Dagblaðið - 28.09.1977, Síða 8

Dagblaðið - 28.09.1977, Síða 8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977. íslenzku f iskiskipin streyma til Þýzkalands Átta skip sel ja af la í Þýzka- landi á næstu dögum Sölumet v.b. Gunnars frá Reyðarfirði sem skipið náði sl. mánudag er það fékk 224 krón- ur brúttó fyrir hvert kíló af ufsa er það landaði þar, stóð ekki nema í viku. Á mánudag- inn bætti metið v.b. Snæfugl, frá sömu útgerð á Reyðarfirði. Hann seldi 47.9 tonn í Bremer- haven fyrir 123.688 mörk eð^ 229 kr. brúttó fyrir hvert kfló. Skiptaverðið er 163.20 krónur en var 159 kr. hjá áhöfninni á Gunnari. Þýzkalandsmarkaðurinn hefur verið góður að undan- förnu en þó mjög misjafn eftir þvl hvaða afla er um að ræða, samkvæmt upplýsingum frá LÍO. Sama dag og Snæfugl seldi í Bremerhaven seldi skuttogar- inn Vestmannaey 134.3 lestir í Cuxhaven. Aflinn seldist á 250 þúsund mörk. Meðalskiptaverð ákíló er 117.60 kr. Karlsefni seldi síðan afla sinn á mánudag og þriðjudag. Skipið landaði 173,4 tonnum og fékk fyrir aflann 207.629 mörk. Meðalskiptaverð hjá Karls- efnismönnum varð því 70.34 kr. Meginhluti aflans var karfi og hann smár en slíkur fiskur er I lágmarksverði I Þýzkalandi sem annars staðar. Skuttogarinn frá Grindavík selur I dag, miðvikudag, en síð- an verður ekki um fleiri land- anir Islenzkra skipa að ræða I — Snæfugl bætti sölumetið — fékk 229 krónur brúttd fyrir hvert kíld af stdrum ufsa Þýzkalandi I þessari viku. í næstu viku er þegar vitað um að sjö íslenzk skip landi I Þýzkalandi. Leyfi til sölu er- lendis veitir viðskiptaráðu- neytið hverju sinni. Að þvi er bezt er vitað mun aldrei standa á slíkum leyfisgjöfum heldur er þar fremur um formsatriði að ræða. -ASt. BLÖÐIN STÖÐVAST EKKI VEGNA VERKFALLSINS eykst upplag þeirra vegna lokunar útvarps og sjdnvarps? Dagblöðin munu ekki þurfa að stöðva útgáfu sína þó til verkfalls komi hjá Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja. Um næstu helgi munu þau flest eða öll fá pappírssend- ingar sem síðan væri hægt að greiða og tollafgreiða næstu daga þar á eftir. Munu þessar pappírsbirgðir nægja fram að næstu áramót- um, samkvæmt upplýsingum, sem DB hefur aflað sér. Truflun mundi aftur á móti verða töluverð á sendingum dagblaða út á land þar sem ljóst er að hugsanlegt verkfall mundi stöðva allar póstsend- ingar. Á móti samdrætti á út- breiðslu vegna stöðvunar á dreifingu út á landsbyggðina er ekki talið ólíklegt að upplag þeirra muni aukast verulega á Reykjavlkursvæði ef frétta- flutningur beggja ríkisfjölmiðl- anna stöðvast. Ef flug innanlands stöðvast fellur einnig niður sending með flugvélum til stórra sölustaða eins og kaupstaða fjarri Reykjavík. Enn er ekki ljóst hvort flug mun algjörlega stöðvast — og er það ein af óútkljáðum spurn- ingum, sem liggja fyrir kjara- deilunefnd. í henni eiga sæti fulltrúar beggja deiluaðila og oddamenn tilnefndir af Alþingi. Það eina sem hugsanlega gæti stöðvað útgáfu dagblaða væri skortur á ýmsum rekstrar- vörum sem tilheyra setningu þeirra og prentun. -ÖG Sáningarbfllinn á fullu fyrir Vegagerð og varnarlið — Gdðum árangri þegar náðen næg verkefni fyrir höndum I sumar hefur nokkuð verið fegrað til I nágrenni Keflavíkur- flugvallar og hefur varnarliðið kostað nokkru fé til þeirra hluta. Þannig tók Sáning hf., sem hefur yfir að ráða afkastamiklum sáningarbíl með tilheyrandi tækjum, að sér að sá I um 15 hektara svæði þar syðra. Hafði áður verið jafnað yfir gamla ösku- hauga og gamlar malarnámur skammt frá Rockville. Jón Ingi Sigursteinsson hjá Sáningu hf. sagði að verkefni bíls- ins hjá varnarliðinu hefði verið smátt. Aðalverkefnið á hverju ári væri fyrir Vegagerðina og ýmsa verktaka hennar. Jón sagði að bíllinn hefði árlega undanfarin 5 ár farið hringferð um landið til sáningar og til áburðardreifingar á staði þar sem áður hefði verið sáð. Sáning hefði gengið vel en er þó erfiðleikum háð þar sem lítið rignir. Hefði árangurinn af þeim sökum verið lakastur á þurrka- svæðunum á Norð-Austurlandi en mjög góður hér suðvestanlands. Bíllinn sem notaður er hefur fimm tonna tank og I honum er hrærður saman áburður, fræ og stundum bindiefni þar sem jarð- vegur er harður og mjög vinda- samt er. Gallinn er sá að bindi- efnið er mjög dýrt og væri þvi minna notað af því en ástæða væri til. Verkefni bílsins eru vissulega næg og hvert sumar er hann að svo til nótt sem dag enda sumarið stutt. Mjög víða sjást þess nú ánægjuleg merki þar sem bíllinn hefur farið um. Er um minnst tveggja ára vinnu að ræða á hverjum stað. Fyrst er sáð fræi og áburði og árið eftir aftur áburði. Nýbyggingar vega hafa dregizt nokkuð saman en við þær er bíls- ins góða með fræið mjög þörf. En nóg er af eldri sárum sem græða þarf þó nokkuð hafi áunnizt I þeim efnum. Verkefnin eru þvl næg. - ASt. = HÓLASPORT = HÓLAGARÐI - BREIÐH0LTI KARATE Karatebúningar Karatehlrfar Karatebelti Sparkpúdar Karatebindi Karateskeljaro.fi. Regngallar Margir litir-Allar stæröir Póstsendum um land allt HÓLASPORT - LÓUHÓLUM 2-6 - SÍMI75020 Tveir ungir sveinar, þeir Kalii og Halli, halda hér á tizkukettlingnum góða. — DB-mynd Hörður. KÖTTUR ÍTÍZKUBÚÐ Þessi bráðfallegi kettlingur kom labbandi út úr tízkubúðinni Evu á Laugavegi 42 í gærdag. Hann var hálfumkomulaus greyið en var strax tekinn I fóstur af góðu fólki. Kettlingurinn er ljós- grábröndóttur með hvítar loppur. Greinilega er þetta heimilisdýr sem einhverjum er kært. Um hálsinn ber hann rautt hálsband. Nú er bara að hringja I síma 75495, þar er litla Brand/Bröndu að finna. Eskifjörður: Bankafolk íyfirvinnu við talningu peninga Kartöfluuppskeru á Eskifirði er nýlokið og verður hún að telj- ast sæmileg en ekki eins góð og I fyrra, þegar hún var aldeilis frá- bær. Berjaspretta er sömuleiðis mjög góð, en fólk hefur ekki get- að notfært sér það, vegna mikillar vinnu. Sérstakjega ekki vörubíl- stjórar eða starfsfólk Landsbank- ans hér. Starfsfólk Landsbankans vinnur nú öll virk kvöld vikunnar til klukkan 10 og 11 og alla laug- ardaga og sunnudag, svo mikið er aðstreymi peninganna. Fær það að vísu frí einn klukkutíma á sunnudagsmorgnum, en þá mess- ar okkar ágæti ungi prestur I Eskifjarðarkirkju. Standa þó vonir til þess að bankafólkið fari að vinna eðlileg- an vinnutíma á ný, því nú fer fólk að koma úr sumarfríi þar. Veður er hér gott og I kvöld er Hólmanesið væntanlegt úr slipp á Akureyri. Togarinn Hólmatindur hefur komið inn vikulega með um 50 til 60 tonn af vænum þorski. Regína-HP. Hefopnað tannlæknastofu að Láugavegi 18 a. Viðtalsbeiðnum veitt móttaka í síma 10452. Jón Viðar Arnórsson tannlœknir.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.