Dagblaðið - 10.06.1977, Side 6
6
DAGBLAÐID. FÖSTUDAGUR 10. JTJNÍ 1977.
Lánasjóður
íslenzkra
námsmanna
auglýsir umsóknarfrest um námslán
og ferðastyrki fvrir veturinn 1977-78.
Lánin eru veitt skv. lögum nr. 57 1976.
Ákveðið hefur verið að umsóknar-
frestur og afgreiðslutími lánanna
veturinn 1977-78 verði eftirfarandi:
Sumarlán og
haustlán
Umsóknarfrestur Afgreiðsla hefst
15. júli 15. okt. nám erlendis
15. nóv. nám á Íslandi
Aimenn lán 15. okt.
Vorlán 15. jan.
Vor- og sumarlán 15. apríi
1. mars
1. apríl
l.júli
Sé umsókn ekki skilað fyrir tiltekinn
frest verður hún tekin inn með um-
sóknum sem berast fyrir næsta um-
sóknarfrest. Þannig að t.d. umsókn
um haustlán verður ekki afgreidd fyrr
en með almennum lánum ef hún er
ekki send sjóðnum fyrir 15. júlí.
Umsóknarfrestur er hér með aug-
lýstur, en þar sem umsóknareyðublöð
eru enn ekki tilbúin fyrir næsta vetur
eru námsmenn og umboðsmenn vin-
samlegast beðnir að geyma auglýsing-
una. Sérstaklega verður auglýst,
þegar umsóknareyðublöð verða tilbú-
in.
Jafnframt vill sjóðurinn benda sér-
staklega á eftirfarandi atriði:
1.
UMSÓKNIR skulu berast eða vera settar í póst í síðasta
lagi þann dag sem auglýstur umsóknarfrestur rennur út.
Umsóknir sem berast of seint færast til næsta umsóknar-
frests. Umsóknir, sem eru ekki f.vlltar út eins og eyðu-
blaðið segir til um, eru endursendar. Þó er gert ráð fyrir
að upplýsingar um t.d. skóla, námsland, heimilisfang á
námstíma, tekjur eða þess háttar, séu hugsanlega ekki
fyrir hendi þegar umsókn er lögð inn. Skulu þessar
upplýsingar þá sendar við fyrstu hentugleika og þó eigi
síðar en mánuði fyrir áætlaðan útborgunartíma. Náms-
menn eru minntir á að senda upplýsingar um heimilis-
fang á námstíma og allar breytingar á þeim eins fljótt og
mögulegt er.
2.
FYLGISkJÖL með umsókn:
a. PRÓFVOTTORÐ frá sl. vetri, stúdentspróf eða önnur
námsgráða.
b. VOTTORÐ UM TEKJUR þegar síðast var sótt um (ef
námsmaður hefur sótt um áður). Námsmenn erlendis
skulu skila íslensku tekjuvottorði og tekjuvottorði frá
námslandinu.
c. INNRITUNARVOTTORÐ fyrir áramót og eftir ára-
mót. Námsmenn á tslandi þurfa i flestum tilfellum
ekki að senda innritunarvottorð því sjóðurinn fær þau
beint frá skólanum.
d. ABYRGÐ OG UMBOÐ. Umboð skal gefa á umsókn.
Abyrgð þarf að útfylla fyrir hverja afgreiðslu láns.
Abyrgðarmenn mega ekki vera eldri en 65 ára og ekki
yngri en 20 ára. Hjón geta ekki verið ábyrgðarmenn
fyrir sama láninu, nema þau hafi aðskilinn fjárhag og
skal þá leggja fram með ábyrgð gögn, er sanna að svo
sé.
Framanlalin fylgiskjöl skal leggja inn ásamt umsókn. Ef
ekki er mögulegt að leggja þau inn með umsókn þurfa
þau að berast sjóðnum a.m.k. mánuði fyrir áætlaðan
afgrciðslutíma, ef mögulegt á að vera að afgreiða lánið á
tilsettum tíma. Ef fylgiskjöl og breytingar á umsókn
berast ekki fyrir þann tíma tefst afgreiðsla lánsins sem
því nemur.
Sjóðurinn æskir þess hér með að fylgiskjöl með umsókn-
um séu send beint til sjóðsins. Stefna sjóðsins er sú að
reyna að koma á beinna sambandi við námsmenn er-
lendis og minnka þunga umboðsmannakerfisins. Það er
þvi mjög áríðandi að nám'smenn veiti nákvæmar upp-
lýsingar um heimilisföng sín á námstíma og þær breyt-
ingar sem verða á þcim.
3.
STARFSEMI LÍN. Skrifslofa sjóðsins er að Laugavegi
77, Reykjavík. Almenn afgreiðsla er opin frá kl. 13 til 16
mánud. — föstud. Almennur símatími sjóðsins er frá kl.
9 til 12 og 13 til 16 mánud. — föstud. Sími: 25011. Þessi
tími er þó takmarkaður þegar afgrciðsla lána stendur
yfir.
Viðtal við framkvæmdastjóra sam-
kvæmt umtali.
Vinsamlegast geymið auglýsinguna.
Reykjavik, 9. júní 1977
Lánasjóður íslenskra námsmanna.
AMIN VAR BARA
AÐPLATA
— fóraldrei frá Uganda
Grunur manna reyndist
réttur, er Ugandaútvarpið
staðfesti í gærkvöld, að Idi
Ainin hefði aldrei farið úr landi
áleiðis til Bretlands. Blekking-
ar hans um að hann hygðist
koma til Bretlands og sitja þar
samveldisráðstefnuna voru
reyndar orðnar svo yfirgengi-
legar að flestir voru löngu hætt-
ir að trúa honum.
Brezkur maður var hand-
tekinn í Uganda í gær, —
grunaður um njósnir. Sagt er,
að verði hann sekur fundinn.
verði hann tekinn af lifi. Um
það hil 240 Bretar éru nú í
Uganda, flestir trúboðar, en
einnig kaupsýslumenn og
bændur. Þeim hefur verið
bannað að fara úr landi.
James Callaghan forsætis-
ráðherra Breta lét hafa það
eftir sér, er fréttist um
,,frystingu“ Bretanna, að hann
gæti ekkert gert fyrir þá, þar
sem þeir dveldustí Uganda af
fúsum og frjálsum vilja.
I
Utvarpið i Uganda sagói meðal
annars að Amin ætlaði að fara
sjóleiðina til. Bretlands, —
frá vinveittu Evrópuríki.
Það Evrópuríki reyndist vera
— þegar á reyndi — Frakk-
land. Nú hefur komið í ljós að
allar frásagnir af för forsetans
voru uppspuni.
i
SKÆRULIÐAR
GEGN KÚBU
ÞJÁLFAÐIR í
BANDARÍKJUNUM
Bandaríska stjónvarpsstöðin
CBS mun í kvöld sýna þátt þar
sem fram kemur. að strax eftir
Svínaflóainnrásina á Kúbu
fyrir 16 árum hafi Kennedy,
þáverandi Bandaríkjaforseti,
ákveðið að hefja „óyfirlýst"
stríð á hendur Castró. Veitti
hann tíu milljónir dala til
stofnunar kúbanskrar skæru
liðahreyfingar er þjálfa skyldi
á Miami-skaga í Bandaríkjun-
um. 1 skæruliðasveitum þessum
sem kallaðar voru „leyniher
CIA“ voru þúsundir kúbanskra
útlaga er flúið höfðu byltingu
Castrós.
Erlendar
fréttir
ASGEiR
TÖMASSON
REUTER
Gíslarnir í Hollandi:
Allt við það sama
Brátt eru liðnar þrjár vikur
síðan Suður-Mólúkkarnir í
Hollandi tóku gísla sína,
fimmtíu og níu talsins, sem þeir
halda enn. Samningaumleitanir
þær er þegar hafa átt sér stað
milli hollenzku stjórnarinnar
og Mólúkkanna hafa allar farið
út um þúfur og er nú óvist um
áframhaldið. Senn fer að líða
að því að sálarástand gíslanna
sé komið á það hættulegt stig að
stjórnin þurfí aó fara að taka
ákvörðun um hvort ekki borgar
sig að stofna lífi gíslanna í
hættu til að bjarga sálarheill
þeirra.
„Bjargið okkur" tókst einum
gíslanna að senda með mors-
merkjum með handspegli út
um lestarglugga. Ástand þeirra
gisla sem Mólúkkarnir hafa
sleppt til þessa er vægast sagt
afleitt. Kennara sem sleppt var
varð að setja á deyfilyf og
liggur hann því i móki.
Hópur ungra Mólúkka i
Hollandi birti i gær yfirlýsingu
þar sem þeir hvöttu hollenzku
stjórnina að fara að semja vié
Mólúkkana af alvöru, ella
mætti búast við fleiri aögerðuin
sem þessum. Sökuðu þeir
hollenzku stjórnina um dug-
le.vsi við að reyna að nálgast
pólitiska lausn á málefnum
S u ð u r - M ó 1 ú k k u e.v j a.
Tveir menn ýta vagni með matarbirgðum eftir teinunum að lestinni
þar sem Mólúkkarnir halda gíslum sínum. Lestin sést í baksýn.