Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 15.03.1977, Qupperneq 4

Dagblaðið - 15.03.1977, Qupperneq 4
Hreppst jórar með 90 krdnur á tímann — ílitlum sjávarplássum Hreppstjóri í sjávarþorpi meó 250-300 íbúa vinnur líklega að meðaltali fjóra tíma á dag við þau embættisstörf og er þá timakaup hans um 90 krónur. Þetta kemur fram í greinar- gerð Steingríms Hermannsson- ar alþingismanns (F) með þingsályktunartillögu sem kom fram í gær. Steingrímur ber athugulan hreppstjóra í slíku sjávarþorpi fyrir þessu. í 250-300 íbúa þorpi er þókn- un, sem hreppstjóri fékk á síð- asta ári, um 94.185 krónur eða 1811 krónur á viku. Þetta sam- svarar um fjögurra tíma kaupi verkamanns, segir þingmaður- inn. Laun hreppstjóra, þóknun, eru breytileg eftir fólksfjölda i hreppunum. Árslaunin voru í fyrra 63.503 krónur fyrir hrepp með 100 íbúa eða færri en 207.702 krónur á ári í hrepp með yfir 1000 íbúa. Þingmaðurinn segir að til slíkra starfa verði að veljast hæfir og ábyggilegir menn. Þótt það hafi í flestum tilfellum tekizt stuðli þóknunin sem greidd er ekki að því. Þingmaðurinn leggur til að rikisstjórninni verði falið að láta endurskoða lög og reglur um launakjör hreppstjóra. -HH Casita fellihýsi fer á ferð Hafnarfirði Nýtt íslenzkt Nemendur í 9. bekk i grunn- skólanum í Vík í Mýrdal heim- sóttu Oagblaðið í gær og kynntu sér hvernig blaðið verður til. Dvóldu þeir um stund á ritstjórn blaðsins og kynntust lítillega hvernig fréttaöflun fer fram, brugðu sér síðar í prentsmiðju blaðsins og sáu það síðan renna glóðvolgt úr prentvél Morgun- blaðsins í Skeifunni. Víkverjarnir komu í bæinn á sunnudag ásamt Jóni Inga Einars- syiíi skólastjóra sínum. Brugðu þeir sér í Þjóðleikhúsið þá um kvöldið. í gær fóru þeir í heim- sókn til Ríkisútvarpsins eftir heimsóknina til Dagblaðsins og síðar í gær litu þeir við á þingpöll- um til að sjá og heyra landsfeð- urna ræða málin. Létu ungling- arnir vel yfir þessari Reykjavík- urheimsókn sinni. DB-mynd Hörður. bamaleikrit frumsýnt í CASITA er framtíðin Ásíðasta árifórþað sigurför um allt landið. Ekki verður förþess með minni glæsibragíár. Þvískaltu tryggja þér eitt töfrahýsi strax, þvíþað mun heilla þig ogfalla og nsa eftirþínum eigin geðþótta d aðeins 30 sekúndum. Tryggðu þér því eitt fellihýsi strax í dag eða fyrir 20. þ.m. Hallbjörn J.Hjartarson hf. \ Skagaströnd. Sími 95-4629 ,,Pappírs-Pési“ heitir nýtt ís- lenzkt barnaleikrit eftir Her- disi Egilsdóttur sem Leikfélag Hafnarfjarðar, Barnaleikhúsið, frumsýndi i Bæjarbíói á laugar- dag. Þetta er fyrsta leikrit Herdís- ar sem flutt er á sviði en hún hefur skrifað fjölda barna- sagna og leikþætti fyrir sjón- varp. 1974 hlaut hún fyrstu verðlaun í barnaleikritasam- keppni sem Sumargjöf og Leik- félag Reykjavíkur efndu til. Það leikrit hefur ekki verið sýnt enn. „Pappírs-Pési“ fjallar um strák sem nýlega er fluttur og er dálítið einmana þar sem hann hefur ekki eignazt nýja félaga. Hann tekur sig því til og teiknar mynd af strákpatta sem hann talar við frekar en ekkert. Og sá teiknaði verður sprelllif- andi. Nærri má geta að pappírs- strákurinn er skemmtilegur fé- lagi en þó öðruvísi en aðrir krakkar, enda hætt við að rifna.i 1 fimm af átta aðalhlutverk- um eru börn: Esther Auður Elíasdóttir, Eyþór Arnalds, Kolbrún Kristjánsdóttir, Guð- mundur Franklín Jónsson og Jón Magnússon. Aðrir leikend- ur eru Guðrfður Guðbjörnsdótt- ir, Sigriður Eyþórsdóttir og Kjuregej Alexandra, sem er jafnfiamt leikstjóri og bún- ingahöfundur. Þetta er fyrsta leikstjórnarverkefni hennar. Tónlist er eftir Herdísi Egils- dóttur en leikmynd teiknuðu börn úr Myndlista- og handiða- skóla tslands. -ÓV Tveir ungu leikendanna i „Pappírs-Pésa“ eftir Herdísi Egilsdóttur, sem frumsýnt verður i Bæjarbíói i Hafnar- firði í dag ki. 14. DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. MAR7 1977. Ekki vilji í flokkunum fyrir grundvallarbreytingum — rætt við Hannibal Valdimarsson formann stjórnarskrárnefndar „í stjórnarskrárnefnd er ekki hljómgrunnur fyrir ein- menningskjördæmum,“ sagði Hannibal Valdimarsson, for- maður nefndarinnar, i viðtali við DB í gær. Hann sagði að ekki væri í flokkunum vilji fyrir grundvallarbreytingar á kosningaskipun. Menn vildu lagfæra núverandi kerfi eitt- hvað eftir því hvaða breytingar hefðu orðið á mannfjöldaskipt- ingunni milli kjördæma. Hannibal sagði að mikið hefði verið fjallað um þessi mál í nefndinni og hölluðust margir að vestur-þýzka kerfinu sem er sambland persónukjörs og flokkslistakjörs. Einmennings- kjördæmi væru að mörgu leyti hreinlegasta kerfið. Um tillög- ur nefndar ungra manna úr þremur stjórnmálaflokkum, sem komu fram í vetur, sagði Hannibal að það væri góðra gjalda vert að unga fólkið myndaði sér skoðanir. Hann væri þakklátur fyrir þessar til- lögur. Þær hefðu verið sendar öllum nefndarmönnum í stjórn- arskrárnefnd. I tillögum ungu mannanna er gert ráð fyrir að framboð verði einstaklings- bundið. Kjósandi tölusetur frambjóðendur eftir því sem honum geðjast að þeim og stefnu þeirra. Kjósandinn er óbundinn flokkum við þessa kosningu. Þetta er tilhögun sem gildir á Irlandi og er í tillögum ungu mannanna köll- uð „persónukjör með valkost- um“. Hannibal sagði að stjórnar- skrárnefnd hefði lítið starfað um skeið og kæmi þar til að hann hefði verið bundinn heima í Selárdal og ekki átt heimangengt. Ráðsmaður sinn hefði veikzt. Það væri „sér að kenna“ hve lítið hefði gengið um hríð. Övíst væri hvenær niðurstöðum yrði skilað. Ágreiningur í nefndinni kæmi helzt fram þegar farið væri að fjalla um niðurstöður og gæti það tafið. „Eg held mig algerlega frá stjórnmálum," sagði Hannibal. Annaðhvort væri að gefa sig algerlega að þeim eða láta þau eiga sig. •HH Heimsóttu Þjóðleikhúsið, Dag biaðið, Útvarpið og Alþingi

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.