Dagblaðið - 03.03.1977, Side 6
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 3. MARZ 197.7
Erlendar
fréttir
Omar
VALDIMARSSON
I
REUTER
i
Bandaríkja-
menn herða
reykingar
Landbúnaöarráðuneytiö
bandaríska tilkynnti í gær
að reyktir hefðu verið 616
miftjarðar sígarettna í land-
inu á síðasta ári. Eitthvað
virðist reykingatizkan vera
að breiðast út í Bandaríkjun-
um, þvi að þessi tala sýnir
níu milljarða aukningu.
Carter Bandaríkjaforseti
Reyndi að stöðva frétt
um CIA-fé Husseins
I framhaldi af uppljóstrun
bandaríska blaðsins Washing-
ton Ppst á leynilegum peninga-
greiðslum til ýmissa þjóð-
höfðingja — þeirra á meðal
Husseins Jórdaníukonungs —
hefur tvennt komið fram um-
fram annað:
Carter Bandaríkjaforseti
hefur samþykkt að þessum
greiðslum verði haldið áfram
fyrir opnum tjöldum til
Husseins, og Carter reyndi
sjálfur að fá Washington Post
til að hætta við að birta
fréttina, þar sem fyrst var frá
þessu sagt.
Að minnsta kosti hluti þess
fjár, sem CIA hefur ætlað Huss-
ein, verður greitt. Carter sagði
eftir uppljóstrun Washington
Post að hann hefði stöðvað
þessar greiðslur, en ekki fengið
séð að þær væru „ólöglegar eða
óeðlilegar“.
Times í London hefur eftir
háttsettum stjórnarembættis-
manni í Washington: ,,Ur því
að einu sinni er búið að svipta
leyndarhulunni af þessum fjár-
Húsnæði íboði
220 ferm skrifstofuhúsnæði við
Skipholt til leigu. Uppl. í síma 15060
milli kl. 13.30 og 17.
Miðbær:
60-70 fm húsnæði óskast til leigu fyrir
tannlæknastofu, sem næst mið-
bænum. Skrifleg tilboð óskast send
Dagblaðinu fyrir 20. marz merkt
„Tannlæknastofa.“
Konur íBreiðholti
Tízkusýning í Fellahelli fimmtudaginn 3.
marz kl. 8.30.
Dagskrá:
1. Kynning á Lancomé snyrtivörum og make-up sýning.
2. Módelsamtökin sýna föt undir handleiðslu frú Unnar
Arngrímsdóttur. Sýnd verða föt frá Verðlistanum,
Laugalæk og Klapparstig og verzluninni Jósefínu og
Madam Glæsibæ.
3. Hárkollusýning frá verzluninni Hárprýði.
Kaffi og kökur. Konur, mætið allar.
Fjallkonurnar
Hussein Jórdaníukonungur og Cyrus Vance utanrfkisráðherra ræðast við. Hussein fullyrti að upp-
lýsingar Washington Post væru birtar til að eyðiieggja þann fund.
greiðslum CIÁ er ekki hægt að
leyna því á ný og þess vegna
verður að halda áfram fyrir
opnum tjöldum, eigi að vernda
þjóðarhagsmuni Banda-
ríkjanna.
t jafneldfimum heimshluta og
Miðausturlöndum er augsýni-
lega mjög mikilvægt fyrir
bandariska leyniþjónustu að
hafa aðgang að Jórdaníu-
konungi og þeim samgöngu-
leiðum, sem hann hefur komið
sér upp og heldur við. Einnig
hefur verið frá því skýrt, að
Bandaríkjamenn hafi gert
svipað fjárgreiðslusamkomulag
við tsraelsmenn, þótt það hafi
að vísu alltaf verið á almennu
vitorði.
Washington Post hefur einnig
skýrt ítarlega frá þvi á hvern
hátt Bandaríkjaforseti reyndi
að fá fréttina dregna til baka.
Carter átti fund í Hvíta húsinu
með Ben Bradlee, ritstjóra
Washington Post, og bláða-
manninum Bob Woodward
eftir að hann hafði frétt af
væntanlegri birtingu fréttar-
innar um Hussein konung.
Forsetinn er ekki sagður
hafa óskað eftir að fréttinni
yrði stungið undir stól í eitt
skipti fýrir öll heldur gert
þeim ljóst að því yrði hann
fegnastur. Hann útskýrði að
fréttir af peningagreiðslunum
til Husseins, um leið og Cyrus
Vance utanríkisráðherra sæti
á fundum með honum í
Jórdaníu, gætu valdið stór-
skaða. Því bað hann um að fá að
vita með 'sólarhrings fyrirvara
hvenær fréttin ætti að birtast.
Blaðið varð ekki við þessari ósk
og birti fréttina nokkrum
klukkustundum eftir fundinn í
Hvíta húsinu.
Forsetinn hefur gert
leiðtogum þingflokkanna fulla
grein fyrir afskiptum sínum af
málinu. Lagði hann þunga
áherzlu á, að Hussein konungur
væri „áreiðanlegasti heimilda-
maður Bandaríkjanna í
Miðausturlöndum. Vegna frétt-
arinnar varð fundur utanríkis-
ráðherrans ög Husseins aðeins
formsatriði. Haft var eftir Cart-
er, að framkoma Washington
Post hefði verið „óábyrg“.
Þar að auki, sagði forsetinn,
voru fréttalekar á borð við
þennan til að „spilla stórlega"
fyrir upplýsingaöflunargetu
bandarískra leyniþjónustu-
stofnanna. Fór hann þess á leit
við þingmennina, að þeir
aðstoðuðu sig við að stöðva
slíka leka með strangari reglum
um aðgang að leynilegum upp-
lýsingum.
Þykir Carter með þessu vera
að vernda leynilegar — en lög-
legar — aðgerðir CIA.
Meðal þeirra, sem Carter forseti kallaði fyrir sig var Woodward
blaðamaður Washington Post.
Dreif ing matvæla
Óskum eftir sterkum dreifingaraðila
fyrir framleiðslu okkar sem er
harðfiskur, saltfiskur, siid í ýmsum
kryddlegi, fersk og frosin ýsuflök.
Hjallfiskurh.f.
Hafnarbraut 6,
Kópavogi
Sími 40170.
ÆTLAÐIAÐ SKJÓTA
ROCKEFELLER MEÐ
BLÁSÝRUKÚLU
Fyrrum frambjóðandi tii full-
trúadeildar Bandaríkjaþings í
Camden í New Jersey kom fyrir
rétt þar í síðustu viku, sakaður
um að hafa gert áætlun um að
myrða Nelson Rockefeller, þáver-
andi varaforseta, árið 1974.
Það voru hægrisinnaðir öfga-.
menn, sem lögðu á ráðin um að
myrða Rockefeller, í þeim til-
gangi að koma í veg fyrir að hann
ásamt Henry Kissinger utanríkis-
ráðherra og „kommúnistunum"
tækju öll völd í heiminum.
Sakborningurinn heitir Robert
Dufalo og er 39 ára. Hann er
sagður hafa viðurkennt við yfir-
heyrslur hjá leyniþjónustunni að
hann væri leiðtogi baráttuflokks
innan hægri öfgasamtakanna
John Birch Society. Dufalo hefur
líka sagt frá því, að morðið hefði
átt að fremja í júlí 1974. Hann
ætlaði sjálfur að sjá um fram-
kvæmdina ásamt þremur öðrum
stuðningsmönnum John Birch
Society.
Ætluðu þeir að skjóta Rocke-
feller í höfuðið með blásýrumeng-
aðri kúlu.
Dufalo bauð sig fram við for-
kosningar repúblikana fyrir þing-
kosningarnar í fyrra, en féll.