Dagblaðið - 15.03.1977, Side 7
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977.
7
Flugrán ínótt: Fékk þriggja ára
dóttur sína framselda
Mun vera á leið til heimaborgar sinnar
á Norður-Ítalíu
Ungur Itali, sem gefið hefur
upp nafnið Luciano Poccari,
rændi spánskri farþegaflugvél í
innanlandsflugi frá Barcelona
til Mallorka í gærkvöldi og
skipaði flugstjóra hennar að
fljúga til Alsír.
28 farþegar eru með flugvél-
inni sem er þota af gerðinni
Boeing 727.
Eftir að hafa fengið eldsneyti
í Alsír, hóf þotan sig á loft á ný
og var ferðinni heitið til
Abidjan. höfuðborgarinnar á
Fílabeinsströndinni.
Þar krafðist ræninginn, sem
er vopnaður skammbyssu og
haglabyssu, að fá afhenta
þriggja ára gamla dóttur sína.
sem er hjá fyrrum eiginkonu
mannsins þar, og um 80 þúsund
pund í reiðufé.
Er yfirvöld í Abidjan höfðu
látið undan kröfum mannsins
hélt þotan í loftið á ný og var
stefnan tekin í norður. Þó
leyfði flugræninginn að ný
áhöfn kæmi um borð í Bamko á
Mali.
Síðan vildi flugræninginn að
þotunni yrði lent í Casablanca
en yfirvöld í Marokkó neituðu
honum um lendingarleyfi og lét
hann flugstjóra vélarinnar þá
fljúga til borgarinnar Sevilla á
Spáni.'
Þar var á ný tekið eldsneyti
og hóf þotan sig til flugs
skömmu eftir klukkan sjö í
morgun á leið til Torino á
Norður-Italíu, þar sem talið er
að flugræninginn eigi heima.
Samkvæmt fréttum mun
maður þessi hafa reynt að ræna
flugvél á flugvellinum í
Abidjan fvrirfimmárum, en þá
skutu öryggisverðir hann í
fótinn er hann reyndi að
ryðjast um borð í þotu á flug-
vellinum. Hann slapp síðar af
sjúkrahúsinu og komst til ítaliu
um Ghana.
Ekki er vitað hvað maðurinn
hyggst fyrir er til Turin kemur,
en þar hefur lögreglan mikinn
viðbúnað.
REYKIÐJAN HF.
SMIÐJUVEGÍ 36 ‘S 7 63 40
Önnumst hvers konar matvælareykingar
fyrir
verslanir, mötuneyti og einstaklinga.
BANDARÍKJAMENN HÆTTA AÐ KAUPA
KRÓM AF RÓDESIUMÖNNUM:
BIAÐIÐ
Mikiö áfall fyrir Smtth
CARTER LÆTUR UNDAN
ÞRÝSTINGIFRÁ
SAMEINUÐU ÞJÓÐUNUM
Ian Smith: Nú neyðist hann til
að semja.
Bandaríska þingið hefur
ákveðið að beygja sig fyrir
þrýstingi frá Sameinuðu
. þjóðunum og hætta að kaupa
króm af Ródesiumönnum.
Hefur ríkisstjórn Carters
lagt hart að þinginu að
samþykkja lagabreytinguna,
en Bandaríkjamenn hafa
keypt þessa þýðingarmiklu út-
flutningsvöru af Ródesíumönn-
um frá árinu 1971 þrátt fyrir
verzlunarbann Sameinuðu
þjóðanna.
Afstöðubreyting Bandaríkja-
manna til þessara kaupa er
talin verða stjórn Ian Smiths
mikið áfall og enn ein ábending
um að hann verði nú að ganga
til samninga við meirihluta
svartra manna í landinu um
ríkisstjórn.
Hálft
tonn
af
hassi
Landamæraverðir í
Búlgaríu fundu rúmlega 500
kíló af hassi í flutningabíl á
landamærum Tyrklands og
Búlgaríu í gær Er þetta i
þriðja sinn á einni viku sem
stórar sendingar af hassi finn-
ast á landamærunum, en
billinn var á leið til Vestur-
Þýzkalands.
Skömmu fyrir helgi fundu
landamæraverðir 628 kíló af
hassi í fölskuin bensínlanki
flutningabifreiðar á landa-
mærunum og nokkrum dögum
fyrr höfðu þeir fundið 440 kíló
í bíl á landamærunum.
Beriingurínn
i sjálfheldu
Blaðið jafnvel prentað
eriendis
Danska vinnuveitendasam-
bandið hefur krafizt þess að
„sérstaklega háum sektum"
verði beitt gegn prenturum,
sem lögðu niður vinnu í sex
vikna vinnudeilu við
Berlingske-forlagið i Kaup-
mannahöfn.
Tvö dagblöð forlagsins, íhalds-
blaðið Berlingske Tidende og
síðdegisblaðið BT, hafa ekki
komið út síðan 30. janúar.
Deilan stendur um breytingar í
rekstri fyrirtækisins og nýjar
aðferðir við prentun.
Hafa prentarar lýst sig and-
snúna fækkun í starfsliði og
kauplækkunum, sem þeir telja
að verði afleiðing nýrra aðferða
við prentun.
Vinnudómstóll hefur þegar
sektað samtök prentara og
krafizt þess að þeir snúi til
vinnu á ný, en það hefur engan
árangur borið.
Er nú svo komið, að
Berlingske hefur tilkynnt, að
það muni fl.vtja einhvern hluta
pentunar blaða sinna úr landi,
ef sættir nást ekki í deilu þess-
ari, enda hefur forlagið tapað
stórum upphæðum á verk-
fallinu.
HAFNARFIRÐI
Umboðsmaður:
Steinunn Sölvadóttir
Selvogsgötu 11
Simi 52354 (kl. 5-7)
NYK0MIN
KÚREKASTÍGVÉL
Skóverzlun
Þórðar Péturssonar
Kirkjustræti 8 v/Austurvöll - Sími 14181
Teg.H-7
Litur natur-leður
Stærðir6-ll,
fáanlegfl/2nr.
Verðkr. 10.975.-