Dagblaðið - 31.03.1977, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31, MARZ 1977.
2
Abyrgðarleysi
Katrín Oddgeirsdóttir skrifar:
Á tímabilinu 1.-15. apríl nk.
munu langflestir hjúkrunar-
fræðingar á Landakoti, Borg-
arspítalanum og Vífilsstaða-
spítala hætta störfum. Hér er
um að ræða helming starfandi
hjúkrunarfræðinga á stór-
Reykjavíkursvæðinu.
Tilgangurinn er að vekja
athygli á launastríði hjúkrunar-
fræðinga við hið opinbera.
Ennfremur virðist gæta
mikillar óánægju og öfundar,
að háskólalærðir hjúkrunar-
fræðingar skuli vera í hærri
launaflokki en þeir sem útskrif-
ast frá öðrum hjúkrunar-
skólum. Jafnbreitt er bilið
milli sjúkraliða og hjúkrunar-
fræðinga annars vegar og
hjúkrunarfræðinga og háskóla-
menntaðra hjúkrunarfræðinga
hins vegar hvað snertir launa-
flokka og menntun.
í síðasta tölublaði Verka-
lýðsblaðsins (15. marz) skýra
tveir hinna óánægðu
hj.kr.fræðinga m.a. frá mátt-
leysi félags þeirra við að gæta
hagsmuna félaganna. Jafn-
framt er þess getið að stjórn
Hjúkrunarfélagsins sé ekki
sammála fjöldauppsögnunum.
FjÖldauppsögn hjúkrunar-
fræðinga leiðir til þess að öll
slysavakt færist yfir á Land-
spítalann. Starf á öðrum
spítulum leggst að mestu leyti
niður. Slysavarðstofa Borg-
arspítalans tekur aðeins á móti
alvarlegustu slysum. Ekki þarf
að hugsa lengi til að sjá að hér
er um stóralvarlegt mál ac
ræða. Það er óhrjálegt hlut-
skipti að vera sjúklingur þegar
hluti sjúkrahússtarfsmanna
getur lamað heilbrigðis-
þjónustuna á þennan hátt.
Erfitt á ég með að trúa því
sem segir í áðurnefndri grein í
Verkalýðsblaðinu að læknar
Landakots og Borgarspítalans
styðji aðgerðir hjúkrunar-
fræðinga. (Er ekki kominn tími
til að stöðva þessa skriðu af
frekju og hamagang’i og lita
örlítið í kringum sig.) Ég segi
ekki :meira að sinni en furðu
lftil umræða finnst mér hafa
orðið um þetta mikilvæga mál.
Jakob Hálfdánarson hefur verið Jóni Viðis til aðstoðar að setja
upp hringsjár víðs vegar um landið. Hér sést hann við
uppsetningu á hringsjánni á Kambabrún, sem þvi miður hefur
þegar orðið fyrir eyðileggingu af mannavöldum, þótt vel hafi
verið vandað til hennar.
Örnefni á
„Högg undir belti”
segir Sigurgeir bæjarfógeti
ritstjóri Jónas Kristjáns-
Hr.
son.
Eins og kemur fram í athuga-
semd þeirri, sem ég fékk birta I
Morgunblaðinu hinn 22. þ.m.,
og blað yðar birti að efni til
óumbeðið sama dag, ætla ég
ekki að taka frekari þátt í
þvargi því, sem blað yðar hefur
haldið uppi gegn mér í einar 3
vikur út af því að lögreglu-
maður undir minni stjórn
lógaði einum hundi, sem var á
flækingi á almannafæri í Kópa-
vogskaupstað í sl. mánuði.
Nú hefur blað yðar breytt
aðferð og veitist að mér í gær
með þeim hætti, að ég tel óhjá-
kvæmilegt að láta frá mér
heyra. Er þvíhaldiðfram, að því
er segir í símasamtali við „dýra-
vin“, að ég leyfi mági mínum að
hafa hund hér í umdæmi, þó að
ég standi fyrir slátrun á hund-
um annarra borgara hér í bæn-
um. Með þessu er mér borið á
brýn eitt hið versta brot, sem
hent getur mann, sem gegnir
trúnaðarstöðu I dómgæslu- og
lögreglustjórn.
Því miður er það rétt að
systir mín og mágur eru meðal
þeirra mörgu borgara hér í bæ,
sem gerst hafa lögbrjótar að
þessu leyti, en eins og kom
fram í grein minni frá 22. þ.m.,
— svo ekki varð um villst —
þá hefur því miður nánast
engri löggæslu verið haldið
uppi í þessum málum I nærri 8
ár, annarri en þeirri, sem felst í
töku og lógun hunda, sem náðst
hefur til á flækingi.
Ég hef ekki látið ryðjast inn
á heimili systur minnar til þess
að taka hund þeirra hjóna á
meðan aðrir Kópavogsbúar,
sem hafa haft hunda sína í
vörslu.hafa verið óáreittir (af
ástæðum, sem ég ber ekki
ábyrgð á).
Því er nefnilega þannig varið
í mínum augum, að jafnframt
því að vinir eða skyldmenni
yfirvalda eða dómara eiga ekki
að njóta þess að vera vinir eða
skyldmenni, þá eiga sömu
aðilar ekki heldur að gjalda
þess. Ég get rétt hugsað mér
hvaða kveðjur ég hefði fengið
hjá Dagblaðinu ef ég hefði látið
til skarar skríða gegn heimili
systur minnar út af lögbroti,
sem aðrir fengju að komast upp
með.
Ég hef ekki á alllöngum ejpb-
ættisferli kveinkað mér við að-
finnslum og jafnvel árásum.
Hef ég eftir bestu getu reynt að
svara og gera grein fyrir mál-
um frá minni hlið. Um leið og
ég svara þessari síðustu árás
Dagblaðsins á mig, vil ég leyfa
mér að halda því fram, að hún
myndi á máli hnefaleikamanna
hafa verið kölluð högg undir
belti, svo mikið angur og ama
hef ég haft af lögbroti því, sem
Dagblaðinu þóknaðist að geta
um í gær.
Bréf þetta er sent yður með
ósk um birtingu.
Kópavogi, 30. mars 1977
Sigurgeir Jónsson.
Smekkleysa af hálf u
Skáksambandsins
—að bjóða Fischer hingað um leið og Spassky
hringsjár -
mannanöfn
í blöðin
Jakob Hálfdánarson skrifar:
Mér brá heldur betur í brún,
er ég kom við á Kambabrún og
skoðaði hringsjána sem þar var
sett upp fyrir rúmu ári. En
svo sem kunnugt er þá eru
hringsjár settar upp víðs vegar
á landinu til þess að ferðafólk
geti betur glöggvað sig á
örnefnum. Þessa setti Vega-
gerðin upp og var mjög til
hennar vandað. Meðal annars
var hún lökkuð til þess að hún
yrði ekki græn eins og kopar
verður gjarnan með tímanum,
en þá verður erfitt að lesa á
hana.
Lakkið var valið í samráði við
efnaverkfræðing með tillili til
þess að það þyldi veður og
vinda. Engum datt í hug
skemmdarverk.
Þegar ég kom þar við i
janúar.sl. voru einhverjir sem í
sviðsljósinu vilja vera, búnir að
krota upphafsstafi sina a
skífuna. Taldi ég þar 12, sem
verið hafa að verki. Mánuði
seinna fór ég til þess að laga
skífuna og voru þá þrír i viðbót
búnir að krota á hana.
Ég var í eina 3 tíma að skafa
af lakkið til þess að reyna að ná
þessu kroti af, það tókst þó ekki
að ná af nema 6 merkingum, en
eftir urðu 9. Mín von er sú, að
nöfnin • hverfi smám saman,
þegar skifan verður nú óhjá-
kvæmilega græn, þar sem ekk-
ert lakk er á henni lengur.
Við vitum auðvitað, að
mörgum þykir gaman að sjá
nafn sitt einhvers staðar á
áberandi stað. Sumir eru þó
það feimnir að þeir vilja aðeins
hafa upphafsstafi stna. Mér
finnst auðvitað sjálfsagt, að
menn geti veitt sér þetta. Þess
vegna leyfi ég mér að stinga
upp á þvi við dagblöðin, að þau
hafi einn afmarkaðan reit, t.d.
hjá lesendadálkunum, þar sem
menn gætu fengið að rita eigin
hendi nöfn stn og þá jafnvel
meó fullu heimilisfangi, ef þeir
þurfa enn meiri útrás.
Elsa hringdi:
í sambandi við hugdettu
stjðrnar Skáksambandsins um
að bjóða Fischer til íslands
meðan Spassky ér hér, vil ég
koma á framfæri þeirri skoðun
minni að hér sé um algera
smekkleýsu að ræða. Það hljóta
að vera margar sárar minning-
ar tengdar siðustu íslandsdvöl
Spasskys og vart á það bætandi
að fara að bjóða Fischer hingað
einmitt núna. Ég skil ekki
hverni'g mennirnir láta sér
detta svona lagað í hug og að
engar raddir hafi heyrzt gegn
þessu enn sem komið er.
Þá finnst mér og smekklaust
að vera að sýna þessa mynd af
skákeinvíginu 1972 og láta
Spasský horfa á þetta með konu
sinni og fleiri áhorfendum. Þð
að Spassky sé hógvær maður og
stilltur þá mátti lesa það úr
viðtalinu við hann í Mbl. að
honum sárnaði þó hann segði
annað.
Dyntött og hrokafull fram-
koma Bobby Fischers á skák-
mótinu hefur vafalaust átt sinn
stóra þátt í því hvernig fór.
Spassky ræðir við Sæmund Pálsson lífvörð Fischers hér á landi 1972. i baksýn er Guðmundur G
Þórarinsson, skákfrömuóur.
V