Dagblaðið - 18.04.1977, Side 19

Dagblaðið - 18.04.1977, Side 19
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 18. APRÍL 1977. 23 (i Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir I) Fram efst eftir sigur gegn Þrótti —1-0 ígær í Reykjavíkurmótinu íknattspyrnu Fram skauzt i efsta sæti Reykjavíkurmótsins er liðið sigr- aði 2. deildarlið Þróttar 1-0 á Melavellinum í gær. Þar með hefur Fram unnið tvo fyrstu leiki sina í Reykjavíkurmótinu — fyrst sigur gegn íslandsmeistur- um Vals — og nú Þróttur að velli lagður. Hitt er svo, að knattspyrnan sem F’ram og Þróttur buðu upp á var ákaflega slök — mikil barátta í miðjunni en samleikur hins veg- ar ákaflega slakur — sannkall- aður vorbragur yfir liðunum. Eina mark leiksins kom um miðjan fyrri hálfleik — og þá var hinn eldsnöggi Rúnar Gíslason að verki. Hann skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf fyrir mark Þróttar. F’átt var um opin marktækifæri — aðallega baráttaá miðjunni. F'ram saknar ákaflega sterkra leikmanna — þá einkum lands- liðsmannanna Jóns Péturssonar og Ásgeirs Elíassonar. Þegar þeir verða komnir í slaginn er ljóst að F’ram verður erfitt viðureignar öðrum liðum i 1. deild í sumar — en liðið hafnaði í öðru sæti á síðasta keppnistímabili og flest bendir til að F’ram berjist einnig á toppnum í sumar. Þróttur féll í 2. deild síðastliðid sumar — eftir ár í 1. deild. Þrótt- ur á góða möguleika á að hreppa sæti í 1. deild í sumar — liðið er skipað ungum leikmönnum, sem með aukinni reynslu munu áreið- anlega vinna sæti í 1. deild. Staðan í Reykjavíkurmótinu er nú: F'ram 2 2 0 0 3-0 4 Víkingur 2 1 1 0 2-1 3 KR 2 1 0 1 3-3 2 Þróttur 2 1 0 1 1-1 2 Valur 2 0 1 1 0-1 1 Ármann 2 0 0 2 1-3 0 Valur 60 mínútum frá íslandsmeistaratitli Valur sem nú stendur á þrösk- uldi Íslandsmeistaratignar eftir sigur gegn Fram á föstudagskvöld 25-14, fylgdi þeim sigri eftir í bikarkeppni HSÍ er liðið lék við Hauka suður í Hafnarfirði i gær- kvöldi — þá sigraði Valur 27-25. Valur leikur annað kvöld við Fram og nægir jafntefli í þeim leik svo islandsbikarinn hafni i Hlíðarenda. Staðan i 1. deild er nú: Valur 13 11 0 2 293-242 22 Víkingur 14 11 0 3 357-312 22 FH 14 8 2 4 329-313 18 Haukar 14 7 3 4 304-282 17 ÍR 14 5 2 7 311-325 12 Fram 13 4 2 7 266-293 10 Þróttur 14 2 4 8 273-308 8 Grótta 14 0 1 13 285-336 1 I kvöld fer fram einn leikur — íslandsmeistarar Vals mæta þá KR á Melavellinum og hefst leik- urinn kl. 19. Haukaríl.deild Haukar tryggðu sér sigur í 2. deiid íslandsmótsins í kvenna- handknattleik er liðið vann Grindavík örugglega í úrslitum 20-7. Haukar hafa afar efniiegui handknattleiksliði á að skipa í kvennaflokknum — og nú hefur liðið tryggt sér sæti í 1. deild. Grindavík verður hins vegar að leika við næstneðsta liðið í 1. deild — Víking um sjöunda sætið í 1. deild næsta vetur. Þá voru leiknir úrslitaleikir í yngri flokk- um íslandsmótsins í handknatt- leik—og í karlaflokkum tryggðu Reykjavíkurfélög sér sigur — en sigurvegarar í einstökum flokk- um urðu: 3. flokkur — Þróttur. 4. flokkur — Víkingur. 5. fiokkur — Fram. Þá sigraði Ármann í 2. flokki kvenna — og Fram í 3. flokki kvenna. FH tryggði sér íslands- meistaratitil í 1. flokki karla — þar léku til úrslita FH og Valur og sigraði FH 13-12 í mjög jöfn- um og skemmtilegum leik þar sem Hjalti Einarsson — sem í gegn um árin hefur varið mark íslands og FH af mikilli snilid — varði mjög vel og var maðurinn á bak við sigur FH. Enn eiga eftir að fást úrslit í 2. flokki karla — en úrslitin fara fram á Akureyri um næstu helgi. Fyrirliði Kaiserslautern, Ernst Diehl, til vinstri, brýtur á Herbert Wimmer framverði Borussia Mönchengladbach, í 1. deildinni.nýlega. Leiknum lauk með jafntefli án marka. BAYERN STEINLA FYRIR BOTNLIÐI Allt gengur nú á afturfótunum hjá Bayern Miinchen, Evrópu- meisturunum í knattspyrnu siðustu þrjú árin. i 1. deildinni þýzku um helgina lék Bayern í Saarbrucken, gegn nýliðum í deildinni og einu af neðstu liðun- um, og tapaði mjög illa. Borussia tapaði einnig, en úrslit urðu þessi: Brunswick-Bochum 2-0 Ten. Berlín-Hertha 2-0 Köln-Duisburg 5-2 Hamborg—Karlsruher 2-1 Frankfurt-Bremen 7-1 Schalke-Borussia Mön. 1-0 Saarbrucken-Bayern 6-1 Essen-Kaiserslautern 3-2 Dusseldorf-Dortmund 3-2 CASIO — tölvur og CASI0TR0N — armbandsúr GASIO CASIO umboðið STÁLTÆKI, Vesturveri Sími 27510 R-16Ö-5 (Dcep Brown) CiS-l 51.-5 (Dccp Biown) cAsiatRoiNiST ENN EITT UNDUR FRÁ CASI0 CASIO-LC armbandsúr býð- ur upp' á: • Klukkusl., min., 10 sek., 5 sek., 1 sek. • Fyrir hádegi/eftii hádegi. • Mánuður, dagur, viku- dagur. • Sjálfvirk dagatalsleið- rétting um mánaðamót. • Nákva-mni + -f 12 sek. á mánuói. • Ljóshnappur til aflestrar í myrkri. • Rafhlaða sem endist ca 15 mán. • 15 sek. verk að skipta um rafhlöðu. • Ryðfrítt stál. • 1 árs ábyrgð og viðgerða- þjónusta. Póstsendum Nýjasta töiva með horna- föllum frá CASIO. Fljótandi kristall i stafa- borði. notar aðeins 1 raf- hlöðu. Þ.vkkt 14 mm. Lengd 128 mm. Breidd 67 mm. Þyngd 93 g. Smellur í brjóst- vasann. Verð kr. 12.900. SKKIUKLUKKA 1/10 sek. millilimar. DIGITALKLUKKA/DAGATAL Quartz kristall nákva-mni + + 15 sek/mán. sjálfvirk dagatalsleiðrétting uni mánaðamót þ.m.t. hlaupár. TOLVA allar grunnreikningsaðferðir ásamt konstant o. fl. VEKJARAKLUKKA unnt er að stilla 4 mis- munandi tíma á sóiarhring. ÞYNGD 148 gr. smeliur í vasann. kr. 20.850.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.