Dagblaðið - 28.09.1977, Blaðsíða 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977.
Umf ramgos af Vellinum
á Reykjavíkurmarkað
—ný merki Marango og Rum Cola
Marango og Rum cola — nýir
gosdrykkir á íslenzkum mark-
aði. „Sölunefnd varnarliðs-
eigna bjóðast oft ýmsar vörur
sem af ýmsum ástæðum seljast
ekki í verzlunum á Keflavíkur-
velli,“ sagði Alfreð Þorsteins-
son forstjóri nefndarinnar 1 við-
tali við DB i gær.
„t þessu tilfelli hafði „Navy
Exchange", verzlun bandaríska
hersins á Keflavíkurvelli, gert
of stóra pöntun og okkur voru
boðnir til kaups 900 kassar af
þessum gosdrykkjum sem að
öðrum kosti hefði verið hent,“
sagði Alfreð ennfremur.
Hann sagði að Sölunefndin
hefði tekið þessu tilboði enda
teldi hann yfirleitt ekki eðlilegt
að henda nýtanlegum hlutum.
„Ég hef ekki tekið neina
ákvörðun um hvernig staðið
mun að sölu á gosdrykkjunum
en tvennt kemur til greina.
Annað hvort að selja þá i verzl-
un okkar eða bjóða kaupmönn-
um að gera tilboð 1 vöruna.
Síðari kosturinn þykir mér
þó öllu líklegri,“ sagði for-
stjórinn.
„Að sjálfsögðu munum við
láta Heilbrigðiseftirlit Reykja-
víkurborgar taka sýni af gos-
drykkjunum og kanna hvort
nokkuð er athugavert við aldur
eða innihald þeirra," sagði
Alfreð Þorsteinsson að lokum.
-ÓG
Fá Jóhannes, Jón
Múli og Pétur
margra daga plötu
skammt í verkfall-
IIII ■ — hl jóðvarpið í verkfall
Verða nokkurra daga birgðir af
hljómplötum bornar inn í þular-
herbergi hjá hljóðvarpinu og
síðan leiknar eftir þörfum ef til
verkfalls opinberra starfsmanna
kemur?
Þetta er ein af þeim hugmynd-
um sem komið hafa fram í við-
ræðum kjaradeilunefndar og
Rikisútvarps um hvernig rekstri
og útsendingum hljóðvarpsins
yrði háttað í verkfalli.
Allir eru sammála um að opið
verði að nokkru fyrir neyðar-
þjónustu og veðurtilkynningar:
Bent hefur verið á að hljóðvarp
sem ekkert heyrist í lengstan
hluta dagsins sé lítils virði til
neyðar- og öryggisþjónustu. Til að
tryggja að sem flestir hafi tæki
sín opin verði að leika tónlist.
Ef úr tónlistarflutningi verður
á eftir að leysa vandamál í sam-
bandi við greiðslu Stef-gjalda og
skráningar vegna þeirra.
Þessi mál hljóðvarps i hugsan-
legu verkfalli munu skýrast
næstu daga en starfsfólk þess
mun sfður en svo hrifið af hug-
myndum um stöðugan tónlistar-
flutning.
-og
Stórir staflar af kössum með „Marango" ávaxtadrykk voru i birgðageymslu Sölunefndar varnarliðs-
eigna i gær þegar DB kom þar. 900 kassar koma væntanlega ft markað ft næstunni.
Það er eilfft efni lesendádftlka hvor er vinsælll og betrl lagaveljari Jón Múli eða Pétur Pétursson.
Kannski fæst skorlð úr þvi ef til verkfalls kemur og lögin glymja allan daginn. Þrlðji maðurinn sem
blandar sér í lagavalið verður þft Jóhannes Arason, þaulreyndur útvarpsþulur.
Er kominn tími til
að breyta kristnum
kenningum?
— ráðstefna um grundvallaratriði kristinnar
trúar um aðra helgi
Ráðstefna um nokkur grund-
vallaratriði kristinnar trúar
verður haldin um aðra helgi í húsi
KFUM og K að Amtmannsstíg 2B.
Meginástæður þessa ráðstefnu-
halds eru að félögin vilja leggja
áherzlu á að skýra nokkur höfuð-
atriði kristins boðskapar sam-
kvæmt evangeliskri-lútherskri
kenningu. Ymsir kunnir guðfræð-
ingar, prestar og kennarar munu
flytja fyrirlestra á ráðstefnunni
sem hefst föstudaginn 14. október
kl. 20.30. Ræðumenn verða prest-
arnir Guðmundur Óli Ólason, Jón
Dalbú Hróbjartsson og Jónas
Gíslason lektor, guðfræðingarnir
Gunnar Sigurjónsson, Hjalti
Hugason, Benedikt Arnkelsson,
Ástráður Sigursteindórsson og
Sigurður Pálsson námstjóri og
Benedikt Jasonarson kennari. A
sunnudaginn verður messa í Dóm-
kirkjunni þar sem séra Sigur-
björn Einarsson biskup predikar
og séra Hjalti Guðmundsson
þjónar fyrir altari.
I fréttatilkynningu um ráð-
stefnuna segir m.a.:
Við lifum á timum mikilla
breytinga í íslenzku þjóðfélagi
þegar ýmsir taka að efast um
margt það sem áður þótti sjálf-
sagt. Þetta kemur glöggt fram á
sviði trúmála. Margir spyrja um
kristna kennipgu og grundvöll
hennar. Telja ýmsir að kominn sé
timi til að breyta sumu þvl sem
kennt hefur verið í þeim efnum
og snúa sér að öðrum kenningum,
kirkjudeildum eða trúarbrögðum.
Seinustu ár hafa ýmsar hreyf-
ingar og stefnur borizt hingað til
lands sem standa á öðrum kenn-
ingargrundvelli en hin evangel-
isk-lútherska. Er þar bæði um að
ræða fylgjendur annarra kirkju-
deilda og ýmsa aðra trúflokka
sem sumir hverjir geta ekki talizt
kristnir þar sem þeir afneita
ýmsum meginatriðum sem flestar
kirkjudeildir eru sammála um.
Ráðstefnan er opin öllum sem
óska að taka þátt en tilkynna
verður þátttöku til skrifstofunnar
I húsi KFUM fyrir 3. október og
er þátttökugjald innan við
þúsund kr. Eru kaffiveitingar
innifaldar. Föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld verða al-
mennar samkomur I Dómkirkj-
unni og öllum heimill aðgangur
að þeim endurgjaldslaust.
Heimilis
reykskynjarinn
frá LPálmason hf
Skynjar jqfnl ósynileyar sem sýnileyar loftteyundir sem
myndast viö bruna a hyrjunarstiyi.
Erkniiinn rqfhlöóu sem endisf minnst i eitt ái:
Gefur merki þeyar endiirnyja fxirf mfli/öóu.
Auóveldur i uppsetninyu.
Hér er um aó ixeóa ódýrt ÖR) GG/STEK/ sem enyin
jjölskylda hefiir efniá aó vera án!
- A.BJ.