Dagblaðið - 28.09.1977, Side 3

Dagblaðið - 28.09.1977, Side 3
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977. 3 Vigni eftir há- degi og Jón og Valgerði aftur Baldur Birgisson skrifar: Mig langar að koma á fram- færi þakklæti til útvarpsins og Vignis Sveinssonar fyrir mjög svo skemmtilega og vel unna poppþætti hans á sunnudags- morgnum og þeirri ðsk að færa þættina fram yfir hádegi ef mögulegt er. Einnig langar mig að minnast á athyglisverða þætti þeirra Jóns Björnssonar sálfræðings og Valgerðar Magn- úsdðttur, Byrgjum brunninn, þar sem þau fjölluðu um skilnað og börn skilinna for- eldra. Vænt þætti mér og fleir- um um ef útvarpsráð sæi sér fært að endurtaka þessa þætti síðar. i I 3 KRAKKAR Hjálpið okkur að velja nöfn á mjaltakonuna og kúna, sem sjást hér að ofan. Þœr eru tákn miólkur oe miólkurqfurða. sem hafa verið orkulind okkar og heilsugjafi um aldir. VewMaun Arsnyt úr fyrsta kálfs kvígu á Brúnastöðum í Hraungerðishreppi, Amessýslu. Sigurvegara gcetu þannig áskotnast 200 - 300 þtisund krónur. Sendið tillögur til Upplýsingaþjónustu landbtinaþarins, Bcendahöllinni, pósthólf 7040, Reykjavik fyrir 31. október n.k. injólk oú mjolkurafutöir orkulindi J okkar oj* heilsugjafi Hg lcgg til ji) k\vin hciti: ~*£- og mjaltakcnun: Nafn sctuLinda: Hcinnlt: Simi: Kaupítaihir/Svsla: Kynbundin auglýsing frá landbúnaðarmönnum —Skorað á þá að nema hana þegar úrgildi 1623-9259 skrifar: Ég sendi ykkur á Dagblaðinu hérna eina blaðaúrklippu sem mér finnst lýsa betur en tiu þúsund orð fávisi forráða- manna landbúnaðarins. Efna á til verðlaunasamkeppni meðal barna um að finna nöfn ð kúna og konuna sem við hana situr. Mér er spurn: á að koma þvi inn hjá börnum að það sé alveg ófrávíkjanleg staðreynd að það séu konur sem mjólka kýr? Og eiga konur þar af leiðandi að vera tákn mjólkur og mjóikur- afurða ásamt beljum? Er það nú ekki fulllangt gengið? Gera forráðamenn landbún- aðar sér enga grein fyrir að í ár er árið 1977 en ekki átján- hundruð og eitthvað? I ár mjólka konur jafnt sem karlar kýr og finnst mér það vera á karla hallað að koma því inn hjá börnum, viljandi eða óvilj- andi, að það séu. eingöngu konur sem sjá um mjaltir. Ég vil leyfa mér að skora á landbúnaðarsamtök að taka þessa auglýsingu þegar út úr blöðum og breyta henni þannig að ekki sé hallað á annað kynið. Einnig finnst mér þarna vera komið þarft verkefni fyrir jafn- réttisráð. Vignir Sveinsson snýr plötu. RÍKISBÁKNIÐ Loðnuveiðimaður skrifar: Fer allt útfiutningsverðmæti loðnuaflans í vetur og sumar, 12 til 15 miiljarðar, i kjara- bætur handa starfsmönnum ríkis og bæja? Það kemur fram að með sáttatilboði og áður fengnum kjarabótum á árinu verði út- gjöld ríkisins til starfsmanna þess sjö og hálfur milljarður á árinu. Þá eru eftir starfsmenn banka, bæjar- og sveitarfélaga, til þeirra fer vart undir 2 til 3 milljörðum. Nú eru hlutaðeigendur sam- mála um að þetta tilboð sé allt of lágt og beri að fella það, má því búast við að endanleg upp- hæð verði 12 til 15 milljarðar á árinu. tJtflutningsverðmæti loðnu- aflans í ár er áætlað 12 til 15 milljarðar eða þrisvar sinnum hærra en í fyrra. Fer nú ekki skrifborðsjata ríkisins að verða fullsetin?? Raddir lesenda Fer þetta ailt f kjarabætur handa opinberum starfsmönnum? spyr bréfritari. DB-mynd Arni Páll. Skömmtunarseðla fyrir kjöti og töbaki handa öldruðum og öryrkjum 2494-5537 hringdi til þess að koma þeim tillögum á fram- færi að aldraðir og öryrkjar fengu sérstaka skömmtunar- seðla fyrir kjöti og tóbaki. Taldi hann það ekki ná nokkurri átt að kjöt væri flutt út og greitt svo og svo mikið með því á meðan aldraðir og öryrkjar yrðu að kaupa sér bein sem búið er að skera allt kjötið af til hakkgerðar og lifa á þeim. Enginn maður sem hefur ekkert annað sér til framfæris en ellistyrkinn eða örorkubæturnar hefúr efni á að kaupa sér annað en svo- leiðis kjöt. Um tóbakið sagði hann að margir aldraðir hefðu allt sitt Iff brúkað það og væri full- seint að venja sig af þvf á gamals aldri. Því ættu aldraðir og einnig öryrkjar að fá tóbak á innflutningsverði. Spurning dagsins' Ætlarðu að taka slátur? Inga Annasdóttir, vinnur f frysti- húsi: Nei, ég ætla ekki að taka slátur. Það tekur því ekki og svo er ég llka alltaf að vinna. Guðrún Andrésdóttir, ð eftlrlaun- um: Nei, ég tek ekki slátur. Mér finnst það vont og það borgar sig ekki þar sem ég er bara ein i heimili. Guðmundur Hákonarson sjó- maður: Ég, nei. Hins vegar held ég að konan ætli að taka slátur, ég veit ekki hvað mikið. Ég get ekki mikið aðstoðað þar sem ég er alltaf úti á sjó. Anna Karlsdóttir húsmóðir: Nei, ég stend ekki I því. Hinum á heim- ilinu hjá mér finnst það lfka ekk- ert gott þó mér finnist það. Baldur Jónsson íþróttavallar- stjórl: Auðvitað. Þetta er sko lifs- ins elexfr. Það er ekkert ár sem maður fær ekki súrt slðtur. Allir nútfmakvillar stafa fyrát og fremst af þvf að fólkið étur það ekki. íþróttamönnunum væri t.d. skammar nær að éta slðtur og skyr og rúgbrauð heldur en þetta eilffa kók og prins póló. Magdalena Elfasdóttir skrifstofu- stúlka: Nei, það hef ég aldrei lært og langar ekkert til að læra. Mér þykir slátur vont.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.