Dagblaðið - 28.09.1977, Page 2
2
/*
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SF.PTEMBER 1977.
ÁRINNIKENNIRILLUR RÆÐARI
Einar S. Einarsson forseti
Skáksambands tslands skrifar:
Hinn 21. sept. sl. birtist í
blaði yðar rætin grein í garð
stjórnar Skáksambands Is-
lands, minnogHögna Torfason
ar eftir Þorstein Guðlaugsson
kennara, formann Skákfélags-
ins Mjölnis. Fylgir hann þar
eftir fréttatilkynningu frá aðal-
fundi Mjölnis (DB 14/9)
„Skáksambandið svipt arfin-
um“ og umsögn minni um hana
í fréttaviðtali daginn eftir.
Ekki verður sagt að mikið
fari fyrir sannleiksástinni hjá
þeim sem halda á penna fyrir
Mjölni og er skemmst frá að
segja að skrif þessi eru öll hin
lágkúrulegustu og svo full af
dylgjum, rangtúlkunum og hel-
berum ósannindum að þau eru
ekki svaraverð.
Þess í stað vil ég hér aðeins
koma á framfæri nokkrum upp-
lýsingum ef verða mætti til út-
skýringa fyrir háttvirta lesend-
ur Dagblaðsins.
Skákfélaginu Mjölni var
formlega veitt upptaka í Skák-
samband tslands á aðalfundi
þess í apríl 1976 en hafði þó
áður tekið þátt og sigrað í
deildakeppni Sl veturinn 1975-
76. Það hefur fullan og óskorað-
an rétt til að starfa eðlilega
innan vébanda Sl á sama hátt
og önnur skákfélög landsins.
Á aðalfundi Sl er það afl
atkvæða sem ræður um kjör
manna 1 stjórn og nefndir en
fulltrúatala eða atkvæðamagn
hvers félags fer eftir félags-
mannafjölda. Á síðasta aðal-
fundi voru mættir 53 fulltrúar,
23 frá Taflfélagi Reykjavíkur,
13 frá Skákfélaginu Mjölni og
17 frá 10 öðrum félögum.
Á sl. starfsári átti Mjölnir
mann í stjórn Sl en stjórnin er
skipuð 7 mönnum og 3 til vara.
Er leið að aðalfundi sl. vor og
ljóst var að 4 af 10 stjórnar-
mönnum ætluðu ekki að gefa
kost á sér áfram, þ.á m. sá úr
Mjölni, og aðrir sóttust ekki
sérlega eftir kosningu voru það
eðlileg viðbrögð að láta tvö
stærstu aðildarfélögin, TR og
SM, vita til þess að reyna að ná
samstöðu um skipan nýrrar
stjórnar á sem breiðustum
grundvelli.
Hörgull er jafnan á áhuga-
sömum mönnum til félags-
starfa, ekki hvað sízt þegar um
jafnkrefjandi og tímafrek störf
er að ræða og verið hefur und-
anfarið i stjórn Skáksambands-
ins.
Tilgangurinn með því að at-
huga þessi mál fyrirfram var
m.a. sá að reyna að koma á
málamiðlun milli hinna stríð-
andi fylkinga Taflfélags
Reykjavíkur og Skákfélagsins
Mjölnis sem eldað hafa grátt
silfur.saman.
Markmiðið var að reyna að
tryggja Mjölni mann í stjórn Sl
með því að veita þeim upplýs-
ingar og forða því að þeir stilltu
upp einhverjum þeim sem
fyrirfram var vitað að ekki
myndu njóta stuðnings fulltrúa
TR, hversu réttlát sem sú af-
staða nú annars er, en þeir eru
fjölmennasti hópurinn á aðal-
fundinum.
Aðalfundurinn hefur það í
hendi sér hvort þeir sem fyrir
eru í stjórn verða þar áfram og
hverjir eru kosnir nýir. I stjórn
eru menn kosnir sem einstakl-
ingar en ekki sem fulltrúar fé-
laga. Meirihluti núverandi
stjórnar naut stuðnings mikils
meirihluta atkvæða og þar með
fulltrúa Mjölnis. Fóru kosning-
ar vel fram og friðsamlega og
enginn skrípaleikur var þar
hafður í frammi. Enginn
hreyfði andmælum við upp-
ástungum um fulltrúa í stjórn
en atkvæðamagn réð að sjálf-
sögðu hverjir hlutu kosningu. I
stjórn Sl sitja nú menn úr 8
félögum.
Stjórn Skáksambands Is-
lands hefur á engan hátt gert
eitt né neitt á hlut Skákfélags-
ins Mjölnis og telur að það sé
full þörf fyrir fleiri skákfélög í
höfuðborginni. Stjórnin hefur
þvert á móti reynt að bera
klæði á vopnin í innbyrðis deil-
um þess og Taflfélags Reykja-
víkur, þrátt fyrir það að Mjöln-
ir hafi frá upphafi ekki verið
með annað en ónot og tilefnis-
lausar ásakanir á stjórn Sl,
bæði i ræðu og riti, sem ekki
getur beinlínis talizt viðleitni
til þess að vilja starfa eðlilega.
Það er mikið alvörumál að
beina svona skeytum að þeim
sem Ieggja sig alla fram um að
láta gott af sér leiða og vinna
fórnfúst sjálfboðastarf í þágu
landssamtaka skákhreyfingar-
innar.
Hvorki ég né stjórn Sl hef
áhuga á að standa i ritdeilum á
síðum fjölmiðla við Þorstein
Guðlaugsson eða aðra úr
Mjölni. Við munum leggja störf
okkar óhikað undir dóm næsta
aðalfundar Skáksambandsins
en þangað til hvetjum við til
þess að Mjölnismenn ræði sín
mál við okkur á heiðarlegum
grundvelli og á réttum vett-
vangi, það er á sameiginlegum
fundum, sem þeir hafa ekki
sinnt um að gera en staðið
hefur til boða og stendur enn.
„Á valdi formanns hvort ég fór í framboð”
—svar Haralds Blöndal vegna f ullyrðinga um Skáksamband íslands
Haraldur Blöndal skrifar:
I vor var ég spurður að því.
hvort ég vildi taka sæti i stjórn
Skáksambands Islands, ef fylgi
til þess fengist. Ég svaraði þvl
til, að teldi Skáksambandið sig
hafa not af mér, þá væri ég
tilbúinn að vinna fyrir það.
Hins vegar væri ég ekki í neinu
skákfélagi — og kvaðst helst
vilja vera félagi í Mjölni, ef það
væri skilyrði að vera í ein-
hverju aðildarfélagi.
Ég þekki suma af félögunum í
Mjölni og vildi þess vegna vera
þar.
I framhaldi af þessu hafði ég
samband við m.a. Þorstein Guð-
laugsson, formann Mjölnis. 1
okkar samtali kom skýrt fram,
að ég ætlaði ekki að leggja stein
i götu hans félags og ef hann
teldi mig gera það, þá skyldi
hann segja nei við framboði
mínu. Jafnframt sagði ég hon-
um, að hann gæti hvenær sem
væri, og hefði til þess umboð
mitt, lýst þvf yfir, að ég væri
ekki f kjöri. Þessa afstöðu mfna
tilkynnti ég jafnframt Högna
Torfasyni.
Á aðalfundi Skáksambands-
ins, þar sem ég var að sjálf-
sögðu ekki viðstaddur, enda
ekki fulltrúi, var stungið upp á
mér f varastjórn. Þorsteinn gat
þá lýst því yfir, að ég væri ekki
í kjöri og hefði framboð mitt
þar með verið úr sögunni. Það
gerði hann ekki og var ég kjör-
inn úr hópi fleiri manna.
Ég kom boðum til stjórnar
Mjölnis um, að ég væri reiðubú-
inn að flytja mál þeirra á
stjórnarfundum, ef þeir óskuðu
eftir og staða mín sem varafull-
trúa leyfði. Sömuleiðis sagðist
ég vera reiðubúinn að mæta hjá
þeim, ef þeir óskuðu, og svara
til um störf Skáksambandsins,
enda raunar eðlileg vinnubrögð
að gera slfkt. Ég vissi af þvf, að
Mjölnir leitaði að hentugu hús-
næði fyrir skákiðkanir. Reyndi
ég að vera þar til aðstoðar og
benti á húsnæði, sem að mfnum
dómi er mjög hentugt fyrir
skákfundi, enda í miðbænum.
Ég veit ekki til þess að þar hafi
orðið af samningum.
Ég veit ekkert um deilur
Mjölnis við Taflfélag Reykja-
víkur né um forsögu þess að
félagið var stofnað. Hitt get ég
fullyrt, að forysta Skáksam-
bands Islands er reiðubúin að
vinna það sem hægt er Mjölni
til gagns.
Ég læt lesendur dæma um,
hvort ég hef lagt stein í götu
Mjölnis með þvf að leggja á
vald formanns þeirra, hvort ég
væri f framboði á aðalfundi
Skáksambands íslands.
/ //
' /")'1 '7 ck' f f*
-t /C
c.
A Islandi aka yfir a ___
2B00HMR
fwoALuiwehítioti
Daglega f jölgar þeim bílum, sem aka með þessum bún-
aði, enda er platínulausa transistorkveikjan frá
LUMENITION örugg fjárfesting, sem margskilar
hagnaði. Yf ir 2ja ára reynsla íslenzkra ökumanna hef-
ur staðfest tvennt:
Raunverulegur benzínsparnaður er a.nrt.k. kr. 8 pr.
Itr. Meðaltal sem miðast við kr. 88 pr. Itr.
Gangöryggi, sem tryggir stöðuga hámarksnýtingu vél-
araflsins. Algengustu gangsetningarvandamál og
rykkjóttur akstur með kaldri vél eru úr sögunni.
Spyrjiö LUMENITION-eigendur um þeirra reynslu.
fiBEi HABERGht
Skelfunni 3e • Simí 3*33*4S
> t K
Q<
/jp/l ,
. /p,-,
-■ f\ -
/?-\—i JjLj (c^
a
/
c<i//j / íí,M___
.yí /?(_/ t; ■■-. _ í
Ctr..~é • /? A h ^ /
' _ - r r /7/ r
. t i' -f~y «.
__/Mk;,
,-.y
v- C ■ C <, ■ ■**■£ ■
( .■V'Vf.íVr
..,. .*> á n
/%//íy /y.
,'■ ' ’■ / ©‘-V ( L ' (7 ■" *
EKki aiveg nógu gott.
skrifað
bréf
um þuli
Hér liggur bret trá manni
einum þar sem hann ræðir um
það hvílík fásinna það sé að
vega og meta útvarpsþuli, það
verði hvort eð er ekki
annað en matsatriði hvor eða;
hver sé beztur. En þvf mið-
ur er bréfið svo illa skrifað að'
bæði mér og fleirum hefur
reynzt með öllu ókleift að
komast fram úr þvf. Þetta
hefur orðið tilefni til þess að
fara fram á það við þá lesendur
sem leggja vilja orð f belg á
þessari sfðu að þeir vandi skrift
sína eftir föngum. Bezt er vita-
skuld að fá bréfin vélrituð en
verði þvf ekki við komið eru
blokkstafir ágætir. Góðir skrif-
stafir og skýrir eru heldur
ekkert til að kvarta út af en
hrafnaspark getum við hrein-
lega ekki lesið.