Dagblaðið - 23.02.1977, Síða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. FEBRÚAR 1977.
9
\
Börn íÆfingaskóla KHÍvegna nýrra sígarettuauglýsinga með Bessa:
Öll börn á
íslandi líta
upp til þín
—við hörmum að þú skulir hafa látið hafa þig út í þetta
„Herra Bessi Bjarnason. Við
skorum á þig að rifta öllum samn-
ingum við sígarettuumboð það
sem birtir mynd af þér með sígar-
ettu. Þar sem öll börn á íslandi
líta upp til þín þá veldur þaó
okkur miklum áhyggjum að þú
skyldir láta hafa þig út í þessa
vitlevsu. Virðingarfyllst, A. B og;
C deildir 6. bekkjar Æfinga- og
tilraunaskóla Kennaraháskóla ís-
lands.“
Þetta bréf afhentu krakkarnir
Bessa í fyrradag og röbbúðu við
hann urn málið. Létu þeir ekkiþar
við sitja heldur fóru í fjölda verzl-
ana sem hengt höfðu þessar aug-
lýsingamyndir upp og fengu þær
teknar niður. Þá stendur til að
þeir ^ái að fara i Tónabæ á næst-
unni og rabba þar við gesti um
skaðsemi reykinga. Fleiri aðgerð-
ir munu vera á döfinni þar.
Reykingar meðal 12 ára barna
munu vera mjög fátíðar í fyrr-
nefndum skóla og er blaðinu með
vissu kunnugt um heilan bekk
þar sem enginn reykir. Undanfar-
in ár hefur þaó hins vegar færzt í
vöxt að svo ungir krakkar reyki,
jafnvel að staðaldri.
-G.S.
Þetta er plakatið af Bessa sem skólabörnum, og raunar fjöldamörgum
öðrum, líkar ekki ails kostar við.—
VICEROY
VlCfRW
, i Wm
j pfp
1 fcll
I jEy|
1 Ír,i|
|H
Kjörbúðin Laugarás líkist um þessar mundir fremur tóbaksbúð en matvælabúð. Gluggar verzlunarinnar
eru að mestu þaktir sígarettuaugiýsingum og þegar inn í verzlunina kemur er hvorki meira né minna en
stór auglýsingabás fyrir sígarettur. Eigandinn hefur nú unnið þriðju utanlandsferðina frá sigarettuinn-
flytjendum fyrir góðar augiýsingar. DB-mynd Hörður.
Eskifjörður:
Já, harðf iskur er sælgæti
Hlutafélagið Sæberg hf. á Eski-
firði er alltaf að færa út kvíarnar.
Síðastliðið haust keypti það fisk-
verkunarhús Bóasar Emilssonar,
400 fermetra að stærð, og verkar
nú hertan bitafisk, ýsu, sem er
afar mikið sælgæti.
Sex manns vinna að staðaldri
við harðfiskinn en verkstjóri er
Kristján Bjarnason. Eigendur Sæ-
bergs hf. keyptu bátinn Sæberg
fyrir 5H ári og hefur útgerðin
gengið vel. Sæberg er nú á loðnu
og hefur fengið 2500 tonn.
Eigendur Sæbergs hf. eru hinir
happasælu skipstjórar Aðalsteinn
Valdimarsson og Garðar Eðvalds-
son og konur þeirra Dagmar Ösk-
arsdóttir og Elínborg Þorsteins-
dóttir.
Regína.
Þrætti blóðugur fyrir innbrotið
í gærkvöldi var brotizt inn í
húsakynni Myndlista- og hand-
íðaskólans á horni Skipholts og.
Stórholts. Heyrðust þaðan brot-
hljóð úr porti og fór lögreglan inn
í húsið með aðstoð kennara
skólans. Þar inni fannst ölvaður
maður blóðugur á hendi en rúðu
hafði hann rutt úr vegi til að
komast inn.
Maðurinn brást hinn versti við
Lœriö skyndihjálp
RAUÐIKROSSÍSLANDS
truflun lögreglunnar og þrætti
fyrir innbrot. Hann fékk gistingu
hjá lögreglunni.Engin spjöllhafði
hann unnið inni í skólahúsinu.
-ASt.
Munið alþjóMegt
hjálparstarf
RauAa krossins.
RAUOI KROSSfSLANDS
Staða
viðskiptafræðings
í atvinnurekstrardeild Skattstofu
Reykjavíkur er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 15. marz nk.
Skattstjórinn í Reykjavík.
GÓLFTEPPI
fyrir
—stigahús—skrifstof ur
AXMINSTER
Grensásvegi 8 — Sími 30676