Dagblaðið - 31.03.1977, Page 5
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977.
5
Alvariegar ásakanir
á hendur slökkviliðs-
Efast um að slökkviliðsstjori beri
næga umhyggju fyrir heilsu og öryggi
slökkviliðsmanna
stjóra
Slökkviliðsmenn í Reykjavík
hafa látið í ljðs „efasemdir um að
slökkviliðsstjóri beri næga um-
hyggju fyrir heilsu og öryggi
slökkviliðsmanna,“ að því er segir
i skýrslu Brunamálastofnunar
ríkisins til borgarstjðrans í
Reykjavík.
Rituðu fulltrúar slökkviliðs-
manna borgarstjóra, Birgi ísleifi
Gunnarssyni, tvö bréf um reyk-
köfunarmál Slökkviliðs Reykja-
víkur þar sem fram komu þungar
ásakanir á slökkviliðsstjórn og
stjÓTn slökkviliðsins. Öskaði
Birgir ísleifur þá eftir að Bruna-
málastofnun ríkisins kannaði til-
tekin atriði varðandi reyk-
köfunarmál Slökkviliðs Reykja-
víkur og skilaði sér skyrslu þar
um. Var skýrsla lögð fram á fundi
borgarráðs í fyrradag.
Æfingarnar
„skolialeikur“
Segir m.a. i skýrslunni, sem er
undirrituð af Bárði Daníelssyni
brunamálastjóra, að æfingar í
reykköfun hjá Slökkviliði Reykja-
víkur likist fremur skollaleik en
alvöru þjálfun og þar við bætist
að það virðist nær eingöngu háð
geðþótta aðstoðarvarðstjóranna
Slökkviliðsmenn í Reykjavík á
æfingu með reykköfunartækin.
Vonandi verða þeir ekki fyrir
slysum, segir Rúnar.
hvort þessar svokölluðu æfingar
séu haldnar, þar eð þær séu ekki
háðar reglubundnu eftirliti.
Rúnar Bjarnason slökkviiiðs-
stjóri hefur skilað umsögn um
skýrslu brunamálastjóra til borg-
arstjórans og lýsir Rúnar þar
ánægju sinni með skýrsluna.
í fyrra bréfi fulltrúa slökkvi-
liðsmannanna til borgarstjóra 21.
janúar sl. er þess óskað að borg-
arráð láti hlutlausan aðila gera
könnun á reykköfunartækjum
slökkviliðsins svo hægt væri „að
fá úr því skorið hvort tækin og
meðferð þeirra uppfylli þær
öryggiskröfur, sem gera verður til
slíkra tækja fyrir atvinnuslökkvi-
lið.“
Tœki brugðust
„þegar verst gegndi“
Astæðan til þessarar málaleit-
unar var sögð vera sú að reykköf-
unartæki af gerðinni Mandet
Due-3000, sem slökkviliðið tók í
notkun 1975, „hafi brugðist þegar
verst gegndi". Er þar átt við brun-
ann í Æsufelli 2 í vetur.
í seinna bréfi slökkviliðsmann-
anna koma fram alvarlegar ásak-
anir á hendur slökkviliðsstjóra
um ástand reykköfunarmála hjá
slökkviliðinu.
Eru tilfærð dæmi um alvarleg-
ar bilanir á reykköfunartækjum,
látnar í ljós efasemdir um að loft
það sem þjappað er á kúta tækj-
anna sé nægilega hreint og
hleðsla þeirra sé einnig að öðru
leyti handahófskennd, þar sem
leiðbeiningar um notkun loft-
þjöppu þeirrar sem notuð er við
hleðslu kútanna séu ekki tiltæk-
ar.
Miklir stjórnunargallar
ó slökkviliðinu
Slökkviliðsmennirnir staðhæfa
í þessu bréfi að kvörtunum starfs-
manna um bilanir á tækjum hafi
iðulega ekki verið sinnt og loks
eru látnar í ljós fyrrgreindarefa-
semdir um að slökkviliðsstjóri
beri næga umhyggju fyrir heilsu
og öryggi slökkviliðsmanna. Til
dæmis hafi slökkviliðsstjóra lengi
verið kunnugt um að ekki væri
allt sem skyldi með reykköfunar-
tækin.
Á fundi sem haldinn var með
slökkviliðsmönnum og fulltrúum
Brunamálastofnunar ríkisins 24.
febrúar komu fram fleiri ásakan-
ir' „og ekki síður alvarlegar en
hinar fyrri“, að því er segir í
skýrslu Bárðar Daníelssonar.
Þær eru: „Að öll kennsla og
þjálfun reykkafara hjá Slökkvi-
liði Reykjavíkur sé og hafi verið i
molum allt frá þvi að norskur
kennari kenndi hér á reykköfun-
arnámskeiði, sem haldið var á
vegum SR árið 1967.
Að miklir gallar séu á SR
stjórnunarlega séð. Til dæmis sé
það undir hælinn lagt, hvort
kvartanir um galla eða bilanir á
tækjum komist til skila. Ennfrem-
ur, að skoðaskiptum milli undir-
manna og yfirmanna um það,
hvernig koma megi í veg fyrir að
mistök við slökkvistarf endurtaki
sig, hafi ekki verið komið á í
nægilega ríkum mæli.“
Rúnar kennir
um peningaleysi
Þann 3. marz var haldinn annar
fundur um málin þar sem voru
m.a. slökkviliðsstjóri og Tryggvi
Ólafsson eftirlitsmaður reykköf-
unartækja. Komu þar fram stað-
festingar á meginatriðum gagn-
rýni slökkviliðsmannanna, en
„skilja mátti slökkviliðsstjórann á
þann veg, að vöntun á aðstöðu til
reykköfunaræfinga stafaði m.a.
af því, hversu þröngur stakkur
slökkviliðinu hafði alla tió verið
skorinn fjárhagslega,“ eins og
segir í skýrslunni til borgarstjóra.
Itarleg könnun hefur verið
gerð, bæði af hálfu Slökkviliðs
Reykjavíkur og Brunamálastofn-
unar ríkisins, á þeim reykköfun-
artækjum sem SR hefur yfir að
ráða. Segir í niðurstöðum Bruna-
málastofnunarinnar að „yfir-
gnæfandi líkur (séu) á þvi, að
bilanir þær, sem fram hafa komið
í tækjunum, stafi af ónákvæmri
stillingu þeirra og ófullkomnu
viðhaldi. Sá hættulegi misskiln-
ingur virðist hafa rikt á
slökkvistöðinni, að þá fyrst
þyrfti að gera við tæki, er bilun
hefði komið fram.“
„Enginn flugmaður myndi
fljúga vél upp ó
þau bítti...“
Er vísað til bandarískra,
sænskra og v-þýzkra reglna um
viðhald reykköfunartækja og seg-
ir að meginreglan sé sú, að við-
hald tækja sé fyrirbyggjandi.
Brunamálastjóri gerir samlikingu
og segir: „Enginn flugmaður
myndi fást til að fljúga vél upp á
þau bítti, að þá fyrst yrði gert við
hana, er hún bilaði. Störf reyk-
kafara og flugmanns eru að því
leyti hliðstæð, að báðir geta átt líf
sitt undir því, að tæki þeirra bili
ekki.“
Gerðar eru ákveðnar tillögur
um úrbætur. I umsögn Rúnars
Bjarnasonar slökkviliðsstjóra um
skýrslu Brunamálastofnunarinn-
ar kemur fram að þær tillögur
hafa verið teknar til greina og
hrundið í framkvæmd að nokkru
leyti.
Ábyggjur Brunamála-
stofnunar rlkisins
Lokaorð skýrslu brunamála-
stjóra eru á þá leið, að „að sjálf-
sögðu ætti að leysa mál sem þetta
innan veggja slökkvistöðvarinn-
ar. Sú staðreynd, að það tókst
ekki, bendir til stjórnunarlegs
veikleika... Brunamálastofnun
ríkisins hefir áhyggjur af þvi,
hvernig þessi mál hafa þróast og
væntir þess, að sem fyrst dragi
saman með mönnum á ný.“
Slökkviliðsstjóri vísar aftur á
móti í umsögn sinni til fundar-
gerðar frá fundinum 24. febrúar
þar sem frám hafi komið að aliar
ástæður fyrir ásökunum á hendur
■sér væru tengdar reykköfunar-
málum. Síðan segir Rúnar Bjarna-
Rúnar Bjarnason slökkviliðsstjóri: Efasemdir um að hann beri „næga
umhyggju fyrir heilsu og öryggi slökkviliðsmanna".
son: „Er þess að vænta, að þetta
eina ádeilumál skuli nú leysast
farsællega, og vona ég að hér eftir
sem í öll þau tfu ár, sem hefur
verið unnið að reykköfunarmál-
um hér f liðinu, verði reykkafarar
ekki fyrir slysum í sinu hættulega
starfi...." -ÓV.
Ný sending
af loftljósum
i i böð og eldhús
Ennfremur
hentug í ganga.
svefnherDergi. stofur
og utan dyra
LJOS & ORKA
Suóurlandsbraut 12
84488