Dagblaðið - 15.03.1977, Blaðsíða 24
Það kemur dagur eftir þennan dag
Samkvæmt náttúrulögmálinu þessa mynd
átti ekki að vera hægt að taka dag skín
Reykjavik í gær. I
sólin ekki á
höfuðborgarbúa: 4-6 stiga hiti
verður með vindstrekkingi á
austan. En — það kemur dagur
eftir þennan dag....
DB-mynd: Hörður.
Flugfargjöld á
Norður-Atlants-
hafsleiðinni
hækka um 7%
— Flugleiðir hækka sín gjöld til samræmis
Bandaríska farþegaflugráðið
samþykkti nýlega að levfa flug-
félögum á Norður-
Atlantshafsflugleiðinni að
hækka fargjöld sín um allt að
25%, en mcðalhækkunin mun
verða um 7 prósent.
Þá hefur kerfinu um vor-,
sumar-, haust- og vetrarfargjöld
verið breytt og það einfaldað
nokkuð. Einnig hefur daga-
fjölda dvalartíma, miðað við
ferðir fram og til baka, verið
breytt í vissum tilvikum.
1 haust varð ljóst að hækk-
anir væru í vændum og hafa
þær nú verið ákveðnar 1. apríl
nk. Var það ekki gert fyrr til að
riðla ekki áætlun fólks um vor-
fargjöld nú.
Blaðið hafði samband við
Sigurð Helgason, forstjóra
Flugleiða, og sagði hann að
félagið myndi einnig hækka sin
fargjöld til samræmis við þetta.
Eftir sem áður yrðu þau lægri á
þessari leið en gerist hjá
öðrum.
Varðandi kerfisbreytingar
sagði hann að Flugleiðir hefðu
hingað til notað sitt eigið kerfi,
sem væri ekki alveg eins byggt
upp og hjá hinum félögunum á
leiðinni. Smávægilegar
breytingar á því kæmu nú
.einnig til framkvæmda 1. apríl
nk.
-G.S.
Smygl fannst íDísarfelli:
Einn tollvörð-
urinn ölvaður
—að sögn vélst jóra skipsins
„Einn tollvarðanna, sem leitaði
í Dísarfellinu, var áberandi ölv-
aður og er ég sagði honum að mér
þætti það óviðeigandi og spurði
hann hverju þetta sætti, sagði
hann það vera hluta af starfi sinu
að taka glas með skipverjum í
þeim tilgangi. að blanda við þá
geði, er kynni að leiða til éin-
hverra upplýsinga," sagði Haf-
steinn Valgarðsson, vélstjóri á
• Dísarfelli í viðtali við DB
í morgun.
Er Hafsteinn var spurður hvort
hann mundi kæra þessa fram-
komu tollvarðarins, sagðist hann
ekki vera ákveðinn enn, enda
hefði hann t.d. ekki blóðprufu af
honum frá því á laugardagskvöld-
ið. Hins vegar drægi hann ekki til
baka að maðurinn hafi verið ölv-
aður.
Tollverðir fundu 108 flöskur af
áfengi i skipinu, 14 kassa af bjór,
9200 vindlinga og nokkuð magn af
niðursoðnu svínakjöti.
Kl. langt gengin tíu í morgun
hafði ekki náðst í fulltrúa toll-
gæzlustjóra, en tollgæzlustjóri er
fjarverandi. Stóð til að kanna við-
brögð Tollgæzlunnar við þessu,
en í viðtali sem Tíminn átti við
fulltrúann í gær, telur hann fulla
ástæðu til að vélstjórinn snúi sér
til embættisins með þessa frásögn
þar sem um sé að ræða brot í
starfi hjá tollverðinum, reynist
þetta rétt.
-G.S.
„Vinsamlegar” viðræður ASÍog ríkisstjórnar:
KRAFIZT ÚTSPILS RÍKISSTJÓRNAR
STRAX Á FYRSTU STIGUM SAMNINGA
Viðræður ríkisstjórnarinnar og
samningamanna Alþýðusam-
bandsins í gær voru „vinsam-
legar“, að sögn samningamanna.
Björn Jónsson, forseti ASl, Tagði
þar áherzlu á, að oftast hefðu
ríkisstjórnir komið inn í
sámningaviðræður á síðustu
stigum þeirra en nú væru litlar
líkur til, að samningar við at-
vinnurekendur færu verulega af
stað, fyrr en ríkisstjórnin hefði
tekið á hlutunum.
Björn fór yfir kröfur ASÍ og
pólitísku ,,ábendingar“. Geir
Hallgrímsson forsætisráðherra
svaraði og ræddi nokkuð almennt
um málin. Samningamenn töldu,
að svar forsætisráðherra hefði
verið fremur „jákvætt".
Menn voru á því, að viðræður
kæmust lítið, fyrr en fram hefðu
komið sérkröfur verkalýðs-
félaganna, sem nú eru í smíðum.
Mættir voru á fundinum
ráðherrarnir Geir Hallgrímsson,
Matthías Á. Mathiesen, Gunnar
Thoroddsen, Olafur Jóhannesson
og Halldór E. Sigurðsson, ásamt
nokkrum aðstoðarmönnum og sér-
fræðingum. Þar voru Torfi Hjart-
arson sáttasemjari: Frá ASl voru
yfir 20 manns.
Rætt var um, að Torfi þyrfti
fleiri menn í lið sáttasemjara.
Ekki var ákveðið, hvenær næsti
fundur yrði.
-HH.
frjálst, úháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 15. MARZ 1977.
Stakkaffrá
árekstursstað
Allharður árekstur varð í
Borgartúni á föstudags-
kvöldið og stakk sá er
ákeyrslunni olli af frá slys-
stað. Er hans nú leitað og
skorað er á hann að gefa sig
fram.
Austin Mini var ekið
austur Borgartúnið og möts
við vörubílstöðina kom vöru-
bíll á móti bifreiðinni og
hélt í vesturátt. Framúr
vörubílnum skauzt ljós-
leit Moskvitch-bifreið. Slóst
hún utan í Austin-bílinn og
skemmdi.
Af árekstrinum varð bæði
högg og hávaði svo bílstjóri
rússneska bílsins hefur ekki
komizt hjá því að verða var
við atvikið. En samt hvarf
hann. Sjónarvottar og bíl-
stórinn sem stakk af eru
beðnir að hafa samband við
lögregluna.
B. Bardot íReykjavík
ígær:
Á leið í
átök við
kanadíska
selveiði-
menn?
Lítil frönsk einkaþota af gerð-
inni Corvette, með einkennisstaf-
ina F-BTTL, lenti á Reykjavíkur-
flugvelli síðdegis í gær og renndi
upp undir Loftleiðahótelið, sem
ekki þykir tíðindum sæta. En það
varð uppi fótur og fit um allan
„rampinn" þegar sjálf Birgitte
Bardot steig út úr vélinni ásamt
föruneyti átta til tíu manna og
hélt inn í Loftleiðahótelið.
Koma vélarinnar hingað var vel
skipulögð, eldsneytisbílar komu
þegar að þotunni og flugmenn-
irnir höfðu fyrirfram unnið ferða-
áætlun áfram og skilað til flug-
stjórnar og voru hröð handtök við
allar framkvæmdir.
Sem kunnugt er, hefur Bardot
nýlega lýst því yfir að hún sé hætt
öllum kvikmyndaleik og hefur
hún snúið sér að fatahönnun sem
starfi en dýraverndun er hennar
aðaláhugamál.
Hún og fylgdariið hennar var
fámált um ferðir sinar í gær, en
fólkið kom frá Frakklandi og
ætlaði næst til Syðri Straum-
fjarðar í Grænlandi, þar sem
þotan þurfti aftur að taka elds-
neyti.
Eftir að Bardot hafði hringt til
Parísar á Loftleiðahótelinu hélt
hún og hennar lið út í þotuna
aftur sem tafarlaust lagði af stað.
Ymsir, bæði starfsfólk á Loft-
leiðum og aðrir þar staddir, náðu
tali af mönnum úr fylgdarliðinu
og kvisaðist þar út að þetta leyni-
ferðalag hennar stæði í sambandi
við andóf gegn seladrápi i
Kanada, en það mun vera að
hefjast um þessar mundir.
Hefur margt frægt fólk tekið
þátt í andófi því og m.a. margir
auðkýfingar boðizt til að leggja
saman í andvirði selskinnanna
handa veiðimönnunum, ef þeir
vilja þyrma selunum, en allt
hefur komið fyrir ekki.
Þota Bardot komin á á að giska 200 km hraða á Reykjavikurflugvelli i gær, rétt fvrir flugtak. DB-mynd: Hörður.
-G.S.