Dagblaðið - 31.03.1977, Qupperneq 24
m
Irjálst, nháð Hagblað
B'IMMTUDAGUR 31. MARZ 1977.
„Gæti orðið
þvælnara en
ífyrra”
—rætt við
samningamenn í
kjarasamningum
Friðrik í
forystunni
í Sviss
— Helgi eygir
alþjóðameistara-
titil ÍUSA
fyrirfundinnígær
„Við undirskrifum í dag,“ sagði
einn fulltrúi verkamanna. „Nei,
við förum á hausinn, ef við göng-
um að ykkar kröfum," svaraði
Ölafur Jónsson, . framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands-
ins.
Þannig var andrúmsloftið létt,
áður en samningafundir hófust,
nýtt, „einvígi'' í Kristalsal Hótels
Loftleiða í gær.
„Menn eru að takast í hendur
eins og glímumenn í byrjun viður-
eignar,“ sagði Geir Gunnarsson
alþingismaður, sem situr í sátta-
nefnd í kjaradeilu Alþýðusam-
bandsins og atvinnurekenda. Dag-
blaðsmenn tóku nokkra foringja
tali, áður en samningafundur
hófst á Hótel Loftleiðum í gær.
„Við förum á höfuðið,“ sagði
Olafur Jónsson.
Smjöríð þrefalt
dýrara hér, kjúkl-
ingar fimmfalt
Verðá '
land-
búnaðar-
vörum á
íslandi og í
Danmörku
Smjörkílóið kostar nú 551
krónu íslenzka í heildsölu í
Danmörku en hér er heildsölu-
verðið á smjöri um þrisvar
sinnum ' hærra. Verðið á
kjúklingum er næstum fimm
sinnum hærra hér.
Heildsöluverðið á smjöri hér
eru 1100 krónur og niður-
greiðslur 433 krónur hvert kíló.
Niðurgreiðslurnar greiða menn
með sköttunum. Hið raunveru-
lega heildsöluverð, sem búð-
irnar kaupa inn á„ er því 1533
krónur á kílóið hér.
Kílóið af kjúklingum, bezti
gæðaflokkur, kostar í Dan-
mörku sem næst 165 krónur
íslenzkar í heildsölu. Hér kaupa
búðirnar kílóið á heildsöluverð-
inu 765 krónur.
Fjörutíu og fimm prósent
ostur kostar í Danmörku um
392 krónur kílóið í heildsölu
en hér er kílóið á 847 krónur í
heildsölu en engin niður-
greiðsla. Ostverðið er þvi rúm-
lega tvöfalt hér.
Kílóið af eggjum kostar 181
krónu í heildsölu í Danmörku
en nú mun heildsöluverðið hér
vera sem næst 420 krónur
kílóið, eða meira en tvöfalt
hærra.
Svínakjöt í heilum skrokkum
er nú í bezta gæðaflokki á um
289 krónur í heildsölu í Dan-
mörku en hér kaupa búðirnar
það inn fyrir 570 krónur kílóið,
sem er um tvöfalt hærra, sam-
kvæmt upplýsingum úr
verzlunum.
Kartöflukílóið er á um 40
krónur í heildsölu í Danmörku
en nálægt 103 krónum hér, eða
meira en tvöfalt dýrara. Niður-
greiðslur eru nú engar á
kartöflum.
Þrátt fyrir þetta er kaup í
Danmörku gjarnan tvöfalt
hærra en hér eins og kunnugt
er.
Miðað við framangreindan
samanburð á verði geta menn
vissulega íhugað hvort ekki
borgaði sig fyrir íslendinga að
flytja landbúnaðarvörur þessar
inn við ákveðiri skilyrði.
Heimildir eru,- í Danmörku,
landbúnaðarráðið og hér
heima hefur verðið og niður-
greiðslurnar verið fengið hjá
verzlunum Sláturfélagsins og
Upplýsingaþjónustu land-
búnaðarins. —HH
Nýtt „einvígi” í Kristalsal
Alþingismennirnir Geir Gunnarsson og Karvel Pálmason gegna mismunandi hlutverkum í samning-
unum. Geir er i sáttanefndinni og á að „passa“ Karvel og aðra þá, sem eru i sjálfum siagnum.
Geir sagði, að þetta gæti orðið
þvælnara nú en i fyrra, vegna
þess að meira vald væri nú í hönd-
um sérsambanda verkalýðsfélag-
anna og tiltölulega minna vald
hjá ASl.
Annars væri þetta mest „pro
forma" fundur, taldi Geir. Hann
kvaðst að minnsta kosti vonast til,
að ekki yrðu eins langar vökur í
þessum samningum og voru í
sjómannasamningunum, þar sem
Geir var einn sáttasemjara í
fyrra. „Síðasti fundurinn stóð í 60
tíma,“ sagði Geir.
Hann benti á, að tímamunur
væri nú milli samninga ASl-
félaganna almennt og sjómanna.
Samningar ASÍ renna út 1. maí,
en sjómannasamningarnir ekki
fyrr en 15. maí.
Olafur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambands-
ins, sagði, að fundir væru á
morgun og hinn daginn um sér-
kröfur. Því væri nú töluvert
unnið, enda mundi ekki af veita.
Það gæti verið erfiðara að semja
nú en í fyrra, vegna þess að meira
vald væri í höndum sérsamband-
anna.
Menn flýttu sér að taka niður í
Kristalsal Hótel Loftleiða og afmá
merkin um skákeinvígið en búa
allt í haginn fyrir samningafund-
inn í gær. Þar var komið fjöl-
menni frá báðum aðilum. HH
Eftir skákirnar 1 Sviss í gær-
kvöldi deilir Friðrik Ólafsson
nú efsta sætinu með Dezind-
zinchasmili frá ísrael og Pach-
man frá Vestur-Þýzkalandi, en
skák Friðriks og hins fyrr-
nefnda endaði með jafntefli í
gærkvöldi. Guðmundur Sigur-
jónsson, sem setið hefur hjá í
einni umferð er eftir fjórar
umferðir með tvo vinninga og
eina biðskák síðan í gærkvöldi
við Liberzon. Hann er talinn
hafa heldur lakari stöðu.
Hinn ungi skákmaður okkar,
Helgi Ölafsson, sem um þessar
mundir teflir í Lone Pine í
Bandaríkjunum, tapaði bið-
skák sinni í gær við Mayer en
vann hins vegar skák sina við
Tisdall síðar um daginn. Er nú
alþjóðameistaratitill hans í
sjónmáli og vinni þann í
níundu og síðustu skákinni
sem eftir er, er titillinn raun-
veruleiki. Öljóst er enn við
hvern hann teflir.
Af áskorendaeinvígjunum
er það að frétta að Polu-
gajevski er með 5Yi vinning á
móti 4'A vinningi Meckings og
eiga þeir eina biðskák.
Kortsnoj þarf nú bara að halda
jöfnu til að sigra Petrosjan en
sá fyrrnefndi hefur nú sex
vinninga á móti fimm. Eina
von Petrosjans er að sigra í
síðustu skákinni og fá þannig
framlengingu. Sem kunnugt er
hefur Larsen nú tapað fyrir
Portisch, og Hort og Spassky
tefla ekki í Reykjavík fyrr en
eftir tæpa viku.
G.S.
Tillaga
þingmanna
úröllum
flokkum:
Bernhöftstorfa
verð/ vemduö
hætt við stjórnarráðshús þar
Nær óf ært
á Húsavík
1 nótt kyngdi niður snjó á
Húsavík og þar um kring. Var
svo komið í morgun að fólks-
bilum var ekki fært nenia um
einstakar götur i bænum. Þrátt
fyrir þetta gekk lífið á Húsavfk
sinn vanagang. Húsvíkingar
eru ýmsu vanir þegar um snjó
er að ræða á þessum tíma árs.
ASt.
„Erfiðar og
strangar viðrœður“
„Þetta verða vafalaust erfiðar
og strangar viðræður," sagði
Karvel Pálmason alþingismaður,
sem er í samninganefnd Alþýðu-
sambandsmanna. „Ég get á þessu
stigi ósköp lítið sagt um viðbrögð
atvinnurekenda, en óttast, að þeir
séu ekki tilbúnir að ganga eins
langt og hægt er," sagði Karvel.
„Eg vil heldur ekki á þessu
stigi segja neitt um verkföll."
Þórir Danielsson, Verkamanna-
sambandinu, kvaðst ekki búast
við neinum útspilum í þetta sinn
Þingmenn úr öllum flokkum
báru í gær fram tillögu um
verndun Bernhöftstorfunnar.
Þar er lagt til að Alþingi
skori á ríkisstjórnina að hverfa
frá þeirri ákvörðun að reist
skuli ný stjórnarráðsbygging á
spildunni við Bankastræti,
Skólastræti og Amtmannsstíg í
Reykjavík. Með því að hætta
við þetta skuli stuðlað að því að
endurbygging og lagfæring á
Bernhöftstorfu geti hafizt
þegar í stað.
Flutningsmenn eru Ellert B.
Schram (S), Ingvar Gíslason
(F), Magnús Torfi Olafsson
(Samtökunum), Eðvarð
Sigurðsson (AB) og Gylfi Þ.
Gíslason (A).
Þeir minna á að fyrir liggur
tuttugu ára gömul ákvörðun
um að stjórnarráðsbygging
skuli reist á þessu svæði. Á
síðustu árum hafi andstaðan
gegn því vaxið. Þar komi hvort
tveggja til: I fyrsta lagi, að til
þess þyrfti að rífa eða fjarlægja
húsin á Bernhöftstorfu, og í
öðru lagi leyfi skipulag og
aðstæður ekki svo stóra bygg-
ingu sem gert er ráð fyrir að
nýtt stjórnarráðshús verði,
segja þingmennirnir. -HH