Dagblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 14
14
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. MÁRZ 1977.
Myndin sýnir nokkur dæmi um meinsemdir sem alkóhól veldur á
hinum ýmsu líffærum: 1 veldur skalla og blæðingum, 2 bak-
verkjum, 3 slysum og húðsýkíngu, 4 heilarýrnun, 5 andlegri streitu,
6 flogaveiki, 7 krabbameini í koki, 8 krabbameini í vélinda, 9
berklum, lungnasjúkdómum, 10 hjartasjúkdómum, 11 sýkingu í
briskirtli, 12 magabólgum og magasári, sýkingu á smáþörmunum,
13 lifrarbólgum, 14 kyndeyfð, 15 vöðvarýrnun og 16 taugabóigu.
Hátfskammast
sínfyrír
langlífið
Eva Rubinstcin kyssir hinn fræga föður sinn, Arthur
Rubinstein, á níutíu ára afmælisdegi hans. Hann er fæddur í
Póllandi en er búsettur í París og hélt upp á afmæiið sitt í New
York. Hann kom fram í fyrsta sinn í Carnegie Hall fyrir „aðeins“
sjötíu og einu ári.
Rubinstein gamli sagði í afmæiisveizlunni: „Eg hálfskammast
mín fyrir að vera enn á lífi. Mozart var ekki nema þrjátíu og
fimm ára þegar hann dó og Schubert dó þegar hann var þrjátíu
og eins árs.
Ég veit ekki hvcrju ég á aó þakka þetta langiífi mitt en ég
þakka bara Guði fyrir það.“
Heilsutjón vegna
misnotkunar áfengis
er gffuríegt
Förum að dæmi Svfa og reynum að draga úr skaðsemi
of neyzlunnar með breyttum umgengnisvenjum og aukinni
fræðslu um skaðsemi hennar
Undanfarið hefur mikið verið
rætt og ritað um skaðsemi reyk-
inga og alkóhólneyzlu. Það eru
víst allir á einu máli um skaðsemi
þessara „vímugjafa" eða eitur-
lyfja, þótt verr gangi að fá fólk til
þess að hætta að reykja og
drekka. Þetta er víst svona alls
staðar í heiminum og varla má
opna erlent blað svo þar séu ekki
greinar um þessi málefni.
Við rákumst á eftirfarandi
grein i Aftonbladet og þar sem
hún á einnig erindi hér við okkur
datt okkur í hug að snara henni
lauslega.
Árlega má rekja dauða fimm
þúsund Svia að einhverju Ieyti til
alkóhólneyzlu. Talið er að tóbaks-
reykingar valdi álíka mörgum
dauðsföllum.
Reikna má með því að árið 1980
verði um það bil ein milljón Svía
sem misnoti áfengi.
Allir sérfræðingar eru á sama
máli að ekkert gæti verið betra
fyrrr heilsu alls þorra manna en
að þeir stilltu áfengis- og tóbaks-
notkun sinni í hóf.
Sérfræðingar eru einnig á
þeirri skoðun að bezta leiðin til
þess að minnka þessa neyzlu sé að
uppfræða almenning um skað-
semi tóbaks og áfengis.
Yfirvöldin (er hér átt við
Svíþjóð) hafa gert skammarlega
lítið í þessum efnum. í rauninni
eru tóbak og áfengi það hættuleg
efni að þau myndu flokkast með
eiturlyfjum ef þau væru að koma
fram á sjónarsviðið í dag.
Heilaskemmdir
Alltaf eru fleiri og fleiri ugg-
vænleg tíðindi að berast okkur til
eyrna.
Dr. Carl Carlsson í Gautaborg
hélt því fram fyrir tíu árum að
hægt væri að sýna fram á heila-
skemmdir hjá alkóhólistum.
Hann heldur því fram að fín-
gerðustu stjórnstöðvarnar
skemmist fyrst, eins og stjórn-
stöðvar fyrir kynlíf, minnið og
skilning.
Á geðsjúkrahúsum og langlegu-
deildum er að finna marga sjúkl-
inga og má rekja líkamleg mein
þeirra beint til ofneyzlu áfengis.
I Stokkhólmi er talið að um 50
þúsund manns misnoti áfengi á
gróflegan hátt og eykst þessi
hópur um 5 þúsund manns árlega.
Talið er að unnt sé að spara
hundruð milljónir sænskra króna
ef hægt væri að koma í veg fyrir
þessa misnotkun áfengis.
Milljón ofdrykkjumenn
Þriðji hver sjúklingur á geð-
sjúkrahúsunum hefur orðið fyrir
heilsutjóni vegna misnotkunar
áfengis. Meira en fjórði hver
sjúkdómur sem tekinn er til með-
ferðar á lyflækningadeildum
sjúkrahúsanna á einnig rætur
sínar að rekja til misnotkunar
áfengis.
Rannsóknarnefnd á vegum
heilbrigðisyfirvaldanna telur að
árið 1980 verði 800 þúsund til ein
milljón Svía sem geti kallazt alkó-
hólistar eða misnoti áfengi mjög
gróflega. íbúar Svíþjóðar nú eru
rúmlega átta milljónir.
Heilbrigðisyfirvöld vilja
gjarnan kanna nánar hvaða áhrif
ofneyzla áfengis hefur á heilann
og hvaða skemmdir koma fram af
völdum hennar. Einnig þarf að
rannsaka nánar áhrif áfengis-
neyzlu á lifrina.
Þá er talið að alkóhól hafi eitr-
andi áhrif á blóðið og beinmerg-
inn og geta allir sagt sér sjálfir
hve skaðlegt það getur verið.
Blóðsjúkdómarnir hafa þau
áhrif að fólk er sífellt þreytt og
illa upplagt til allra verka.
Talið er líklegt að alkóhól hafi
þau áhrif að blóðfitan eykst.
Einnig er talið mikilvægt að rann-
saka sambandið á milli alkóhól-
neyzlu og sykursýki.
80 af hverjum 100
neyta ófengis
Það er fyrir löngu vitað að
áfengisneyzla hefur áhrif á
skjaldkirtilinn, en ekki er full-
rannsakað hve mikil áhrif þessi
eru.
Það er talið fullvíst að áttatíu
prósent karla neyta áfengis og
sextíu prósent kvenna.
Það þykir orðið „fínt“ að
drekka. Það er löngu viðurkennt
og tilheyrir umgengnisvenjum'
fólks.
Það er nauðsynlegt að brjóta
þessar siðvenjur á bak aftur.
Alkóhólneyzlan eykst stöðugt.
Við getum ekki unnið bug á þeim
skemmdum sem af henni hljótast
nema með því að draga verulega
úr neyzlunni. Ein af leiðunum til
þess er að hafa verðið svo hátt að
fólk skirrist við að kaupa áfengi.
Svíar telja að það þurfi að gera
meira en að hækka verðið. Það
verði að fræða ungdóminn um
skaðsemi áfengis, styðja á við
bakið á ungmennafélagsskap og
auka eftirlit með samkomustöð-
unum. Lagt er til að sölu á
brenndum vínum verði hætt.
Geðlœknarnir
eru þögulir
„Við verðum að vera minnug
þess að það finnst ekki nein
„patent“lausn á áfengisvandamál-
inu,“ segir dr. Carl Carlsson.
„Flest sem reynt hefur verið að
gera hefur mistekizt, þeir einu
sem einhverjum árangri hafa náð
í baráttunni við Bakkus eru AA-
samtökin."
Dr. Carlsson segir að geðlækn-
arnir, sem eru þeir sem eru í
nánustu tengslunum við alkóhól-
istana, hafi verið mjög þögulir og
lítið lagt til málanna.
Það verður aldrei hægt að losna
við alkóhólismann fyrir fullt og
allt, segir dr. Carlsson. Það er
aðeins óraunverulegur draumur.
Það ætti heldur að snúa sér að
því að breyta umgengnisháttum
fólks í sambandi við áfengi. Það
gerum við bezt á þann hátt að
halda uppi öflugri fræðslustarf-
semi um skaðsemi áfengis. Telur
læknirinn að slíkt sé vænlegra til
árangurs heldur en að vera að
reikna út hve mikil aukningin á
alkóhólistunum verði í framtíð-
inni.
Þýtt og endursagt. -A.Bj.
Hæstlaunada
frétta-
kona
f heimi
Barbara Walters er líklega
hæstiaunaða fréttakona
heimsins. Hún er auðvitað
bandarísk og fekk eina milljón
dollara fyrir að fara frá NBC
stöðinni til ABC sjónvarps-
stöðvarinnar. — Nú er
’hún ásökuð fyrir að gripa
frammi fyrir þeim, sem hún
ræðir við í viðtölum sínum.
Ekki er ólíklegt að henni
finnist að fyrirtækið eigi
heimtipgu á aðfá „eitthvað mik»
ið" fyrir snuó sinn.