Dagblaðið - 28.09.1977, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 28.09.1977, Blaðsíða 5
DAGBLAf)lÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977. 5 Umdeildasta tækniafrek aldarinnar á Keflavíkurflugvelli: CONCORDE LAGDISKRITNA LYKKJU Á LEIÐ SÍNA — til Keflavíkur á leið frá París til Madrid Tæknilega séð hreint undur, — fjárhagslega í rekstri hreint við- ,undur, segja flugsérfræðingar okkar tíma um Concorde þotuna hljóðfráu, sem í gærkvöldi heiðr- aði Keflavíkurflugvöll með lend- ingu sinni. Lending vélar af þess- ari brezk-frönsku gerð vekur hvarvetna athygli og þannig var það líka í gærmorgun á flugvellin- um. Blaðaljósmyndarar skáru sig ekki úr varðandi tækjakost. Mættir voru með myndavélar tugir Ijósmyndara, aðallega starfsmenn á flugvellinum. Concorde er ekki bara viðund- ur og undur í senn, — hún er líka ljót og falleg í senn. Falleg þar sem hún situr í spekt á jörðu niðri en líkust hrægammi þar sem hún gerir aðflug að flugvellinum með bogið nef og líkast því sem hún sé tilbúin að læsa klónum í bráð á jörðu niðri. Þessi flugvélartegund er smíði hundruða beztu sérfræðinga flugsins í Frakklandi, þar sem fín-smiðir eru á hverju strái, og brezkra völunda, sem fróðari eru um styrkleika og þol vélarhluta. Eftir margra ára deilur innan landanna varð Concorde loks að veruleika. Rúmlega 100 sæta vél sem flýgur á allt að 2200 kíló- metra hraða eða tvöföldum hraða hljóðsins. Concorde þotan sem kom við á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun var á dálítið sérkennilegu flugi. Flugi sem reyndar bendir okkur á að Island er alls ekki svo mjög úr Concorde í Keflavik, — þjónusluhilar Flugleiða i miklu ani og gestir streyma um borð. — Mvndir Hörður. Flugstjórnarklefinn á Concorde er ævlntýrl líkastur, — frumskóg- ur af tökkum, handföngum og ljósum. Catherlne Bertin flugfreyja, — líkar vel vistin um horð í fransk- brezku þotunni. h 1™'' 1 JK* v* M r 4 ' \ ,• /V / ■ * T.vær spænskar frá Vigo, — líkaði vel stuttur útúrdúr til íslands'með Concorde-vélinni. Hávaðasöm er hún, hljóðfráa þotan. Jacques de Latour Dejan sendiherra Frakka ra-ðir hér við Shwartz flugstjóra. alfaraleið lengur með tilkomu véla eins og Concorde. Farþegarnir voru um eitt hundrað Spánverjar sem unnið höfðu til verðlauna hjá stórverzl- un einni í Madrid, Parisarferð og flug með Concordeþotu frá Air France. Og hvert skyldi svo halda til að Spánverjarnir sæju eitthvað nýtt og fengju að fljúga svolítið með Concorde. Til íslands. Og í býtið í gærmorgun var haldið af stað frá Charles de Gaulle- flugvelli við París, — og einum klukkutíma og 52 mínútum síðar var lent á Keflavíkurflugvelli. Og hér fengu farþegar nokkurra klukkutíma viðdvöl og skoðunar- ferð um Reykjavík og nágrenni. Af Concordeþotum er það að segja að þær eru deilumál víða um lönd. New York hefur enn sem komið er lagt blátt bann við lendingum þeirra á Kennedy- flugvelli, en aftur á móti fá þær lendingarieyfi á flugvellinum við Washington. New York er aftur á móti lífsspursmál fyrir afkomu þessara hraðfleygu þotna. Talið er að stóru flugfélögin í Banda- ríkjunum standi að baki því að leyfi fæst ekki til lendinga í New York. Sextán þotur af Concorde-gerð hafa verið smíðaðar. Fjórar eru i flugi fyrir Air France, einkum á langleiðum til S-Ameríku og við- ar. British Airways á fimm þotur af Concorde-gerð, Iranair ráðger- ir kaup á þremur og möguleikar á sölu eða leigu til Braniff I Banda- ríkjunum á fjórum ef lendingar- leyfi fæst í New York. Og það tjáðu fulltrúar Air France okkur í gær að væri ekki útilokað að feng- ist innan tíðar Nokkrum vélum er óráðstafað. „Þetta er stórkostleg flugvél,“ sagði ein af flugfreyjum Con- corde-vélarinnar, Catherine Bert- in, ung og falleg stúlka sem hafði sveipað peysu um sig til að verjast mprgunkuldanum á Islandi. „Við flugum i 59 þúsund feta hæð og ferðalagið tók ekki nema rétt um tvo tíma. Við erum 6 í þjónustu- lióinu og það er svona rétt tími til að framreiða máltíð og eins og einn drykk á leiðinni frá París til Washington,“ sagði Catherine. Um klukkan 13 voru spönsku ferðalangarnir farnir að koma á flugvöllinn og kíktu í gósenland fríhafnarinnar. „Þetta er ákaf- lega skemmtileg reynsla að fljúga með þessari vél," sagði spönsk stúlka frá Vigo á Spáni, sem þarna var a ferð með vinkonu sinni. Tveimur tímum síðar áttu þær að vera komnar aftur til Mad- rid eftir sögulegt ferðalag með dálítið skrítilegum útúrdúr til ís- lands. -JBP- ^ViÖ þörfnumst Ef þú vilt aðstoða okkur hafðu þá samband við okkur í síma 12802 ... Ef þú vilt gcrast stofnfélagi þá sendu þcnnan miða til SAA - Frakka- stíg 14B - Rcykjavík, cða hríngdu í sima 12802 og við komum hcim til þín föstudaginn 30. scpt. Nafn Hcimilisfang Staða Simi L^Jt^Jt^ SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS CALLrLLJ UM ÁFENGISVANDAMÁUÐ SKRIFSTOFA: FRAKKASTlG 14B - SfMI 12802

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.