Dagblaðið - 18.04.1977, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1977.
Eldra fólk truflar
leiksýningu i Iðnó
Tvær stallsystur skrifa:
Rétt fyrir páska fórum viö i
leikhús, nánar tiltekið í Iðnó.
Við érum fastagestir og höfðum
hlakkað mikið til að fara á
þessa sýningu. En þvílik von-
brigði er leið á sýninguna. Ekki
var það leikritinu né leikend-
unum að kenna, við vorum
ánægðar með leikritið og leik-
urinn var frábær. En það voru
nokkrir gestir í salnum sem
eyðilögðu alveg alla stemmn-
ingu og ánægju af leiknum. Er
út var komið sáum við rútu svo
þetta hefur greinilega verið
hópferð. En fólkið í þessari
hópferð hefur að meðaltali ver-
ið á aldrinum 60-70 ára. Þegar
leikritið var hálfnað og spenna
farin að færast í leikinn varð
vart líft í salnum fyrir upp-
hrópunum svo sem: „Guð minn
almáttugur“, „þetta er ekkert
stykki“, „það er bara framhjá-
hald eins og að drekka kalt
vatn“ og svo lá við að söguþráð-
urinn væri rakinn í háværu
hjali, sjálfsagt vegna einhvers
heyrnardaufs sessunautar. Við
spyrjum eins og ein frú spurði
forðum daga „er hægt að bjóða
fólki upp á þetta"? Við viljum
ekki loka leikhúsunum fyrir
eldra fólki, þvert á móti, en við
gátum bara ekki á okkur setið
eftir að hafa lesið grein eftir
fyrrnefnda frú er hún kvartaði
yfir skólasýningu. Við erum
báðar að ljúka námi við einn
framhaldsskóla hér í borg og
höfum þess vegna átt kost á
allmörgum skólasýningum und-
anfarin ár. Aldrei áður höfum
við orðið varar við truflanir af
nokkru tagi. En þessi sýning
sem fullsetin var virðulegum
eldri borgurum var vægast sagt
ákaflega ergjandi og hávaðinn
eyðilagði nánast alla ánægju af
leiknum.
Raddir
lesenda
Hríngiö
í síma
83322
kl. 13-15
eða
skrífíð
Hávaði er
f fólkinu.
Hótel
ísland,
jarðhæð
Inn á hallærisplan þjóðar
skríður ung mey og spjölluð.
„Hvað er að þér, góða mín?“
spyr fávís þjóðin.
„Ég hef fengið reiðarslag,
ég er orðin ófrísk af
tiðarandanum,“
svarar ungmeyjan — sk'elkuð.
Tór Breiðholt.
Athugasemd
Guðmundur Páll Bergsson
brunavörðurhringdtog lét þess
getið að hann hefði ekki skrifað
greinina um Torfuhneykslið
sem birtist í DB 15. apríl sl.
Hann kvaðst þó sammála nafna
sínum í flestum atriðum.
Til
lesenda
Enn einu sinni þurfum
við að minna þá á, sem senda
okkur línu, að hafa fulít
nafn og heimilisfang eða
símanúmer með bréfumsín
um. Nú er svo komið að við
höfum hér á ritstjórninni
alls konar bréf frá Jónum og
Guðmundum, en það er bara
ekki nóg. Ef þið viljið a~ð
greinar ykkar birtist þá
verður fullt nafn og
heimilisfang að fylgja. Hægt.
er að skrifa undir dulnefni,
ef þes . jr óskað sérstaklega.
Þeir, sem hafa ekki séð
greinar sínar hér á slðunum,
vlta hér með ástæðilna.
r
j
Neísho!
Það eru komnar spánýjar mussur
og skyrtur í Pophúsið.
Spurning
dagsins
Veröur
verkfall ívor?
Ólafur Hjálmarsson vélstjórl: Já I
mánuð eða lengur.
Ingimundur Þorkelsson vélstjóri:
Já ég býst ekki við neinu góðu,
það verður minnst í 5 vikur.
Sigurður H. Sigurðsson, vinnur á
lyftara: Já, ég held það, liklega í 2
til 3 vikur.
Þórarinn Jónsson skrifari við
hoThina: Mér finnst margt benda
til þess en vonandi verður ekki af
því.
Jóhannes Guðmundsson bilstjóri:
Ég reikna fastlega með því en
vona að það verði stutt.
Ragnar Jónasson bílstjóri og
verkamaður: Ég vona ekki. — Ég
held að það sé sameiginlegt með
einstaklingum og ríkinu að það
tapa allir á'verkföllum.