Dagblaðið - 03.03.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977_ 5
„Tækið verður að nota —
annars erum við í klípu”
— rætt við starfsmenn álversins um afstöðu yfirmanna, mengun, öryggismál o.fl.
Skálarnir hriplekir og henta ekki fslenzkri veðráttu.
„Þetta lýsir sér með sleni og
þreytu, einkum á milli vakta,“
segir Sigurður Jón Ólafsson
starfsmaður álversins í
Straumsvík er DB leitaði álits
starfsmanna þar vegna
mengunarhættu, öryggisráð-
stafana og ástands almennt á
verksmiðjusvæðinu. „Þó ekki
séu gerðar rannsóknir á heilsu
manna hvað þessu viðvíkur er
þetta augljóst, auk þess sem
maður þekkir þetta af eigin
raun,“ en Sigurður hefur
starfað u.þ.b. 5 ár í Straumsvík.
„Asmi og bronkítis hefur gert
mjög vart við sig og maður
hefur horft á félaga sína
engjast sundur og saman af
hósta og öðrum öndunarfæra-
kvillum, stundum jafnvel kasta
upp blóði. t slikum tilfellum
hafa menn verið fluttir á aðra
deild eða annan stað innan
svæðisins. í mesta lagi hafa
menn fengið nokkufra daga
hvíld frá störfum.“
— Hafa yíirmenn í álverinu
ekki sýnt þessum málum skiln-
ing?
„Verkstjórarnir eru notaðir
sem f^ins konar svipur á verka-
menmna af mönnum á æðri
stöðum. Þrýstingur á verkstjór-
ana af hálfu yfirboðaranna
setur hagsmuni fyrirtækisins í
fyrsta sæti en líf og limi starfs-
manna þar á eftir.“
„Það leiðir hugann að
öryggismálunum sem þrátt
fyrir fagrar yfirlýsingar og
loforð út á við eru í mesta
ólestri," segir Guðmundur Þor-
steinsson sem einnig starfar við
álverið. „Sem dæmi um það
vann ég á stóru lyftitæki sem
var orðið mjög illa farið og lé-
legt. Er ég varð var við stóra
sprungu í lyftigálganum og sá
að hann gat látið undan hinum
gífurlega þunga hvenær sem
var, neitaði ég að vinna á tæk-
inu. Ég var beinlínis að stefna
lífi fjölda manna í hættu með
því -að lyfta fleiri tonna þunga
með ónýtri vél. Starfsbræður
mínir voru þessu sammála en
verkstjörarnir skömmuðu
okkur og sögðu: „Tækið verður
að nota, annars erum við í
klípu". Mér var hótað brott-
rekstri ef ég héldi ekki áfram á
tækinu og þetta endaði með
sameiginlegum fundi starfs-
manna og yfirmanna. Við vitn-
uðum í öryggisákvæðin en það
vildu verkstjórarnir og fulltrú-
arnir ekki hlusta á. Einn verk-
stjórinn hafði sagt að ef dauðs-
fall yrði af þessum völdum væri
það á sína ábyrgð en ekki mína
en trúnaðarmaður starfsfólks
benti á að tækið væri stórgall-
að. Þá kom öryggisfulltrúinn
með málamiðlunartillögu þess
efnis, að tækið skyldi notað í
fjóra daga í stað sjö þar til nýtt
tæki fengist. Hann lét þannig
hagsmuni fyrirtækisins sitja í
fyrirrúmi fyrir öryggi starfs-
manna. Öryggi okkar á vinnu-
stað byggist fyrst og fremst á
eigin árvekni."
„Þá má og benda á að skál-
arnir eru alls ekki byggðir fyrir
íslenzka veðráttu því í óveðrum
hriplega þeir,“ segir Sigurður,
„og á jafn rafmögnuðu svæði og
í kerskálunum hlýtur vatn að
vera stórhættulegt vegna leiðni
sinnar. T.d. valda blaut verk-
færi í raftengdum kerjum
sprengingu og í stað þess að
fyrirbyggja lekann er mönnum
gert að forhita verkfærin."
— Hvers vegna hafa starfs-
menn í Straumsvík ekki tjáð sig
um þetta fyrr?
„Vegna hræðslu um að verða
reknir,“ segir Guðmundur.
„Það er fullur hugur í mönn-
um um að fá úrbætur á stærstu
vandamálunum og mikið rætt á
vinnustað. Starfsmannafélagið
gefur út blað með helztu bar-
áttumálunum og það sem ber á
góma í viðskiptum starfsmanna
og yfirboðara. En það er óttinn
við uppsögn sem letur menn til
að framfylgja sínum málum.
Einkum er hættan mikil fyrir
samninga, en þá hefur mönnum
verið hótað uppsögnum án
skýringa en síðan hafa þær
hótanir verið dregnar til baka
eða bældar niður með samstöðu
starfsmanna. Það er skoðun
okkar að til að einhverjar úr-
bætur fáist, verði að ná virki-
legri samstöðu meðal starfs-
manna. Eitt er það sem oft vill
eyðiieggja samstöðuna en það
er hin svokallaða slysakeppni
eða öryggiskeppni sem yfir-
menn álversins hafa komið á.
Keppnin stendur milli deilda
um að hafa sem fæst slys og
vinningurinn var lengi Græn-
landsferð en er nú úttektar-
miðar í verzlunum. Þess vegna
var það alltaf þaggað niður ef
einhver slasaðist eða reynt að
láta ekki á neinu bera ef ein-
hver veiktist illa. Menn voru
litnir hornauga ef þeir slös-
uðust eða veiktust og minnk-
uðu þannig möguleika deildar-
innar á vinningnum. Þetta
gekk svo langt að menn mættu
oft fárveikir til vinnu og dæmi
eru til um að liðið hafi yfir
menn á leið til vinnu af þessum
orsökum."
— Víkjum aftur að
mengunarhættunni. Teljið þið
að hreinsitækin muni leysa
þann vanda?
„Einn trúnaðarmanna okkar
fór til Noregs að skoða þar
álver. Af þremur sem hann
skoðaði voru tvö með mun
betra fyrirkomulagi en við
eigum að venjast. Þar var loftið
í skálunum bætt verulega með
loftstreymi úr kjallara sem var
stjórnað af hreyfanlegum blöðk
um utan á skálunum. Þetta er
ódýr og einfaldur útbúnaður en
mjög áhrifaríkur. Þriðja
álverið sem hann skoðaði var í
eigu systurfyrirtækis Isal, og
þar virtist loftið mjög álíka og
hjá okkur. Er betur var að gáð
reyndust hreinsunartækin i
kjallar ryðguð föst. I öllum
verksmiðjunum voru fastráðnir
læknar og hjúkrunarkonur alla
daga vikunnar. Hins végar er
fáránlegt að vera að tala um
varnir gegn mengun þegar hér
er beinlínis verið að stórauka
mengun og hættu á heilsu-
tjóni.“
— Hvað eigið þið við?
„Það hefur áður verið rætt
um úrgang úr gömlum kerjum
sem eitt sinn var keyrt út að
sjó. Nú er hins vegar þessi úr-
gangur malaður og keyrður
aftur inn í skálann og sturtað
ofan í kerin. Þetta hefur valdið
gífurlegri aukningu á rykinu og
meiri óþægindum en nokkuð
sem fyrr var aðhafzt. Það er
verið að tala um hreinsitæki og
mengunarvarnir um leið og
svona er viðhaft. Það hefur líka
oft verið sagt að I rauninni séu
næg hreinsitæki þarna til
staðar, þ.e.a.s. starfsmennirnir
sjálfir.“
-JFM-
V
Sigurður Jón Olafsson og Guðmundur Þorstelnsson, starfsmenn álversins i Straumsvik ásamt barni
Sigurðar.
Jónas í Garðinum
Hin nýstofnaði félagsskapur
áhugamanna um leiklist í
Garðinum, Litla leikfélagið,
frumsýndi Drottins dýrðar
koppalögn eftir Jónas Arnason
fyrir nokkru. Auk þess fór
fram kynning á höfundinum.
Helgi Seljan flutti erindi um
Jónas en Auður Sigurðardóttir
las smásöguna Forstandis.
Bóthildartríóið söng ljóð eftir
Jónas af mikilli list. Þetta mun
vera í fyrsta sinn sem Suður-
nesjamenn flytja verk eftir
Jónas Árnason í sérstakri dag-
skrá, enda heiðraði
höfundurinn þá með nærveru
sinni í Samkomuhúsinu í
Gerðum sem var troðfullt
áhorfendum. Jónas tróð upp
sjálfur af sínu alkunna sviðs-
öryggi og skemmti með söng og
upplestri. Átti Jónas salinn, ef
svo má taka til orða, ekki sízt
eftir að hann fékk yngri kyn-
slóðina í lið með sér á sviðinu.
Var „telpnatríóið" sem hann
stofnaði þarna klappað marg-
sinnis upp.
Fyrir ungt félag í litlu
byggðarlagi er Koppalognið
mjög heppilegt verkefni og Iík-
legt til vinsælda. Leikurinn
gerist í sjávarþorpi og þar
koma við sögu helztu embættis-
menn sveitarfélagsins og sókn-
ar. Og þótl efnið sé sót't svolítið
aftur í tímann hittir margt í
mark samtíðarinnar sem örvar
hláturkirtlana. Sóknar-
presturinn, síra Konráð, er
leikinn af Kjartani Ásgeirssyni,
Georg oddviti af Jóhanni Jóns-
syni. Jakob hreppstjóra leikur
Hreinn Guðbjartsson, Unn-
stéinnKristinsson, Davíð skóla-
stjóra og Kristbjörg Hallsdóttir
leikur Kristínu, fulltrúa
kvenna í hreppsnefnd. Eru
þetta stærstu hlutverkin en auk
þeirra eru nokkur litil hlut-
verk, — og ekki verður annað
sagt en að þau séu yfirleitt vel
af hendi leyst.
Leikstjórinn, Sævar Helga-
son, á stærstan þáttinn í vel-
heppnaðri sýningu, góðri
frammistöðu leikara, og
skemmtilegri leikmynd, sem
hann vann og þykir með af-
brigðum góð.
Litla leikfélagið hefur nú
sýnt Koppalognið og haft
kynningu á Jónasi Árna-
syni.þrisvar sinnum, auk barna-
sýningar, en hyggst nú hleypa
heimdraganum og sýna i
Félagsbíói í Keflavík, á
föstudag (4. mars).
Höfundurinn, Jónas Árna-
son, hefur sýnt Litla leik-
félaginu þann hlýhug og
velvilja að koma fram á hverri
sýningu og það gerir hann
einnig í Keflavík og víðar. En
hann þarf víðar að koma fram á
frumsýningum verka sinna en
á Suðurhesjum. Um miðjan
mánuðinn heldur hann til Mid-
land i Texas til að vera við-
staddur frumsýningu á Skjald-
hömrum þar í borg. -emm.
Jónas Arnason vakti mikla hrifningu i Garðinum, þegar hann tróð
þar upp og skemmti leikhúsgestum með upplestri og söng. Einnig
fékk hann yngra fólkið í lið með sér í sönginn,— þarna eru tvær
litlar telpur að taka lagið með honum.
-Ljósm. emm.