Dagblaðið - 18.04.1977, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1977
' ..... N
Sverrir Hermannsson alþingismaður:
^ Viðreisnaraðgerðir
lll^ r ■ r ■ ■ ■ F
fari fyrir pjoðina i
kosningum í haust
Ef kjarasamningarnir leióa
til kollsteypu í efnahagskerfinu
ætti að leggja fram viðreisnar-
prðgram og bera það undir
þjóðina í þingkosningum í
haust. Þetta er skoðun Sverris
Hermannssonar alþingismanns
(S).
„Ég hef haft þá skoðun, og
ekki legið á henni, að ef efna-
hagskerfið kollsteypist við
kjarasamningana, teldi ég eðli-
legast að leggja viðreisnarað-
geróir fyrir þjóðina í þingkosn-
ingum strax í haust," sagði
Sverrir í viðtali vió Dagblaðið í
gær. ,,Eg óttast heilt „kosninga
ár", sagði Sverrir Hermanns-
son. „Það væri óhugnanlegt ef
verðbólguskrúfan tæki að snú-
ast hraðar eftir kjarasamning-
ana og beðið væri í heilt ár eftir
kosningum." Sverrir kvaðst .þó
ekki trúaður á að kosningar
yrou í haust. Hann teldi að
Framsóknarflokkurinn til
dæmis vildi ekki kosningar fyrr
en eftir ár. Eins teldi hann að
skoðun sín væri ekki ofan á í
sínum eigin flokki.
Sverrir sagði að lækkun
skatta og samsvarandi niður-
—leiði
kjarasamn-
ingarnir
til „koll-
steypu"
skurður ríkisútgjalda væri hið
eina sem dygði til að ná i gegn
kjarasamningum sem ekki
hleyptu öllu í bál og brand.
Ef vel tækist til í skattalög-
um gæti það komið góðu til:
leiðar í samningunum.
-HH
Bættaðstaða íReykjavíkurhöfn:
r
RÆTIST UR
HJÁ RÍKISSKIP
Um þessar mundir standa yfir
nokkrar endurbætur á Reykjavik-
urhöfn. Verið er að byggja hafn-
arbakka við svokallaða Grófar-
bryggju en hún er niður af Gróf-
inni í Reykjavík. Akraborg hefur
fram að þessu lagzt við þessa
bryggju.
1 samtali vió DB sagði hafnar-
stjórinn, Gunnar B. Guðjónsson,
að hafnarbakkinn sem er verið að
byggja kæmi til með að verða alls
60 metra langur. Skipaútgerð rík-
isins fær þarna hafnarpláss og
aðstöðu til að reisa vörumóttöku á
svæði sem þarna verður fyllt upp.
Skipaútgerðin hefur undanfarin
ár verið á hálfgerðum hrakhólum
með pláss en þarna kemur til með
að rætast úr því.
Þess má geta til gamans í þessu
sambandi að Grófarbryggja hefur
meðal almennings lengstum geng-
ið undir nafninu Sprengisandur.
DB lék hugur á að vita hvernig á
þessu nafni stæði og hafði því
samband við Meyvant Sigurðsson
á Eiði. Meyvant sagði að ástæðan
fyrir nafninu væri sú aó 1930,
þegar verið var að byggja bryggj-
una, gerðist það óheppilega atvik
að stálþil sprakk fram. Verið var
að dæla sandi úr hafnarbotninum
inn fyrir þilið og hefur sú fyrir-
staða sem var í hafnarbotninum
ekki verið nægileg og því fór sem
fór. Verkfræðingurinn sem sá um
höfnina var einmitt í brúðkaups-
ferð þegar þetta gerðist og varð
að kalla hann heim úr henni til að
sjá um lagfæringar.
Hafnarstjórinn virtist greini-
lega vera mjög mótfallinn þessu
nafni og sagðist ekki vilja heyra
það nefnt.
-D.S.
Nýi hafnargarðurinn.sem kemur til með að gjörbreyta aðstöðu Ríkisskips, sést á þessari mynd Sveins
Þormóðssonar.
Kins golt að verða ekki með puttana á milii þegar þessi S lonna
falihamar er að verki (Mynd: Stefán Nikulásson).
FÆREYSKIR SKOLAKRAKKAR í FERÐALAGIUMISLAND
Þetta eru krakkar úr stærsta
gagnfræðaskólanum í Færeyjum
en þau komu í skólaferðalag til
íslands yfir páskana. Með bingó-
kvöldum, hlutaveltum og happ-
drættum söfnuöu þau sér fyrir
farinu hingað en venjan hefur
verið að fara til Danmerkur í
skólaferðalag, enda eru Danmerk-
urferðir styrktar af opinberu fé.
Krakkarnir sem eru á aldrinum
16-17 ára ferðuðust víða um land-
ið, fóru á skiði til Akureyrar og i
kynnisferð á Keflavíkurflugvöll
þar sem þau fengu að skoða að
búnað varnarliðsins. Þessi mynd
er tekin á Vellinum undir einni
herþotunni, sem reyndar stendur
á stöpli sem eins konar minnis-
merki um Delta Daggervélarnar.
DB-mynd Elias Poulsen).
„Tækið reynt”-fór á toppinn
Það fór illa fyrir ungum öku- Bíllinn stóðst ekki aksturskröf-
manni á Húsavík urn helgina. urnar og svo fór að hann valt og
Hann ók með félögum sínum um kom niður á toppinn á veginn.
bæinn á Bronco-jeppa. Ætluðu Farþegarnir sluppu ómeiddir en
þeir að reyna farkostinn og óku ökumaður var fluttur til rann-
upp í snjóskafl fyrir utan veginn. sóknar á sjúkrahúsið. .RP.'