru komnir niður, fóru þeir
óðara aftur i biðröðina við lyft-
una. Veðrið var stórfínt, dálítið
kalt á illa klæddum blaða-
mönnumn, en skíðafólkið virt-
ist ekki finna fyrir kulda. En
margur er líklega illa haldinn
af harðsperrum í dag, eftir
þennan fyrsta dag skólaskíða-
ferða.
DI5-mynd Bjarnleifur A.Bj.
i
i