Dagblaðið - 31.03.1977, Blaðsíða 14
, DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977,
Á stuttum buxum
í listaháskóla
Um þessar mundir sýnir
Baltasar 50 olíumálverk frá
árunum 1976-77 og 40 teikn-
ingar á Kjarvalsstöðum og mun
þetta vera 6. einkasýning hans.
Af þessu tilefni spjallaði undir-
rituð við Baltasar um listferil
hans og viðhorf hans til mynd-
listar á Islandi og í fæðingar-
landi hans, Spáni.
H.S.: Þú ert katalóníumaður,
alinn upp i Barcelona á Spáni,
svo að segja I hjarta álfunnar
með öll elstu menningarlöndin
við bæjardyrnar. Að hvaða leyti
eru katalóniumenn sérstæðir
og menningararfur þeirra frá-
brugðinn því sem aðrir spán-
verjar eiga?
Baltasar: Katalónía var áður
fyrr sjálfstætt furstadæmi, al-
gjörlega óháð Spáni með eigið
tal- og ritmál, katalónsku sem
er skyld máli því sem talað var i
Provence-héraðinu i Suður-
Frakklandi. Þarna hafa í gegn-
um aldirnar farið yfir margir
þjóðflokkar, svo sem grikkir,
rómverjar og gotar. Sum ör-
nefni benda til þess að þarna
hafi farið um norrænir menn.
Uppi í Pyreneafjöllunum í
Katalóníu er t.d. bær sem heitir
Berga sem á sér enga hliðstæðu
í örnefnum Spánar. Rómversku
áhrifanna gætir hvað helst í
byggingarlist og veggmálverk-
um. Við fáum rómverska stíl-
inn mjög þróaðan, frá Ítalíu
yfir Frakkland, og áhrif hans
má sjá út um alla Katalóníu í
Kirkjubyggingum sem flestar
eru frá 10., 11. og 12. öld.
H.S. Það er kannski engin
tilviljun að þeir fáu spánverjar,
sem sest hafa að á tslandi, eru
flestir katalóníumenn?
Baltasar: Nei, við höfum frá
upphafi verið mikil siglinga-
þjóð og því alltaf ferðast meira
en aðrir spánverjar og þar af
leiðandi verið miklu opnari
fyrir utanaðkomandi áhrifum.
Katalónía liggur að landamær-
um Frakklands og í gegnum
þau hafa síast erlendir menn-
ingarstraumar. Ég held að við
höfum þegið eitthvað jákvætt
frá öllum þeim þjóðflokkum
sem þarna fóru um en okkar
mestu listaverk urðu til á róm-
verska tímabilinu. Veggmynda-
gerð var þá á háu stigi enda
hæfði hún vel rómversku kirkj-
unum með sína heilu og
óbrotnu veggi. Við brugðumst
fljótt við til að reyna að bjarga
þessum myndum, kirkjurnar
voru sumar að falli komnar og
ekki um annað að gera en reyna
að flytja veggmyndirnar í róm-
verska safnið í Barcelona sem
nú geymir flesta þessa dýrgripi.
H.S. Hefur þessi sterki og lit-
ríki bakgrunnur ykkar ekki
örvandi áhrif á þá sem ætla að
leggja fyrir sig listnám?
Baltasar: Jú, það var einmitt í
þessum gömlu rómversku
kirkjum sem ég t.d. lærði að
skilja Picasso, því þar fékk ég
bakgrunninn að þróun Mið-
jarðarhafslistarinnar fram á
okkar daga. Ég byrjaði tiltölu-
lega snemma að teikna og þegar
ég var þriggja, fjögurra ára
gamall lékum við oft fjöl-
skylduleik heima sem var
þannig að ég teiknaði eftir
minni andlitsmyndir af vinum
og kunningjum fjölskyldunnar
og síðan áttu þau að geta upp á
því hver væri hver. Þannig
byrjaði ég ómeðvitað að búa
mig undir ævistarfið og þjálfa
sjónminnið. Nú hef ég aftur á
gamals aldri tekið við að rækta
aftur þá eiginleika sem
snemma komu fram hjá mér og
mála nú orðið mikið af portrett-
um.
H.S.: Varstu þá strax staðráð-
inn í þvi að helga þig listinni?
Baltasar: Nei, en þegar ég var
sjö ára gamall voru mér gefnir
fyrstu oliulitirnir af gömlum
manni sem vann hjá föður
mínum. Hann var sjálfur
sunnudagsmálari og tók mig
með sér út að mála. Síðan
hvöttu kennarar mínir mig
mikið, en eins og oft er um
stráka var eitt og annað að
brjótast um í mér. Hafið hafði
alltaf heillað mig og á timabili
vildi ég verða sjómaður en fjöl-
skyldan vildi gera úr mér
lækni. Það fór nú svo að ég fór
að spyrjast fyrir um möguleika
til að komast inn i listaháskóla,
en var auðvitað ennþá allt of
ungur, svona 12—13 ára gam-
all.
Áhuginn var samt orðinn svo
mikill að ég fór upp í listahá-
skólann í Barcelona, sem heitir
löngu fallegu nafni: Escuela
Superior de Bellas Artes de
San Jorge, og spurði einn kenn-
aranna hvort ég mætti ekki
koma þarna til að hreinsa
pensla og sópa gólfið og reyna
að komast að því hvort þetta líf
ætti við mig. Hann tók því vel
og þarna var ég svo meðan ég
lauk menntaskólanámi og
notaði timann vel til að kynna
mér öll efni sem notuð voru og
æfði mig i því að teikna eftir
höggmyndum. Þessi kennari
málaði mikið af portrettum og
frá honum kemur þessi tak-
markalausa virðing mín fyrir
þeirri myndgerð. Stundum
fékk ég að hjálpa honum við að
mála hluta af myndunum og
byrjaði þarna mitt nám á sama
hátt og endurreisnarlistamenn-
irnir sem geng.u sem lærlingar i
vinnustofum meistaranna áður
en listaskólar urðu til.
H.S.: Ef ég man rétt þá gekk á
sínum tíma í sama skóla ekki
alveg ófrægur landi þinn
sunnan frá Malaga, Pablo
Picasso.
Baltasar: Já, ég fékk að þreyta
inntökupróf 14 ára gamall, á
svipuðum aldri og Picasso var
þegar- hann settist í skólann, og
erum við sennilega með yngstu
nemendum sem tcknir hafa
verið inn í skólann. Eitt próf-
verkefnanna var fólgið í því að
teikna nakta fyrirsætu. Ég var
á stuttum buxum, eins og allir
14 ára strákar á þeim tímum, og
næstum eins stór og ég er núna,
og þegar ég birtist rak fyrirsæt-
an upp hlátursöskur sem ég
aldrei gleymi. Ég flaug inn I
skólann, fékk mér síðar buxur
og reyndi að bera mig manna-
lega upp frá því.
H.S.: Hvernig var svo námið
skipulagt?
Baltasar: Námið tók sjö ár og
þar var lögð áhersla á góða al-
hliða menntun. Fyrsta árið er
almennur forskóli sem allir
fara í gegnum. Síðan er hægt að
velja um myndlistar- og högg-
myndasvið sem hvort um sig
tekur fjögur ár. Síðustu tvö
árin eru sameiginieg fyrir bæði
sviðin og þá taka við bóklegar
greinar, svo sem listaheim-
speki, kennslu og uppeldis-
fræði og við útskrifumst síðan
öll með teiknikennarapróf.
Þarna er ekki aðeins verið að
undirbúa fólk, sem ætlar að
leggja fyrir sig frjálsa mynd-
list, heldur dreifast brott-
skráðir nemendur út í ýmsar
greinar á sviði lista. Það er
alltaf stór hluti sem sest í
kennarastöður og verður' með
tímanum listaprófessorar, arki-
tektar, listfræðingar eða leik-
myndateiknarar og þvi á ég í
dag skólasystkini í öllum
hugsanlegum listgreinum á
Spáni. Frá upphafi námsins er
rík áhersia lögð á samvinnu
nemanda og kennara, hér
finnst mér of mikið gert að því
að einangra listnema hvora frá
öðrum og innan einstakra list-
greina. Þessi samvinnuandi
þarna suður frá á eflaust rætur
sínar að rekja til endurreisnar-
listamanna sem unnu jöfnum
höndum að hinum ólíku list-
greinum eins og t.d. Leonardo
og Michelangelo.
Það er stundum sagt að sá
sem er að gutla í of mörgu verði
aldrei neitt en það er ekki alltaf
rétt. Það fer algjörlega eftir
einstaklingnum, ef hann hefur
nægan kraft og úthald þá á það
að vera hægt, að ná góðum ár-
angri á mörgum sviðum, þetta
er jú þegar allt kemur til alls
99% vinna og aftur vinna.
H.S.: Hvaða spánskir meistarar
hafa haft hvað sterkust áhrif á
Þig?
Baltasar: í skólanum vorum við
neydd til að mála mjög klass-
ískt, eftir ákveðnu kerfi sem
sýndi hvort okkur fór fram eða
ekki. Við kópíeruðum allar
gerðir mynda, aðallega verk frá
endurreisninni og fram í há-
barokk, en með endurreisninni
hefst saga nútímalistar. Þú
verður að fara alla leið aftur ,,a
las fuentes", og Baltasar leitar
að íslenska orðinu, þú verður
að leita uppsprettunnar til að
skilja hvernig allt þetta
byrjaði.
I Barcelona hafði ég kynnst
eldri myndum Velasquez en
þeim Velasquez, sem mest hreif
mig, kynntist ég þegar ég fékk
ferðastyrk til Madrid 18 ára
gamall. Þá hafði ég flækst til
Parísar og um Þýskaland en
aldrei komið til höfuðborgar-
innar. Prado-safnið í Madrid er
eitt fallegasta og aðgengilég-
asta listasafn álfunnar, mikið ■
betra en t.d. Louvre-safnið, og
þarna uppgötvaði ég þann
Velasquez sem snýr heim frá
Ítalíu um 1630 og yfirgefur hin
Myndlist
Hrafnhildur Schram
sterku ljós og skuggaáhrif sem
einkenna eldri myndir hans og
fer að mála 1 léttum silfur-
gráum og bláum tónum og það
var sá Velasquez sem snerti
mig strax. Það var sérstaklega
þessi kyrrð sem ríkir í myndun-
um hans sem hreif mig. Siðan
fór ég að stúderá tæknina, hér
var maður sem var langt á
undan sinum tima og ég gat
auðveldlega tengt hann im-
pressionistunum. Það er sér-
staklega ein mynd sem aldrei
hefur horfið úr huga mér og
það er myndin af Innocentíusi
X páfa sem Velasquez málaði í
Róm. Ég hef aldrei reynt að
kópíera hana, en hún eins. og
fylgdi mér alltaf. Því brá mér
hálfpartinn þegar ég upp-
götvaði sálarbróður minn í
breska málaranum Francis
Bacon sem málaði þennan páfa
um 1954 eftir þessari mynd
Velasquez. Við höfum báðir
verið að hugsa um sömu mynd-
ina á sama tima.
Og svo auðvitað Goya. Hann
plataði mig í fyrstu með sínum
léttu og ljósu fyrstu myndum
sem ég sá í Barcelona en í
Prado-safninu sá ég hinar
áhrifamiklu svörtu myndir
hans sem sýna mikla eymd og
þjáningu og þar sýnir hann líka
hvað hann er mikiil málari.
Þarna skildi ég hvað langt er
hægt að komast með dökkum
litum ef rétt er að farið.
H.S.: Það er fyrst núna á þess-
ari síðustu sýningu sem þú
hefur alveg skilið við þinn
þunga akademiska litaskala.
Var það mikið átak að losa þig
undan honum?
Baltasar: Eg hef málað í
þungum og dökkum litum alveg
síðan ég kom til Islands og fram
á síðasta ár. Ég var búinn að
læra þetta og var öruggur á því
sviði. Það var eins og ég þyrfti
að láta ísland síast í gegnum
þetta fyrst og láta minn nýja
stíl mótast af þeim áhrifum sem
Verzlun
Verzlun
Verzlun
Skrifborðssett ímismunandi litum.
Húsgagnaverzlun Reykjavíkur
Brautarholti 2 — Símar 11940 -12691
INNRÉTTINGAR.
Smíðum eldhúsinnréttingar, fataskápa, innihurðir o. fl.
Gerum teikningar og föst tilboð. Leggjum áherzlu á að
gera viðskiptavini okkar ánægða. Hagstæðir greiðsluskil-
málar.
ARFELL H.F. Súðarvogi 28-30,
Arni B. Guðjónsson húsgagnasmíðameistari. Sími 84630.
Ferguson litsjónvarps
tœkin. Amérískir inlínu
myndlampar. Amerískir
transistorar og díóður
0RRI HJALTASON
Hagamel 8,.sírai 16139.
B0RGARLJ0S
Grensósvegi
I
24 — Sími 82660.
Loftlampar
frá kr. 1450.-
Vegglampar
frá kr. 2650.-
Borðlampar
ekta marmari frá kr. 15.000.-
Baðherbergislampar
frá kr. 1380.-
MJÖG HAGSTÆTT VERÐ.
Húsgögn við
allra hœfi
Sflfasett
verð kr.
178.500.-
Góðir greiðsluskilmálar
greiðsluafsláttur.
eða stað-
^cö^
SEDRUS
Súðarvogi 32
Símar 8-40-47 og 3-05-85
Hlaðrdm, bæsuð ígrænu, rauðu, briínu
ogviðarlit
Húsgagnaverzlun Reykjavíkur
Brautarholti 2 — Sfmar 11940 -12691
Þetta
getur þú
sjálfur
gert-
fyrir lítiö...
Syttem Plus er reAefl samen
úr 3 mlsmunendl eteerfler-
einlngum og teeUngum.
Baekllngur
tyrirUggJ.ndl
JU unumuun Buvnawn SlMI 30543
FÖNDUR GEYMSLA FORSTOFA VINNUPLASS
^leikplAss svefnherbergi barnaherbergi STOFA J
SKÚUSOH BJÍKSm BlLOSHOre*'e