Dagblaðið - 18.04.1977, Blaðsíða 16
Iþróttðr
Comaneci
frábær
Olympíumeistarinn í fimleik-
um, Nadia Comaneei, Rúmeníu,
sýndi frábæra leikni á miklu
fimleikamóti í Lundúnum í gær.
Hin 15 ára stúlka keppti þó
aðeins í einni grein, og hafði þar
aigjöra yfirburði, hlaut 39.1 stig.
Theodora Ungureanu, sem er 16
ára og stóð sig mjög vel í
Montreal, sigraði samanlagt á
mótinu í Lundúnum í gær. Hún
hlaut 9.8 fyrir gólfæfingar og 0.2
stigum meira, en hin 14 ára
sovézka stúlka Elena Davydova,
sem sovézkir reikna með stór-
afrekum af á Olympíuieikunum í
Moskvu 1980.
Víðirvann
í Garðinum
Víðir, Garði, sigraði Þór Þor-
lákshöfn, 5-1 í „Stóru-
bikarkeppninni" í knattspyrnu í
gær. Lcikið var í Garðinum. Guð-
mundur Jens Knútsson skoraði
fjögur af mörkum Víðis, en Jóna-
tan Ingimarsson eitt. Mark Þórs
skoraði Björn Jónsson. -emm.
Hefnd ungu
mannanna
Landsiið Spánverja í knatt-
spyrnu — leikmenn 21 árs og
yngri — náðu fram hefndum á
Rúmeníu i UEFA-keppni lands-
liða í Madrid í gær. Sigruðu
Rúmeníu 3-0 en á laugardag
sigraði Rúmenía Spán í HM-leik í
Búkarest. Þjálfari Spánverja
ásakaði rúmensku ieikmennina
eftir leikinn fyrir mjög grófan
leik, nákvæmlega eins og var í
aðaileiknum í Búkarest. Þrír leik-
menn Rúmeníu voru bókaðir —
en einn spánskur i Madrid.
Belgíski hlauparinn kunni,
Karel Lismont, sigraði í 32.
Mainiehi-maraþonhlaupinu í
Otsu í Japan í gær. Hljóp vega-
lengdina á tveimur klukkustund-
um og 14.8 mín. Lismont, sem er
28 ára, hlaut silfurverðlaun á
Oiympíuleikunum í Múnehen
1972 og bronzverðlaun á leikun-
um í Montreal í fyrra. Lismont
var eini útlendingurinn í hlaup-
inu í Otsu í gær — og í öðru sæti
39 hiaupara, varð Jitsuh Akieda á
2:17.56 í sínu fyrsta maraþon-
hlaupi.
punrn
Æfingaskór
Sportvöruverzlun
Ingólfs
Óskarssonar
Hólagarði Breiðholti
Sími 75020
Klapparstíg 44
Sími 11783
DAGBLAÐHLMÁNUDAGUR 18. APRlL 1977.
■■■■■iit ■ ^ »1. - ...... < ——
íþróttir íþróttir íþróttir iþrótti
Dankersen stefnir í
úrslit í V-Þýzkalandi
— eftir jafntef li við Hofweier ffyrri leik liðanna íundanúrslitum
— Ég held að það sé nú óhætt að
segja, að Dankersenliðið sé
komið með annan fótinn í úrslitin
um vestur-þýzka meistaratitilinn
í handknattleik. Við lékum við
Hofweier á útivelli á laugardag.
Jafntefli varð 15-15 og eftir hálf-
an mánuð verður síðari leikur
liðanna í undanúrslitum. Þá
verður leikið i Minden og það má
eitthvað mikið koma fyrir ef
Dankersen sigrar ekki í þeim
leik, sagði Axel Axelsson, þegar.
blaðið ræddi við hann í gær.
Þetta var hörkuleikur á laugar-
daginn í Offenburg og íþrótta-
höllin troðfull af áhorfendum.
Um 5000 manns, sem flestir
studdu mjög vel við bakið á leik-
mönnum Hofweier, sagði Axel
ennfremur.
Hofweier byrjaði leikinn vel.
Komst í 4-1 og var það mest vegna
slæmrar nýtingar hjá Van Oepen
í Dankersen í byrjun. Hann átti
ein fjögur til fimm skot á þessu
tímabili, en skoraði ekki. En síðan
komst leikur Dankersen í lag.
Okkur tókst að jafna í 5-5 og
skoruðum einnig þrjú næstu
mörk 5-8. Staðan í hálfleik var 6-9.
Dankersen þremur mörkum yfir.
Við skoruðum fyrsta markið í
síðari hálfleik og þá virtist Dank-
ersen stefna í öruggan sigur.
Staðan var. 7-11 og 11-14, en loka-
Þriðji ríðill galopnaðist
Austurríki sigraði Tyrkland 1-0
í þriðja riðli Evrópu í heims-
meistarakeppninni i knattspyrnu
i Vínarborg i gær. Það var fyrsti
tapieikur Tyrkja í riðiinum og
keppni verður þar áreiðanlega
mikil milli Austurríkis, Tyrk-
lands og Austur-Þýzkaiands. Auk
þessara landa er Malta einnig í
riðiinum.
Áhorfendur í Vínarborg voru
70 þúsund — þar af 10000 Tyrkir
— og voru hundruð lögregluþjóna
með stálhjálma meðal þeirra.
Eina mark leiksins skoraði
Walter Schachenr tveimur mínút-
um fyrir hálfleik. Austurríska
liðið var miklu meira í sókn, en
bakvörður Tyrkja, Erol, missti þdj
af auðveldu tækifæri til að jafna
á 50. mín.
Staðan í riðlinum er nú þannig:
Austurríki 2 2 0 0 2-0 4
Tyrkland 3 1115-23
A-Þýzkaland 2 110 2-11
Malta 3 0 0 3 0-6 0
kaflann gaf Dankersen eftir og
Hofweier tókst að jafna í 15-15
rétt undir lokin.
Ég er á þeirri skoðun, að Dank-
ersen sé talsvert sterkara lið en
Hofweier, sagði Axel, og tel að við
eigum ekki að vera í erfiðleikum
með að sigra Hofweier á heima-
velli. Það þarf eitthvað mikið að
koma fyrir ef Dankersen tapar
þeim leik.
Busch var markhæstur leik-
manna Dankersen á laugardag.
Skoraði fjögur mörk. Eitt víti.
Axel skoraði þrjú mörk og Waltke
var einnig með þrjú mörk. Eitt
víti. ÞeirÖlafur H. Jónsson, Kram-
er, Grund, Becker og van Oepen
skoruðu eitt mark hver.
Dómararnir voru talsvert á baridi
Hofweier í leiknum og kom það
vel fram í því að leikmenn Dank-
ersen voru einum færri í ellefu
mín. í leiknum, en aðeins einum
leikmanna Hofweier var vísað af
velli í tvær mínútur.
Sænsktmetí
— Seyðf irðingar stigahæstir á mótinu
Gamlar væringar varðskips-
manna og Seyðfirðinga eru með
öllu gleymdar, á því virðist ekki
nokkur vafi. Að minnsta kosti
ríkti hið mesta bræðralag með
aðilunum, er þeir mættust á dög-
unum á dansieik að loknu Skíða-
móti Austurlands. Er það sannar-
lega vei.
Eiginlega var það varðskips-
mönnum á Ægi að þakka að mótið
var yfirleitt haldið að þessu sinni
en tvö undanfarin ár hefur það
ekki verið haldið. Þeir fluttu
keppendur frá Neskaupstað til
Seypisfjarðar, önnur leið var ekki
fær. Keppendur voru aðeins frá
Seyðisfirði og Neskaupstað en frá
Reyðarfirði, Eskifirði og Breið-
dalsvík komust menn ekki til
mótsins á Seyðisfirði.
Huginn Seyðisfirði varð stiga-
hæstur í keppninni með 269 stig
gegn 100 stigum þeirra Þróttara
frá Neskaupstað. Unnu heima-
menn því bikar þann er Flug-
leiðir hafa gefið til keppninnar.
Veitti aldursforseti sigurvegar-
anna, Haraldur Sigmarsson,
bikarnum viðtöku.
Seyðfirðingar hafa brennandi
áhuga á skíðaíþróttinni, og nú er
stefnt að því að koma upp skíða-
lyftu af Oppsal-Myer gerð. Munu
Iþróttafélagið Huginn og
bæjaryfirvöld standa straum af
kostnaði við lyftuna.
Arnþór.
Jóhannes Eðvaldsson — skozkur meistari í knattspyrnu — stekkur
hærra en leikmenn Hearts á Parkhead.
1500 m
Gary Andersson setti nýtt
sænskt met í 1500 metra skrió-
sundi í sex landa keppni í Rotter-
dam á laugardag. Synti vega-
iengdina á 15:41.84 mín. og
sigraði með yfirburðum. Annar
varð Vladimir Raskatov, Sovéti
ríkjunum, á 15:53.90 mín. en þeir
voru hinir einu, sem syntu innan
við 16 mín.
Sovétríkin sigruðu í keppninni
með 159 stig, Svíþjóð hlaut 138
stig, Bretland 136 stig, Holland
125 stig, Vestur-Þýzkaland 119
stig og Ítalía rak lestina með 114
stig.
Cheryl Brazendal, hin 14 ára
brezka stúlka, sem setti fjögur
brezk met fyrir viku, bætti enn
met sitt í 400 metra skriðsundi.
Synti vegalengdina á 4:24.09 mín.
og varð í öðru sæti, en sigurvegari
varð Annalies Maas, Hollandi, á
.4:22.99 min.
UEFA-sæti hjá Stand-
ard er að verða öruggt
—og Union er tveimur stigum á eftir ef stu liðunum f 2. deild
Eg held að það sé nú alveg að
verða öruggt, að Standard Liege,
iið Asgeirs Sigurvinssonar, leiki í
UEFA-keppninni næsta keppnis-
tímabii. Liðið vann Lokeren á úti-
velli í gær — lið, sem keppir við
Standard um 4. sætið í 1. deild-
inni beigisku og Standard er nú
fjórum stigum á undan þeim
liðum, sem eru í fimmta sæti,
sagði Stefán Haildórsson i
Brussel, þegar blaðið ræddi við
hann í morgun. Greniiegt, að FC
Brugge verður aftur meistari.
Liðið er efst í 1. deild með 45 stig,
Molenbeek er í öðru sæti með 39
stig. Evrópumeistarar Ander-
lecht í þriðja sæti með 38 stig.
Síðan kemur Standard í fjórða
sæti með 36 stig. Lokeren og
Beerschot hafa 32 stig.
Ásgeir ,,átti“ alveg fyrra
markið, sem Graf skoraði fyrir
Standard. Náði knettinum — lék
á varnarmenn Lokeren og upp
kantinn. Gaf síðan á Graf, sem
ekkí þurfti annað en nikka knett-
inum í mark. Riedl skoraði svo
annað mark Standard og gull-
tryggði sigurinn. Charleroi vann
mjög athyglisverðan sigur í Beer-
schot 1-2, en ég veit ekki hvort
Guðgeir Leifsson lék með Charle-
roi í leiknum, sagði Stefán enn-
fremur.
Royale Union gekk hins vegar
ekki nógu vel í 2. deildinni.
Aðeins jafntefli við næst neðsta
liðið í deildinni. St. Nicolas 1-1.
Reyndar á útivelli. Samt sem áður
færðist Uriion nær toppnum, þar
sem Boom tapaði. Boom og,
Eisden Petro eru efst með 34 stig,
en síðan koma Union og Malines
með 32 stig.
Leikur Union gegn St. Nicolas
er slakasti leikur liðsins á
keppnistímabilinu. Það voru allir
sammála um það — og reyndar
hroðalegt að tapa öðru stiginu.
St. Nicolas skoraði á undan úr
vítaspyrnu, sem átti engan stað í
raunveruleikanum. Hrein vit-
leysa hjá dómaranum og þjálfar-
inn okkar hjá Union var svo
æstur, að hann ætlaði að lemja
dómarann í leikhléinu. Það var þó
komið í veg fyrir það. Afríku-
svertinginn Konate, sem lék sinn
fyrsta leik með Union á leiktíma-
bilinu — hefur ekki komizt í liðið
fyrr — skoraði jöfnunarmark
Union. Marteinn Geirsson lék all-
an leikinn og var að venju
traustur, en ég var ekkert með
vegna meiðsla, sagði Stefán að
lokum. Úrslit í 1. deild urðu þessi:
Ostende — Antwerpen 4-1
FC Liege—CS Brugge 4-0
Beerschot — Charleroi 1-2
Lierse — Courtrai ^ 2-1
Waregem — Malinois 1-0
Molenbeek — Winterslag 6-0
FC Brugge — Anderlecht 2-0
Beringen — Beveren 3-0
Lokeren — Standard 0-2
Varðskipsmenn björguðu
Skíðamóti Austurlands