Dagblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 23

Dagblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 23
DAGBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977. I Útvarp 23 Sjónvarp Grunnskólinn — og hvað svo? nefnist umræðuþáttur sem er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld kl. 21.15. Umræðunum stýrir Hinrik Bjarnason. Við hringdum í hann. „Nafnið á þáttinr.valdiég m.a. af því að ég tel að almenningur viti ekki nægilega vel hvað stendur til boða eftir að grunn- skóla lýkur. 1 þættinum ætla ég að fá fram umfjöllun um það. Einnig um það hvað gerist frá lokum grunnskóla til byrjunar háskóla. Síðan ætla ég að koma inn á upplýsingamiðlunina þarna á milli og hvort þetta upphlaup vegna prófanna, sem ýmislegt var athugavert við, hafi verið vegna þess að fólk sé ekki nógu visst í sinni sök og hafi notað tækifæri til þess að atast út í kerfið, sem það þekkir ekki nógu vel. Að öðru leyti verður farið á kostum um lendur grunnskól- ans og þess svæðis sem við tekur af honum,“ sagði Hinrik Bjarnason. Þeir sem ræða saman í þætt- inum verða Stefán Olafur Jónsson og Hörður Lárusson deildarstjórar, Óli Þ. Guðbjarts- son skólastjóri á Selfossi og Baldur Sveinsson kennari í Hlíðaskóla. — Ertu kominn aftur að sjón- varpinu, Hinrik? „Nei, ekki get ég nú sagt það. Ég komst að samkomulagi við sjónvarpið um tvo þætti, þenn- an í kvöld og um daginn um bjórinn. Samkomulagið nær Sjónvarp f kvöld kl. 21.15: Umræðuþáttur: Farið á kostum um lendur grunn- skólans <..— m. Nemendur grunnskólans gerðu mikið „uppþot" bæði vegna fyrirkomulags samræmdra prófa og eins vegna einkunnar- gjafar, sem enginn botnar í. ekki nema til þessara tveggja þátta, og ég get ekki sagt neitt um framhaid þess máls að svo stöddu,“ sagði Hinrik. Eins og menn muna var Hin- rik éinn af fyrstu starfsmönn- um sjónvarpsins og var hann með Stundina okkar. Atti hann m.a. hugmyndina að Krumma, sem naut mikilla vinsælda hjá börnum. A.Bj. § Útvarp Þriðjudagur 15. marz 14.25 Frá Norogi og Qanmorku. a. Norsk leikhúsmál í doiglunni. Ingólfur Mar- geirsson flytur ásamt Berki Karlssyni og Steinunni Hjartardóttur. b. Þorra- blót á Austurveggil 2. óttar Einarsson kennari bregóur upp svipmyndum með upplestri. eftirhermum og ál- mennum söng frá samkomu Islend- ingafélagsins i Kaupmannahöfn. sem haldin var í Jónshúsi 19. f.m. 15.00 Miðdegistónleikar. Kornél Zempléni og Ungverska ríkishljóm- sveitin leika Tilbrigði um barnalag fyrir píanó og hljómsveit op. 25 eftir Dohnányi; György Lehel stjómar. Ot- varpshljómsveitin í Berlín leikur „Skýþíu-«vitu“ fyrir hljómsveit op. 20 eftir Prokofjeff; Rolf Kleinert stjórnar. 16.00 Fréttir. Tilkynningar (16.15 Veðurfregnir. 16.20 Popp. 17.30 Litli bamatíminn. Finnborg Schev- ing stjórnar timanum. 18.00 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar. 19.35 Vinnumél. Lögfræðingarnir Arn- mundur Backman og Gunnar Eydal sjá um þáttinn. 20.00 Lög unga fólksins. Ásta R. Jóhann- esdóttir kynnir. 20.45 Að skoða og skilgreina. Kristján E. Guðmundsson og Erlendur S. Baldurs- son sjá um þáti fyrir unglinga. 21.30 Fré orgeltónleikum Martins Hasel- böcks í kirkju Filadelfiusafnaðarins i september sl. a. Sónata í A-dúr eftir Mendelssohn. b. Tveir þættir úr „Fæöingu frelsarans" eftir Messiaen. c. Danstokkata eftir Heiller. d. Hug- leiðing um „Island, farsælda frón", leikin af fingrum fram. 22.00 Fréttir. 22.15 Veðurfregnir. Lestur Passíusálma (32). 22.25 Kvöldsagan: „Sögukaflar af sjálfum mór'* eftir Matthías Jochumsson. Gils Guðmundsson les úr sjálfsævisögu hans og bréfum (7). 22.45 Harmonikulög. Garðar Olgeirsson leikur. 23.00 A hljóðbergi. Lesið og sungið úr Ijóðum Roberts Burns. Meðal flytj- enda eru Ian Gilmour. Duncan Robertson og Margaret Fraser. 23.30 Fréttir. Einvígi Horts og Spasskýs. Jón Þ. Þór rekur 8. skák. Dagskrárlok um kl. 23.50. Miðvikudagur 16. marz 7.00 Morgunútvarp. Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30. 8.15 (og forustugr. dagbl.). 9.00 og 10.00. Morgunstund barnanna kl. 8.00: Guðni Kolbcinsson endar lestur þýðingar sinnar á „Briggskipinu Blálilju", sögu eftir Olle Mattson (31). Tilkýnningar kl. 9.30. Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög milli atriða. Guðsmyndabók kl. 10.25: Séra Gunnar Björnsson les þýðingu sína á predikunum út frá dæmisögum Jesú eftir Helmut Thielicke; VI: Dæmisagan af illgresinu meðal hveit- isins. Morguntónleikar kl. 11.00: Fílharmoníusveit Berlínar leikur Sinfóniu nr. 2 í C-dúr op. 61 eftir Robert Schumann; Rafael Kubelik stjórnar / Fílharmoníusveit Vínar- borgar leikur Tilbrigði op. 56 eftir Brahms um stef eftir Haydn; Sir John Barbirolli stjórnar. 12.00 Dagskráin. Tónlcikar. Tilkynning- ar. 12.25 Veðurfregnir. Fréttir. Tilkynn- ingar. Viðvinnuna: Tónleikar. 14.30 Miðdegissagan: „Ben Húr", uga frá Krísts dögum eftir Lewis Wallace. Sigurbjörn Einarsson þýddi. Ástráður Sigursteindórsson les (2). 15.00 Miðdegistónleikar. Colonne hljóm- sveitin í París leikur „Karnival dýr- anna“, hljómsveitarsvítu eftir Saint'Saéns; George Sebastian stjómar. Ulrich Lehmann og Kammersveitin i Zilrich leika Fiðlu- konsert í B-dúr op. 21 eftir Othmar Schöck; Edmond Stoutzstjómár. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). 16.20 Popphom. Halldór Gunnarsson kynnir. 17.30 Útvarpssaga bamanna: „Systumar í Sunnuhlíð" eftir Jóhönnu Guðmunds- dóttur. Ingunn Jensdóttir leikkona les (2). 17.50 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. &£ Sjónwarp Þriðjudagur i) 15. mars 20.00 Fréttir og veður 20.25 Auglýsingar og dagskrá. 20.30 Skákeinvígið. 20.45 Reykingar. Skaðsemi reykinga. Fyrsta myndjn af þremur um ógn- vekjandi áfleiðingar sígarettu- reykinga. I Bretlandi deyja árlega meira en 50.000 manns af völdum reykinga, eða sex sinnum fleiri en farast í umferðarslysum. Meðal annars er rætt við rúmlega fertugan mann, sem haldinn er ólæknandi lungnakrabba. Hinar myndirnar tvær verða sýndar næstu þriðjudaga. Þýðandi og þulur Jón O. Edwald. 21.15 Grunnskólinn og hvað svo? Umræðuþáttur um grunnskólann og tengsl hans við menntakerfið. Umræðunum stýrir Hinrik Bjarnason. og meðal þátttakenda eru Óli Þ. Guðbjartsson skólastjóri og Stefá:; ólafur Jónsson, fulltrúi í mennta málaráðuneytinu. 21.55 Colditz Bresk-bandarískur fram- haldsmyndaflokkur. Fyllsta öryggi. Þýðandi Jón Thor liaraldsson. 22.45 Dagskrárlok. Sjónvarp íkvöld kl. 21.55: Barizt um yfirráðin yfir fangelsinu Colditz er á dagskrá sjónvarps í kvöld kl. 21.55. Er þetta fimmti þátturinn og nefnist hann Fyllsta öryggi. Þýðandi er Jón Thor Haralds- son. „Það kemur nýr maður til sögunnar í kvöld, nýr öryggis- foringi, sem á að gæta öryggis- mála fanganna," sagði Jón Thor er við hringdum í hann til að forvitnast um hvað gerðist í þættinum. „Sá er úr hernum, sem stjórnar fangabúðunum í Colditz, en í gegnum allan myndaflokkinn gengur eins og rauður þráður togstreita milli hersins og Gestapo eða SS- sveitanna vegna fangabúðanna. Nýi foringinn heitir Ullmann og er mjög hæfur maður. Fangarnir fá veður af því að halda á ráðstefnu um öryggis- mál og setja þeir allt á annan endann til þess að fá upplýsing- ar um hvað fram fer á ráðstefnunni. Deilurnar snúast aðallega um að Gestapo vill yfirtaka fanga- búðirnar, en herinn, sem gerður er sæmilega mannlegur, berst fyrir því að halda fanga- búðunum áfram undir sinni stjórn. Það kemur einnig nýr fangi til sögunnar og er það banda- ríski leikarinn Robert Wagner, sem fer með hlutverk hans,“ sagði Jón Thor. -A.Bj. Gleðileg tíðindi Spil Muggs komin aftur Guðmundur Thorsteinsson, Muggur teiknaði fyrstu íslenzku spilin árið 1922, og seldust þau fljótt upp. Nú hafa þessi afbragðs skemmtilegu og listrænu spil verið endurútgefin. Verð kr. 975.- og 1950.- (Tvennspilíkassa). Sendum í póstkröfu, burðargjald kr. 320.- FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN Skólavörðustíg 21A - sími 21170

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.