Dagblaðið - 18.04.1977, Page 17

Dagblaðið - 18.04.1977, Page 17
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1977. 21 Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir 1 Það var oft erfitt að koma knettinum yfir varnarvegg hávaxinna stúlkna þýzka landsiiðsins eins og sjá má á þessari DB-mynd Sveins Þormóðssonar. Stóðu sig betur en nokkur þorði að vona — en vestur-þýzku stúlkurnar sigruðu þó í báðum landsleikjunum við ísland með litlum mun. 11-9 og 12-10 Islenzka kvennalandsiiðið í handknattleik lék um helgina gegn hinu v-þýzka hér í Reykjá- vík —og báðir leikir töpuðust. Hinn fyrri á laugardag 9-11 — og síðan í gærkvöld 10-12. Hand- knattleikurinn sem boðið var upp á var ákaflega slakur — það sem helzt kom á óvart var slök frammistaða v-þýzka liðsins en fyrirfram var búizt við liðinu sterkara. ísland fékk sannkallað óska- start í fyrri leiknum — íslenzka liðið komst í 3-0 — en síðan ekki söguna meir í fyrri hálfleik. V- þýzka liðið jafnaði 3-3 og komst síðan yfir 5-3 í leikhléi. Sá munur hélzt lengst af í síðari hálfleik — islenzka liðið skorti kraft til að vinna upp þetta forskot. Þó tókst að jafna 9-9 — en þýzka liðið átti síðasta orðið — skoraði tvívegis og sigraði 11-9. Mörk íslands skor- u'ðu Hansína Melsted 4 — 3 víti. Svanhvít Magnúsdóttir 2, Björg Jónsdóttir, Guðríður Guðjónsdótt- ir og Katrin Danivalsdóttir 1 mark hver. Síðari leikurin fór fram í gær- kvöldi — og aftur þýzkur sigur — 12-10. Þýzka liðið byrjaði mjög vel — komst í 5-1 en Ísland náði að ntinnka muninn fyrir leikhlé í 2 mörk — staðan í leikhléi var 3-5. Þýzku stúlkurnar skoruðu 2 fyrstu mörk síðari hálfleiks — komust í 7-3 og síðan 9-5 — en* góður leikkafli Íslands fylgdi í kjölfarið — og ísland náði að minnka muninn í eitt mark — 8-9 og síðan 10-11 en þýzka liðið átti síðasta orðið — 12-10. Handknattleikurinn sem liðin buðu var ákaflega slakur — ís- lenzka liðið vantar illilega skyttur —og eins var hreyfanleiki á línunni lítill. Mörk Islands í síöari leiknum skoruðu — Ragnheiður Blöndal 5 — 4 víti. Svanhvít Magnúsdóttir og Hansína Melsted 2 mörk hvor og Hjördís Gísladóttir 1 mark. MIKIL SPENNA18. RIÐLI Rúmenía sigraði Spán í Búkarest í gær 1-0 í leik landanna í áttunda riðli heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu — og það er greinilegt, að það stefnir í mikla spennu í riðlinum. Auk þessara tveggja landa er Júgó- slavía einnig í riðlinum. Það var strax á sjöttu mín. sem vinstri útherji Rúmeníu, Zamfir, skoraði og kom knötturinn við varnarmann Spánar á leiðinni í markið. Þetta reyndist eina markið í leiknum, en Rúmenar voru lengstum í sókn ákaft studdir af fjörutíu þúsund áhorf- endum á Steaua-leikvanginum. Rúmenar fóru illa með nokkur góð tækifæri i leiknum, en það var ekki fyrr en í lokin, sem Spán- verjar létu eitthvað að sér kveða. Leal var nærri að skora á 64. mín. og þremur mín. fyrir leikslok munaði litlu að Aseni jafnaði. Staðan í riðlinum er nú þannig: Rúmenía 110 0 1-02 Spánn 2 10 11-12 Júgósl. 10 0 10-10 Jóhannes skozkur meistari! Það er gaman að þessu og timi kominn til að verða meistari. Ég hef verið í öðru sæti með Val á Íslandi, Holbæk í Danmörku og Celtic á Skotlandi, svo þetta er fyrsti meistaratitill minn í knatt- spyrnu, sagði Jóhannes Eðvalds- son, þegar Dagblaðið ræddi við hann í gær. A laugardag tryggði Celtic sér skozka meistaratitilinn, þó svo liðið eigi enn eftir að leika fjóra leiki í úrvalsdeildinni. Jóhannes hefur sigrað með Val í bikarkeppni. Celtic fer í keppnis- för til Astralíu 4. júlí nk. Það.var ekki fyrr en rétt i lok- in, aö Joe Craig skoraði eina markið í leiknum gegn Hibernian í Edinborg á laugardag. Það nægði — og gífurlegur fögnuður varð meðal 28 þúsund áhorfenda á leikvellinum, sem flestir voru á bandi Celtic-liðsins. Það var skálað eftir leikinn í búningsher- bergjum Celtic-leikmannana, en síðan hélt hver til síns heima. Sigrinum verður fagnað síðar —, en framundan eru margir leikir. Þar á meðal úrslitaleikurinn við Rangers í skozku bikarkeppninni 7. maí á Hampden Park. Allra augu beinast að honum, sagði Jóhannes ennfremur. Hann var varamaður á laugardag. Var byrjaður að hita upp undir lokin, en kom ekki inn á. Celtic varð skozkur meistari í knattspyrnu í 30. sinn og þetta var mikill sigur fyrir fram- kvæmdastjórann, Jock Stein. 1 tíunda sinn, sem hann gerir Celtic að meisturum í þau 12 leiktima- bil, sem hann hefur verið með liðið. Úrslit á laugardag urðu annars þessi: Aberdeen-Partick 0-2 Hibernian-Celtic 0-1 Kilmarn.-Hearts 2-2 Motherw.-Dundee U. 4-0 Rangers-Ayr 5-1 Hearts féll þar með niður í 1. deild. í fyrsta sinn í sögu félagsins, sem það leikur ekki í beztu deild Skotlands. Af sem áður var hjá þessu fræga Edin- borgarliði. Þá má geta þess, að Dixie Deans skoraði bæði mörk Partick. Hann var nýlega keyptur frá Luton, en lék um Iangt árabil áður með Celtic. Staðan er nú þannig: Staðan er þannig — leiknar 36. umferðir. Celtic 32 21 7 4 70-35 49 Rangers 33 16 10 7 56-34 42 Aberd. 33 14 11 8 50-36 39 Dundee U. 32 15 8 9 50-40 38 Hibernian 33 7 17 9 32-34 31 Motherw. 31 10 10 11 50-47 30 Partick 33 9 12 12 35-42 30 Ayr 33 11 7 15 43-63 29 Hearts 33 5 12 16 43-62 22 Kilmarn. 33 4 7 22 30-66 16 England sigraði tvívegis ísland og England léku tvo unglingalandsleiki í körfuknatt- leik um heigina og sigraði Eng- land í þeim báðum — hinum fyrri örugglega 92-69 — en í hinum síðari sem fram fór í Njarðvíkum í gær sigraði England naumt — 84-78 eftir að ísland hafði lengst, af haft forustu í ieiknum — en England seig framúr á lokasprett- inum og sigraði. 62. sigur Nicklaus Gullbjörninn Jack Nicklaus renndi kúlunni í holuna með 10 feta pútti ognáðiþarmeð „birdie“ á þriðju aukaholunni i keppni við Bruce Lietzke í Carsbad í Kali- forníu í gær. Sigraði þar með í „keppni meistaranna“, þar sem verðlaun námu 225 þúsund doll- urum, en þeir Nicklaus og Lietzke voru efstir og jafnir eftir 72 hoiur með 281 högg hvor. Síðustu 18 holurnar iék Nicklaus á 71 höggi, en Lietzke var heldur betur í stuði þá og jafnaði við Nicklaus með þvi að leika á 66 höggum. Það gerði einnig Astra- líumaðurinn Graham Marsh og varð þriðji með 283 högg, ásamt Johnny Miller og Tom Purtzer. Síðan kom Rik Massengala í sjötta sæti með 284 högg. Nicklaus hlaut 45 þúsund doll- ara í verðiaun fyrir sigurinn á mótinu. Þetta var 62. sigur hans i keppni atvinnumannanna í Bandaríkjunum, en Nicklaus hóf þar keppni 1961. Þar með jafnaði hann við Ben Hogan, þann kunna kappa, en flesta sigra er Sam Snead með, 84. Eftir keppnina sagðist Nicklaus hafa verið heppinn að komast í úrslit við Lietzke, því hann hefði ekki ieikið vel. Langt frá þvi. Lietzke hlaut 26 þúsund dollara í önnur verðlaun, en þeir Marsh, Miiler og Purtzer 11.949 dollara fyrir þriðja sætið hver. Valur áfram Valur sigraði Hauka 27-25 í bikarkeppni Handknattleikssam- bands tslands í Hafnarfirði í gær- kvöld. Með sigrinum er Valur kominn i átta-liða úrslit i bikar- keppninni. pumn íþróttatöskur Sportvöruverzlun Ingólf s Óskarssonar Hólagarði Breiðholti Sími 75020 Klapparstíg 44 Sími 11783

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.