Dagblaðið - 03.03.1977, Page 24
Gríska skipið siglir aftur
á bryggjuna á Reyðarfirði
Sjólag eins og heiðart jörn — stórtjón á skipi og bryggju
Gríska loðnuflutningaskipió
olli aftur skemmdum á
bryggjunni á Reyðarfirði i gær
kl. 17. Rakst stefni þess nú á
bryggjuna þar sem loðnunni er
landað. Jukust enn
skemmdirnar á gríska skipinu.
Bráðabirgðaviðgerð á lönd-
unarbr.vggjunni kemur í veg
fyrr tafir á löndun loðnu.
Loðnubáturinn Guðmundur
Jónsson frá Sandgerði
aðstoðáði gríska skipið með því
að keyra á það en allt kom fyrir
ekki. Þriðja tilraun til að leggja
skipinu að bryggju var gerð.
Þegar hún mistókst líka var
skipinu siglt út á leguna og
liggur það nú þar við festar.
Sýslumaðurinn á Eskifirði,
Bogi Nilsson, kom til Reyðar-
fjarðar í gær til þess að halda
sjópróf en ekki varð úr þeim.
Gríska skipið, Aliakmon Pro-
gress er 10-12 þúsund lesta
stórt. Kom það tómt frá Rotter-
dam í fyrrakvöld til að lesta
850 tonn af loðnumjöli á
Reyðarfirði. Eins og DB skýrði
frá í gær rakst skipið þá á
bryggjuna. Stórskemmdi það
stálþil og olli stórtjóni, sem enn
hefurekki verið metið.
Gekk bryggjan um 3 metra
inn í stefni skipsins þvert. Er
þar opið gat á stefninu ofan við
sjólínu þegar skipið er tómt.
Þegar það hefur verið lestað
verður gatið undir yfirborði
sjávar eftir því sem bezt verður
séð. Er því óhjákvæmilegt að
gera við skemmdir skipsins,
a.m.k. til bráðabirgða.
Auk þeirra skemmda, sem nú
hefur verið getið, olli skipið
nokkrum skemmdum á Helga-
fellinu, sem var að lesta vörur á
Reyðarfirði. Brotnaði m.a.
grindverk og flaggstöng og
dæld kom á skut Helgafells.
Ekki eru þessar skemmdir stór-
felldar.
Sjópróf verða haldin á
Eskifirði í dag.
-Vigfús/BS.
„Utvegsmenn
vilja bregðast
við vandanum”
— segir Jakob Jakobsson fiskifræðingur um
tillögur LÍÚ
„Mér finnst þetta mjög
drengileg afstaða hjá útvegs-
mönnum," sagði Jakob Jakobs-
son fiskifræðingur í morgun
um tillögur Landssambands ís-
lenzkra útvegsmanna um tak-
mörkun þorskveiðanna í ár.
„Aðalkosturinn við tillögur
LÍU er sá, aó útvegsmenn vilja
bregðast viö vandanum og tak-
marka veiðarnar við þessi 275
þúsund tonn,“ sagði Jakob.
„Aðferöin, sem þeir vilja hafa
við takmörkunina skiptir ekki
öllu máli frá mínum bæjardyr-
um séð. Hún skiptir ekki máli,
að því er tekur til þorskstofns-
ins.“
„Utvegsmenn fara eftir þeim
tillögum sem Hafrannsókna-
stofnunin hefur lagt fram.“
LÍU vill setja hámark þorsk-
veiðarinnar vió 275 þúsund
tonn í ár. 260 þúsund komi í
hlut íslendinga. Þá verði sagt
upp samningum, er veita Fær-
eyingum, Norðmönnum og
Belgíumönnum veiðiheimildir
hér og samningurinn við
Vestur-Þjóðverja verði ekki
framlengdur eftir að hann
rennur út 1. desember næst-
komandi.
Nánar segir frá tillögunum
annars staðar í blaðinu.
-HH
Einvígi Spasskys og Horts:
Þríðja skákin tef Id í dag
— Spassky hef ur hvftt
Þriðja einvigisskák þeirra
Horts og Spasskys verður tefld
í dag. Hefst hún kl. 5. Verður
skákin sýnd og skýrð fyrir
áhorfendum.
Jafnframt verða sýndar
biðskákir þeirra Larsens og
Portisch í Rotterdam og
Meckings og Polugajevskis í
Luzerne.
Larsen og Polugajevski eru
taldir hafa einhverja vinnings-
möguleika. Ekki eru þeir þó
meiri en svo, að skákirnar
verða trúlega tvísýnar og
spennandi.
Aukaútgáfa af tímaritinu
Skák kemur væntanlega út í
dag. Verða í henni skákskýring-
ar á þeim skákum, sem þegar er
lokið. Þær annast þeir Smyslov
og dr. Alster, aðstoðarmaður
Horts. -BS.
DB á innbrotsstað í Vöru-
markaðnum í morgun:
E.vjólfur Jónsson sundkappi
með meiru við gluggann,
sem farið var inn um. Litla
myndin sýnir hluta þeirra
skemmda sem unnar voru.
DB-myndir: Sv. Þorm.
Falsaðir flugvélavarahlutir í umferð í Evröpu:
ALDREIFUNDIZT
FALSAÐUR HLUTUR
IFLUGVELHER
— segir Grétar Óskarsson, frkvstj. Loftferðaeftirlitsins
„Ég hef aldrei orðið var við
falska varahluti eða „Bogus
Parts", eins og þeir eru kallaði,
við skoðanir mínar á flugvélum
hér," sagði Grétar Öskarsson,
framkvæmdastjóri Loftferða-
eftirlitsins í viðtali við DB í
gær.
Fyrir nokkru skýrði blaóið
frá því að upp hefði komizt um
mikið magn falskra eða óviður-
kenndra varahluta í umferð i
Bell þyrlum i Evrópu. Það sama
hefur síðan komið í ljós með
varahluti í Boeing 727. Oft
standast þessir hlutir ekki þær
kröfur, sem verksmiðjurnar
gera til þeirra og geta þvi verið
hættulegir.
Grétar sagði að stóru flug-
félögin hér og Landhelgisgæzi-
an skiptu aðeins við mjög viður-
kennda aðiia og sama væri að
segja um smáflugfélögin og eig-
endur smærri véla hér.
Eftir flugslys eru vissir
hlutir hinnar brotlentu flug-
vélar rannsakaðir. Við slíkar
rannsóknir hefur ekki komið
fram falsaður hlutur hingað til,
að sögn Gretars.
Annars sagði hann að þetta
varahlutafals væri gamall
draugur í fiugrekstri, af og til
sk.vti upp málum af þessu tagi,
misjafnlega alvarlegum. -G.S.
Innbrota-
faraldur
í nótt
— farið inn í6 fyrirtæki
— Tveir handteknir
í nótt voru innbrots-
þjófar heldur betur á ferðinni t
höfuðborginni, en alls var brotizt
inn á sex stöðum. Voru þetta allt
fyrirtæki. Brotizt var inn í Lysta-
dún, Billjardstofuna í Einholti,
Vörumarkaðinn, Ármúla, Tré-
smíðaverkstæðið, Ármúla 5 og
verzlunina Adam. Tveir menn
voru handsamaðir grunaðir um
innbrotið í Adam. Öll þessi
innbrotsmál voru í rannsókn hjá
lögreglunni og ekki hægt að fá
frekari upplýsingar um þau í
ntorgun.
fijálst,aháð dagblað
FIMMTUDAGUR 3. MARZ 1977
Samræmdu prófin:
Grunnskóla-
nemar fylkja
liði á f und
ráðherrans
Mikill urgur hefur verið I
nemendum i 9. bekk grunn-
skólans vegna fyrirkomulags
nýafstaðinna prófa. Efna
nemendur flestra skólanna í
Reykjavík til hópgöngu á
morgun.
Safnazt verður saman kl.
13.30 á Hlemmtorgi og er ætl-
unin að ganga að Alþingishús-
inu. Þar munu einn fulltrúi úr
hverjum skóla fara á fund
menntamálaráðherra, sem'
verður staddur í Alþingis-
húsinu til þess að ræða vió
hann.
Vilja þeir sem fyrir göng-
unni standa hvetja göngu-
menn til þess að hafa ekki í
frammi ólæti eða óspektir og
vilja jafnframt hvetja sem
flesta nemendur til þess að
mæta til göngunnar.
A.Bj.
Loðnan:
Bátarnir
aðtínastút
— óveðurá miðunum
„Bátarnir eru að byrja að tínast
út en þeir hafa flestir legið í höfn
í Vestmannaeyjum, vegna
veðurs,“ sagði Andrés Finnboga-
son hjá Loðnunefnd I morgun.
Það voru um 11 vindstig við Vest-
mannaeyjar í gær og skipin
þurftu að leita hafnar vegna
óveðurs á miðunum.
Nokkrir bátar voru með slatta
þegar þeir leituðu í var. Andrés
sagði að þetta hefði verið dálítil
hvíld hjá áhöfnunum en eins og
flestir vissu hefði veiðin verið
stórkostleg undanfarið. Vonandi
verður hún það enn um sinn.
-KP
Skjálftafjðldi við
Kröflu i gær og nátt:
Nær þreföld-
un á einum
sólarhring
— sterkasti skjálftinn
ínótt2.5stig
Skjálftatíðni á Kröflusvæð-
inu eykst nú mjög hratt, en
búizt er við að hún nái há-
marki alveg næstu daga. Frá
kl. 15 í gær til 8.30 í morgun
mældust 47 skjálftar, en á
sama tíma sólarhringinn á;
undan mældust 17.
I nótt var sterkasti
skjálftinn 2,5 stig en fjórir
skjálftar mældust á bilinu 2 til
2,5 stig á Richterskvarða. Skv.
upplýsingum skjálftavaktar-
innar í morgun. Ekki munu
þeir þó hafa fundizt.
Miðað við þessa þróun taldi
jarðskjálftafræðingurinn á
vaktinni ekki ósennilegt að
skjálftarnir yrðu 60 næsta
sólarhring.
-G.S.
-A.Bj.