Dagblaðið - 28.09.1977, Page 6

Dagblaðið - 28.09.1977, Page 6
fi DACJBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977. Þróunarstofnun Reykjavíkurborgar óskar að ráða í skrifstofustarf nú þegar, í starfinu felst m.a. vélritun og simavarzla. Umsóknir sendist til Þróunarstofnunar Reykjavíkur- borgar, Þverholti 15. Bílaval auglýsir: Seljum í dag Mazda 121 Sport Cupe árg. 77,2ja dyra, ekinn 12 þús. km. Litur silfurgrár. Bílaval Laugavegi 92, sími 19092 og 19168 I sláturtíðinni Húsmæður athugið: Að venju höfum við til sölu margar gerðir vaxborinna umbúða, hentugra til geymslu hvers- konar matvæla sem geyma á í frosti. Komið á afgreiðsluna. Kassagerð Reykjavíkur, Kleppsvegi 33. Verzlun til sölu Þekkt barnafataverzlun, með góð viðskiptasambönd er til sölu, góðir greiðsluskilmálar ef samið er strax. Uppl. í síma 28720. Bif reiðaeftirlit ríkisins tilkynnir Vegna aðsetursskipta verðurbifreiðaeftirlitiðí Reykja- vík lokað mánudaginn 3. og þriðjudaginn 4. okt nk. Miðvikudaginn 5. okt. verður opnað á ný að Bíldshöfða 8. Afgreiðslan er opin frá kl. 8.00 til 16.00 alla virka daga, nema laugardaga. Reykjavík, 28. september 1977. Bifreiðaeftirlit ríkisins. Blaðburðarbörn óskast strax i eftirtalin hverfí: Skúlagötu 54 og út Rauðarárstíg Ásgarð Hólmgarð frá 36 og út Garðabæ Lundir Sóleyjargata, Fjólugata Upplýsingar í síma27022 IMMBIAÐIÐ Tjáningarfrelsi er ein meginforsenda þe: ad frelsi geti vidhaldizt I í samfélagi. ' Namibía: Viðræður um framtíð landsins sigla í strand — Suður-Afríkaneitarað fara með hersveitir sínar úr landinu Viðræður um framtíð Namibíu, eða Suðvestur- Afríku, hafa siglt í strand, eftir að Suður-Afríka hefur neitað algjörlega að kalla þaðan her- sveitir sínar. Samkvæmt upplýsingum frá Pretoríu virðist ekki mögulegt að ná samkomuiagi um framtíð landsins, meðan þar eru her- sveitir frá Suður-Afríku. Stjórnvöld í Suður-Afríku hafa þvertekið fyrir að hersveitirnar verði á burt úr landinu. Lá við að fundurinn færi algjörlega út um þúfur þegar svar kom frá Suður-Afríku. Undanfarið hefur verið rætt um framtíð landsins og í þeim viðræðum hafa tekið þátt Bretland, Frakkland, Vestur-Þýzkaland, Bandaríkin og Kanada. Fulltrúi Bandaríkjanna i viðræðunum, sem var formaður nefndarinnar, sem ræddi um framtíð Namibíu, sagði að lokn- um fundinum, að nú væri ekk- ert hægt að segja um hverja stefnu viðræðurnar tækju. „Það er ekkert að gera annað en fara til heimalanda okkar og tilkynna niðurstöður fund- anna,“ sagði fulltrúi Banda- ríkjanna í viðræðunefndinni. Þinghúsið í Windhoek í Suðvestur-Afríku, eða Namibiu. Suður-Afríka: Utanríkisráðherrann gagnrýnir harðlega samþykkt EBE Utanríkisráðherra auður- Afriku hefur gagnrýnt iiýlega samþykkt Efnahagsbandalags Evrópu þess efnis að bæta vinnu- aðstöðu og afnema kynþáttamis- rétti í fyrirtækjum bandalagsins í Suður-Afríku. Pik Botha hefur gefið yfirlýs- ingu um þetta mál þar sem hann mótmælir þeim mikla gagnrýnis- tóni sem fram kemur í samþykkt Efnahagsbandalagsins. Botha sagði að þessi samþykkt dygði fyrst ef henni væri beitt um allan heim. ,,Þeir hafa engan einkarétt á siðfrieði og þeir ættu að gefa betri gaum að því sem fram fer í þeirra eigin lönduni áður en þeir fara að gagnrýna aðra." sagði Both a. Samþykktin gerir það að verkum að siðfræðilega er fyrir- tækjum ekki stætt á því að ráða aðeins hvita menn í vinnu. Einnig verða menn að greiða blökku- mönnum hærra kaup og hleypa þeim inn i verkalýðsfélög. Botha utanríkisráðherra sagði að hann tæki þessa samþykkt Pik Botha. ekki til greina nema henni yrði beitt í öllum þeim löndum þar sem Efnahagsbandalagið hefur fyrirtæki.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.