Dagblaðið - 31.03.1977, Page 1
„Stjórnunariegur
veikleikí”
Brunamálastjóri gagnrýnir
slökkviliðið harðlega:
RUNAR BJARNASON,
slökkviliðsstjóri í Reykjavík.
3. ARG. — FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977 — 76. TBL. ' RITSTJÓRN SÍÐUltfU.LA 12, SlMl 83322. AUGLVSINGAR OG AFCTREIÐSLA, ÞVERHÖLTI 2, SÍMI 27022
fijálst
óháð
dagblað
„Eins og á kreppuárunum"
—sagði einn gesta þegar hann sá þröngina
íslenzk matvælakynning:
97 daga í
fangelsi að
ósekju:
Ríkið sýknað
— bls.8
Stjórnvöld
tóku ekki tillit
tilneyðar-
ástandsins
— segja hjúkrunar-
fræðingar — bls. 9
•
Deilur um hvort
raforkatil
húshitunar sé
niðurgreidd
Gísli Jónsson
prófessor svarar
— sjá kjallaragrein
abls. 10-11
Veðrið
„Fyrst það átti að koma
kuldi á annað borð er alveg
eins gott að fá hann strax
áður en gróður er kominn
lengra á leið en nú er,“ sagði
Markús Einarsson veður-
fræðingur í samtali við DB
Það er aðallega á Norður-
landi sem ríkir verulegt
vetrarveður því þar snjóar.
Það er nokkuð öruggt að
það verði norðanátt að
minnsta kosti næstu tvo
daga,“ sagði Markús.
Otlit er fyrir að frost verði
á norðan og vestanverðu
landinu í dag, 5-9 stig.
Heldur hlýrra verður á suð-
austanverðu landinu en þar
verður víðast hvar 2ja stiga
frost.
t nótt varð kaldast í
Reykjavík 5 stiga frost. Kl. 6
í morgun var kaldast á land-
inu 9 stiga frost i Æðey. 5
stiga frost á Akureyri kl. 6
í morgun. A.Bj.
„Þetta er nú eins og á
kreppuárunum, ef allir eru
komnir hingað tíl að fá sér í
svanginn," sagði einn gesturinn
á íslenzku matvælakynning-
unni, sem nú er í Iðnaðar-
mannahúsinu við Hallveigar-
stíg. Þegar DB leit þar inn í gær
var fullt út úr dyrum. Við hitt-
um Pétur Sveinbjarnarson
framkvæmdasijóra íslenzkrar
iðnkynningar meðai gesta.
Hann sagði að aðsóknin hefði
verið miklu betri en menn
hefðu þorað að vona. Búizt
hafði verið við um 500 manns á
dag að meðaltali, en í gær var
útlit fyrir að gestir yrðu hátt á
fjórða þúsund þann daginn.
Daginn áður urðu gestir um
2100 talsins.
Hver dagur sýningarinnar er
helgaður ákveðinni vöru-
tegund. í gær var dagur lag-
metis. Þeir sem koma í heim-
sókn í dag í Iðnaðarmanna-
húsið geta gætt sér á kræsing-
um sælgætisframleiðenda.
Nemendum Öskjuhlíðarskólans
er samt sérstaklega boðið og
þeir fá allir sælgætispoka þegar
farið er út.
Á stalli frammi við inngang-
inn voru alls konar lagmetis-
vörur. Þær voru vinningur
dagsins, sem einhver heppinn
fer með heim til sín.
Það eru 25 fyrirtæki sem
sýna framleiðslu sína í 15
básum. Sýningin verður opnuð
klukkan 12 og er til klukkan 22.
Hún verður opin fram á sunnu-
dag.
KP.
Guðmundur
REmeð
200 tonn
Guðmundur RE krækti sér i
20(1 tonn af loðnu í nótt og var
að leggja að hjá Krossanes-
verksmiðjunni utan við Akur-
eyri snemma i morgun. Loðn-
una fékk Guðmundur RE á
miðunum sem Eggert á Gisla
Arna fann um síðustu helgi,
yzt í Olafsfirði. 200 tonn þóttu
ekki mikið er vertíðin stóð sem
hæst en eru brúkleg núna
þegar litið sem ekkert fæst.
ASt
Ölf usferð í
leyfisleysi
Sjúklingur af Kleppsspítala
tók sér bessaleyfi tii brottfarar
af spítalanum í gær og hóf
„flóttann" með því að stela
bifreið útí fyrir húsinu. Var
tekin upp allvíðtæk leit að
stolna bílnum. Bar hún lengi
vel ekki árangur en svo fór að
ökumaður á sjúkraflutningabíl
á leið frá Þorlákshöfn varð var
við eftirlýsta bílinn á Hellis-
heiði við Þrengslaveg. Var
sjúklingurinn þá á Ieið i bæinn
aftur, en hafði ekið austur í
Ölfus. Talst ðvarbilar
aðstoðuðu tögreglu við að króa
bíl sjúklingsins af við Rauða-
vatn en varasamt þótti að elta
hann uppi með sírenur á. Bíll-
inn sem tekinn var er
óskemmdur og allt fékk þetta
mál rólegan og happasælan
endi.
ASt.
I skinnjakka
blaðakonunnar
Ein af blaðakonum borgar-
innar varð skinnjakka
fátækari eftir að hún sat
blaðamannafund á Hótel Borg
í gær. Var hvarf jakkans til-
kynnt lögreglunni. 1 nótt
fannst svo skinnjakkinn og
skýldi hann þá og vermdi
herðar eins af útigangsmönn-
um borgarinnar. Þaðan var
jakkinn snarlega tekinn og er
nú í höndum rétts eiganda.
ASt.