Dagblaðið - 31.03.1977, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1977. __
Stjórnvöld tóku ekki
„Ljóst er að stjórnvöld ætla
ekki að taka tillit til þess að
algert neyðarástand á sjúkra-
húsum á höfuðborgarsvæðinu
hefði skapazt hefðu hjúkrunar-
fræðingar gengið út 1. og 15.
apríl nk.“ segir í fréttatilkynn-
ingu sem hjúkrunarfræðingar á
Borgarspítalanum, Landakots-
spítalanum og Vífilsstöðum
sendu frá sér.
Hjúkrunarfræðingarnir hafa
því tekið þá ákvörðun að beiðni
stjórnar Hjúkrunarfélags Is-
lands að fresta framkvæmd
uppsagna fram yfir gildistöku
sérkjarasamnings Hjúkrunar-
félagsins og fjármálaráðuneyt-
isins og Reykjavíkurborgar og
til þess að sjá hverjar efndir
verða á þeim loforðum sem bor-
izt hafa skriflega frá fjármála-
ráðherra og borgarstjóra, um
að mál þeirra hljóti sérstaka
meðferð í komandi samningum.
Þá segir m.a. áfram í frétta-
tilkynningunni: „Orsök upp-
sagna var úrskurður kjara-
dóms, sl. haust, en þar fengu
hjúkrunarfræðingar eins
launaflokks hækkun — sem
samsvarar kr. 3.113 — Þetta
olli almennri óánægju og reiði
og hófust uppsagnir strax og
kjaradómur hafði verið birtur.
Aðeins u.þ.b. helmingur
hjúkrunarfræðinga eru í starfi
1 dag. Ljóst er af þessu að erfitt
er að fá hjúkrunarfræðinga til
starfa og skapast því mjög auk-
ið álag á þá sem eru í starfi.
Segja má að á fæstum deild-
um sé skipað í þær stöður
hjúkrunarfræðinga sem leyfi
er fyrir. Veldur þetta alvarleg-
um vandræðum einkum yfir
sumarmánuðina. Hjúkrunar-
fræðingar fá oft ekki samfelld
sumarleyfi, auk þess sem nýt-
ing sjúkrarúma verður ekki
sem skyldi.
102.440. Eftir 4 ára starf hækka
laun í 109.148 kr. eru það hæstu
laun sem hjúkrunarfræðingar
geta fengið, nema stunda næt-
ur- kvöld og helgidagavinnu,
sem er mjög erfið bæði líkam-.
lega og félagslega. Það leiðir til
þess að hjúkrunarfræðingar
endast stutt í starfi. Fyrir
hverja unna klukkustund í
kvöld-, nætur og helgidaga-
vinnu bætist við álag, kr. 217 á
tímann, þannig fær hjúkrunar-
fræðingur fyrir unnið laugar-
dagskvöld álag' sem nemur kr.
1.736 kr.
Kaffitimar sem sífellt eru
eins vaktavinnufólki I fullu
starfi.
Hvað barnaheimilum stofn-
ana ríkis og borgar viðvíkur
skal það tekið fram að þau eru
opin á tímabilinu 7.20 til 17.30
og 19 og nýtast því vaktavinnu-
fólki ekki sem skyldi. Gjald fyr-
ir hvert barn er kr. 14 þús. á
mánuði og er hið sama og á
barnaheimilum Sumargjafar.
Þess skal getið að stofnanirnar
reka barnaheimili i eigin þágu
og veita forgang þeim starfs-
mönnum sem mest þörf er fyrir
á hverjum tíma.“
EVI
KÖKUVEITINGAHUS
VIÐ AUSTURVÖLL
—er ítengslum við 9 samliggjandi
fyrirtæki físafoldarhúsinu
Isafoldarhúsið í Austurstræti
hefur tekið óhemju breytingum
að undanförnu auk þess sem hús-
ið hefur meira og minna verið
endurbyggt og hafa níu fyrirtæki
nú komið sér þar fyrir.
Er þetta hugsað sem yfirbyggð
göngugata með öllu tilheyrandi
þ.á.m. konditori, eða kökuveit-
ingahús, sem þekktari eru t.d. í
Danmörku, Þýzkalandi og Frakk-
landi en hér.
Ungur bakarameistari, Birgir
Páll Jónsson, hefur komið því
upp og hefur vinna á staðnum
ekki tekið nema tvo mánuði. Eftir
að hafa dvalizt erlendis fannst
honum þess háttar veitingastað
vanta hér.
Að loknu námi stofnsetti hann
Nýja Kökuhúsið við Fálkagötu og
nú hefur hann hrint veitingahús-
hugmyndinni í framkvæmd. Litla
teiknistofan í Hafnarfirði, sem
innanhússarkitektarnir Óli G.H.
Þórðarson og Lovísa Chrjstiansen
reka, teiknuðu innréttingar og
skipulögðu verkið.
I sumar verða nokkur bílastæði
aflögð við Austurvöll og skapast
þá aðstaða til útiveitinga sem fyr-
irhugaðar eru. Veðursælt er þar í
horninu.
Til þess að kynna sér nánar
svona rekstur fór Birgir Páll til
Danmerkur og Þýzkalands en að
þeirri ferð lokinni sendi hann
annan bakara sinn til Kaup-
mannahafnar til að fullnema sig
í bakstri fyrir svona veitingahús.
Fyrirhugað er að gera tilraun til
að hafa opið eitthvað fram eftir
kvöldum i sumar.
-G.S.
Hvers konar gómsætar kökur verða á boðstólum og sér danskmeimt-
aður bakari um gerð þeirra. DB-mynd llörður.
Arkitektarnir Óli G.H. Þórðarson og Lovísa Christiansen ásamt eigandanum, Birgi Páii Jónssyni.
DB-mynd Hörður.
Sýningar á Fjalla-Eyvindi íFæreyjum:
„Innihaldið er ógvuliga álvarsamt”
— segja f æreysku blöðin um leikritið
Frá sýningu ungmennafélagsins Sólarris á Fjalla-Eyvindi Jóhanns
Sigurjónssonar.
Nei, tað hevði hann ikki sæð
fyrr. Soleiðis var orðalagið
teirra millum ikki „fyrr“.“
Svo segir i færeyska blaðinu,
sem að lokum hvetur fólk til að
fara og sjá sýninguna, það sé
vel þess virði.
-ÓV
Nýjasta tölva með hornaföll-
um frá CASIO
Fljótandi kristall í stafa-
borði, notar aðeins 1 raf-
hlöðu. Þykkt 14 mm. Lengd
128 mm. Breidd 67 mm.
Þyngd 93 g. Smellur í brjóst-
vasann. Verð kr. 12.900.
CASI0 umboðið
STÁLTÆKI
Vesturveri. S. 27510.
„Innihaldið er ógvuliga ál-
varsamt," segir færeyska blaðið
14. septemberum Fjalla-Eyvind
Jóhanns Sigurjónssonar sem
verið er að sýna í Færeyjum um
þessar mundir. Undirtektir
hafa verið mjög góðar, nær
3000 manns hafa séð leikinn.
Það er ungmennafélagið Sól-
arris í Húsavík í Færeyjum sem
sýnir Fjalla-Eyvind þar ytra.
Hefur leikurinn verið sýndur
bæði I Húsavík og Þórshöfn og
hefur komið til tals, að sögn 14.
september, að sýna víðar.
Leikarar eru allir færeyskir
og leikstjórinn sömuleiðis.
Petra Djuurhus þýddi leikritið
á færeysku árið 1941.
Til gamans skal gripið niður i
frásögn 14. septembers af
leiknum:
„I fjórða og seinastaparti
síggja vit Eivind og Hallu aftur.
Tey eru nógv broytt bæði
likamliga og sálarliga. Pínd af
svongd, kulda og allari neyð
sita tey og kutast um, millum
annað, hvör hefur skuldina.
Tey eru ónd hvört við annað.
Já, Halla spyr Eivind: „Hvör
var tað, sum stjól? Var tað eg?“
Og Eivindur aftur ímóti: „Tú
ert ljót. Aldri havi eg sæð fyrr,
hvussu ljót tú ert...“