Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 28.09.1977, Qupperneq 1

Dagblaðið - 28.09.1977, Qupperneq 1
3. ÁRG. — MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977 -213. TBL. RITSTJÓRN SÍÐUMULA 12. AUGLYSINGAR ÞVERHOLTI 11, AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 2 — AÐALSIMI 27022 A MILUON KRONA SKART- GRIPAÞJÓFNAÐUR í NÓTT þar sem vlrnetsrúðan var tekin burt. En rimlarnir hafa verið fjarlægðir. Skemmdarverk eru ekki önnur í búðinni en að framan greinir. Málið er 1 rann- sókn. - ASt. Nær milljón króna skart- gripaþjófnaður var framinn í nótt. Var brotizt inn I Skart- gripaverzlun Jóns Dalmanns- sonar að Frakkastíg 10. Þaðan vorú hafðir á braut um 70 gull- hringar, um 65 silfurhringar og líklega sjö Ibelo-kveikjarar. Dóra Jónsdóttir verzlunar- stjóri sagði í viðtali við DB í morgun að farið hefði verið inn að húsabaki með þvi að taka úr i heilu lagi þykka glerrúðu sem er með innbyggðu vlrneti. Sé slík rúða brotin verður af mik- ill hávaði. Innan rúðunnar er gangur og þar var læst hurð sprengd upp og þannig komizt i búðina. Bakki með silfurhring- um var hreinsaður og gull- hringar teknir úr tveimur köss- um. Kveikjararnir voru í sama borði. Skartgripaverzlunin er varin að framanverðu með grindum fynr hurð og gluggum. Rimlar voru einnig í bakglugganum Dóra Jónsdóttir verzlunarstjóri í skartgripaverzlun J. D. er hér með öskjurnar sem tæmdar voru í innbrotinu.Hin myndin sýnir gluggann sem farið var innum. Bilið milli gluggapósts og stálrimilser 17 sm. Matthías Bjarnason — Engar frekari veiðiheimildir: ÞJÓÐVERJAR FARA ÚT ÚR 200 MÍLUNUM 28. NÓV. Afstaða mín til fiskveiði- samningsins við Vestur- Þjóðverja er nákvæmlega sú sama og til samningsins við Breta. Hann rann út 1. desember síðastliðinn og þá sigldu brezkir togarar út úr fslenzkri fiskveiðilandhelgi, sagði Matthías Bjarnason, sjávarútvegsráðherra, í viðtaii við DB í gær. Samningur við Vestur- Þjóðverja um veiðar innan 200 mílnanna rennur út 28. nóvem- ber næstkomandi. Ráðherrann kannaðist ekki við neina sendinefnd frá Vestur-Þýzkalandi sem rætt hefði um hugsanlega fram- lengingu samningsins hér á landi nýlega. Hann hefði verið erlendis og hann hefði enga trú á að rætt hefði verið um slíka samninga við íslenzka aðila á meðan. Hann hefði aftur á móti frétt af væntanlegri komu vestur- þýzkrar þingmannasendinefnd- ar hingað í kurteisisheimsókn. „Samningar við Vestur- Þjóðverja eru engir i gangi og eru ekki fyrirhugaðir. Aftur á móti er ætlunin að halda áfram viðræðum við Efnahagsbandalag Evrópu, sem frestað var síðastliðið vor. Við höfum ekki léð máls á neinum veiðiheimildum á við- ræðufundum við Efnahags- bandalagið. Eins ogástand fiskistofnanna er koma slíkar neinnldir ekki til greina að mínum dómi:’ sagði ráðherrann að lokum. Stefnum við í einvalds- skipulag? — Sjá kjallaragrein Reynis Hugasonar á bls. 10-11 Dagblöðin stöðvast ekki í verkfalli - sjá bls. 5 • Marango og Rum Cola af Vellinum - sjá bls. 9 Carter gestur í „bless-partu” Lance -bis. 6-7 Munið Minolta- keppnina — skilafrestur til 1. október

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.