Dagblaðið - 28.09.1977, Side 13
12
DACBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUK 28. SfJPTEMBER 1977.
DAUBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 1977.
13
Iþróttir
Iþróttir
Iþróttir
iþróttir
Iþróttir
ÍA — Brann
— í Evrópukeppni
ó Langasandi ó
Akranesi í dag
Evrópustemmning
ó Skaganum
Það verður Evrópustemmning á Akranesi í
dag. Fyrsti Evrópuleikurinn sem þar hefur
verið háður hefst kl. fimm milli Akraness og
Brann frá Noregi á grasveliinum á Langa-
sandi í Evrópukeppni bikarhafa. 1 fyrri leik
liðanna í Björgvin sigraði Brann með 1-0.
Akurnesingar þurfa því að vinna leikinn í
dag með tveggja marka mun —- en hins vegar
kemst norska liðið áfram í keppninni ef það
sigrar, gerir jafntefli eða tapar með eins
marks mun og skorar mark.Vinni Akranes
1-0 verður framlengt og nægi það ekki —
vítaspyrnukeppni.
Allir Akurnesingar standa að baki liði sínu
í dag — frí nær alls staðar og greinilegt, að
margt verður um manninn á Langasandi. Frá
Reykjavík fer Akraborgin kl. 15.45 og aftur
til baka að leik ioknum. Forsala er á skrif-
stofu Akraborgar og ættu menn að nota sér
hana til að forðast þrengsli, þegar upp eftir
kemur.
„Við höfum mikia sigurmöguleika — ég er
bjartsýnn á úrslitin," sagði George Kirby,
þjálfari ÍA og það eru leikmenn ÍA líka.
Allir beztu leikmenn liðsins leika gegn Norð-
mönnunum og hafa búið sig vel undir
leikinn.
Ali í hringinn
„Shavers fer tii himnaríkis í sjöundu —
Shavers leaves for heaven in seven“, sönglaði
Muhammad Ali, heimsmeistarinn í þunga-
vigt í hnefaleikum — „eða eigum við að
breyta því. Shavers steypist í gólfið í fjórðu
— Shavers hits the floor in four.“
Annað kvöid ver Ali hcimsmeistaratitii
sinn og slæst við Ernie Shavers, sem er
talinn þunghöggastur þeirra, sem nú berjast
í þungavigt. Hefur stöðvað 52 af 54 mótherj-
um sinum í hringnum. Hann er 33ja ára og er
ekki talinn hafa möguleika gegn Ali — 35
ára — þrátt fyrir sín miklu högg. Lcikurinn
fer fram á Madison Square Garden í New
York — og Ali var í miklu stuði, þegar hann
og Shavers ræddu við blaðamenn í gær.
Ali talaði í Ijóðum lengstum eða þar tii í
lokin að hann sagði. Ali segir að hann sofi
eins og lítið barn — og keppnín við Shavers
veldur honum ekki nokkrum áhyggjum.
Shavers er bara áhugamaður. Enginn hraði
— enginn klassi. Þetta verður ekki nokkur
keppni.
Stórar tölur
í Luxemborg
AZ '67 Hollandi sigraði Rauðu strákana,
Differdange, í Luxemborg mcð 5-0 í síðari
leik liðanna í UEFA-keppninni i gær. í fyrri
leiknum sigraði AZ með 11-1 og því 16-1
samanlagt í báðum leikjunum. Staðan i gær
var 3-0 í hálfleik. Kist skoraði þrjú mörk —
van Hanegem og Rijnsoevcr eitt hvor. Ahorf-
endur 2500.
í Kaupmannahöfn sýndi KB snilidartakta í
sömu keppni gegn Dundee Utd. og sigraði
3-0. Torsten Andersen skoraði öll mörkin í
síðari hálfleik. Fyrri leiknum lauk með sigri
Dundee Utd. 1-0 — svo KB vann samanlagt
3-1. Þau úrslit koma talsvert á óvart, því
Dundee-Iiðið er í öðru sæti í sko/.ku úrvals-
deildinni. Ahorfendur í Iföfn í gær voru
9000.
Bíða eftir svari
frá St. Etienne
Manch. Utd. bíður nú eftir svari frá
forráðamönnum franska liðsins St. Etienne
hvort þeir fallist á að siðari leikur liðanna í
Evrópukeppni bikarhafa verði háður í Abcr-
deen á Skotlandi næstkomandi þriðjudag.
„Aberdeen vill lána okkur völl sinn á
þriðjudag en við getum ekki ákveðið hvort
leikurinn verður háður þar fyrr en við
höfum heyrt frá St. Etienne," sagði sir Matt
Busby, stjórnarmaður hjá Man. Utd. i ga>r.
Það er skilyrði UEFA að leikurinn verði
háður í minnst 200 km fjaria>gð frá Man-
ehester. Þess má geta, að Man. Utd. hefur
verið boðinn Wembley-leikvangurinn í
Lundúnum fyrir leikinn — en forráðamenn
liðsins óttast óeirðir í Lnndúnum eins og
skýrt var frá hér í hlaðinu í ga>r.
'Breiðablik varð fslandsmeistari í knattspyrnu kvenna í fyrsta skipti í sumar — og lið félagsins varð einnig Islandmeistari á þessum vettvangi
innanhúss sl. vetur. f sumar var keppt í sjötta sinn um fslandsmeistaratitilinn og sigraði Breiðablik eftir skemmtile&a keppni eins og áður
hefur komið fram hér í blaðinu. Aður hefur FH unnið 4 sinnum — Ármann einu sinni. í leikhléi í UEFA-Ieiknum á Laugardalsvelli i gær
voru Breiðabliksstúlkunum afhent sigurlaun sín og gerðu það Helgi Daníelsson, varaformaður KSf, og Bergþór Jónsson, stjórnarmaður
KSÍ. Eftir þá athöfn smellti Bjarnleifur þessari mynd af nýju fsiandsmeisturunum úr Kópavogi.
Þetta var botninn
— þegar Fram tapaði aftur fyrir Start ígær
Þetta hlýtur að vera botninn í
þátttöku íslenzks liðs í Evrópu-
keppni. Fram tapaði aftur fyrir
norska liðinu Start á Laugardals-
velli í gær. Nú 0-2 og því saman-
lagt með 0-8 í báðum leikjum
liðanna í UEFA-keppninni. Að
vísu hafa oft sézt stærri tölur hjá
íslenzkum liðum í Evrópukeppni
en þegar miðað er við getu mót-
herjanna hlýtur þetta að vera það
Brighton nóði
Tottenham
Urslit í leikjum á Bretlandseyj-
um í gær urðu þessi. Ensk-skozki
Bikarinn. Bristol City — Partick
3-0. Bristoiliðið vann samaniagt
3-2. Notts County — Motherwell
1-0. Notts County sigraði saman-
lagt 2-1. Ensku liðin eru komin i
undanúrslit keppninnar. f 2.
deild vann Brighton Luton 3-2 og
skauzt upp í efsta sæti ásamt
Tottenham. Bæði lið hafa 12 stig.
3. deild
Bury — Tranmere 1-0
Cambridge — Swindon 5-2
Colchester — Port Vale 2-3
Giliingham — Chesterfield 3-0
Sheff. Wed. — Plymouth 1-1
Shrewsbury — Rotherham 4-1
Walsall — Preston 0-0
4. deild
Doncaster — Southend 2-0
Ilalifax — Barnsley 1-1
Hartlepool — Rochdale 1-0
Northampton — Huddersf. . 3-1
Scunthorpe — Swansea 1-0
Southport — Grimsby 2-2
Watford — Bournemouth 2-1
Wimbledon — Newport 3-0
York — Reading 2-0
Wimbledon vann þarna sinn
annan deildasigur.
versta. f fyrra tapaði Fram í sömu
keppni fyrir Slovan Bratislava
með sömu markatölu — 8-0
samanlagt, en þá voru mótherj-
arnir líka i heimsklassa.
Oft hafa sézt stórar tölur. Aber-
deen vann KR 10-0 í Aberdeen
(14-1 samanlagt), Feyjenoord
vann KR 12-2 í Rotterdam
(samanlagt 16-2), Legia vann
Víking 9-0 (samanlagt 11-0),
Borussia vann ÍBV 9-1 (saman-
lagt 16-1), Ferensvaros vann IBK
9-1 (samanlagt 13-2), Liverpool
vann KR samanlagt 11-1, Sparta
vann IA 9-0 (samanlagt 15-1),
Tottenham vann ÍBK 9-0 (saman-
lagt 15-1), Benfica vann Val 8-0
(samanlagt 8-0), Ztirich vann IBA
7-0 (samanlagt 14-1), og Standard
vann Val 8-1 (samanlagt 10-2),
svo nokkrar tölur séu nefndar.
Allar finnst mér þær samt betri
en 8-0 samanlagt gegn Start —
enda þar við fræg lið að etja.
Leikurinn í gær bætti heldur
ekki úr. Ég man varla eftir að
hafa séð Fram leika slakar — og
norsku mótherjarnir voru litlu
skárri. Ókunnugur hefði talið að
leikurinn væri milli slakra liða í
2. deild — alls ekki í Evrópu-
keppni. Veður og allar aðstæður
til keppni voru þó prýðilegar.
Um leikinn sem slíkan er lítið
nægt að segja. Norska liðið
skoraði eitt mark í hvorum hálf-
leik. Það fyrra kom á 26. mín.,
þegar Helge Skuseth átti laust
skot á mark Fram. Guðmundur
Baldursson varði en missti knött-
inn svo inn fyrir markalinuna.
Fram fékk víst fjögur álíka
klaufamörk á sig í fyrri leik lið-
anna í Kristiansand. Síðara mark
Start skoraði Odd Magne Olsen á
65. mín. Fallega var að því marki
unnið — og markskotið gott. Það
bezta, sem skeði í leiknum. Fram
átti varla markskot I leiknum —
en i lokin var þó nokkrum sinnum t
hætta við mark Start, án þess að
það væri nýtt.
693 keyptu sig inn á yöllinn —
og það er lakasta aðsókn að
Evrópuleik í Reykjavlk —
reyndar Islandi. - hsim.
5
v«v
í
WALLY5
GALLABUXUR
Kemst Island í 5. sinn í
úrslit UEFA-keppninnar?
— Unglingalandslið íslands leikur við Wales á þriðjudag á Laugardalsvelli
Síðasti stórleikur sumarsins
fer fram á Laugardalsvellinum
þriðjudaginn 4. okt. kl. 17.30, en
þá mætast í undankeppni Evrópu-
keppni unglingalandsliða lið fs-
lands og Wales. Unglingalandslið
KSf tekur nú þátt í þessari
keppni í 8. sinn. Fjórum sinnum
hefur liðið komizt í 16 liða úrslit.
Það var á ftalíu 1973, i Svíþjóð
1974, Ungverjalandi 1976 og
Belgiu 1977.
Næsta keppni fer fram í Pól-
landi næsta vor og stefnt er að því
að eiga þar lið.
Þegar ísland var með í fyrstu
keppninni léku íslendingar á
móti Wales. Lauk fyrri leiknum
hér heima með jafntefli 1-1, en
Wales vann öruggan sigur á
heimavelli 6-1.
Leikurinn á þriðjudaginn er 45.
unglingalandsleikur Islands en
síðari ieikur liðanna fer fram í
Swansea í Wales 2. nóv. nk.
Árangur íslenzka unglinga-
landsliðsins hefur vakið mikla
athygli á undanförnum árum og
má geta þess, að eftir að lið
Islands hafði gert jafntefli við
England í úrslitakeppninni á sl.
vori í Belgíu, sendi tækninefnd
enska sambandsins fyrirspurn
um það á hvern hátt við skipu-
legðum undirbúning unglinga-
landsliðsins.
Margir beztu og traustustu
knattspyrnumenn tslands 1 dag og
á undanförnum árum fengu sín
fyrstu tækifæri í landsleikjum
með unglingalandsliðinu og hlutu
þar dýrmæta reynslu, sem kom
þeim og Islenzkri kanttspyrnu að
góðu gagni í A-landsleikjum. Má
þar nefna Asgeir Sigurvinsson,
sem lék 7 unglingalandsleiki,
Janus Guðlaugsson, sem lék 15
leiki, Glsla Torfason sem lék 5
leiki, Ásgeir Elíasson, sem einnig
lék 5 leiki. Þannig mætti halda
áfram að telja upp leikmenn.
Liðið, sem leikur gegn Wales 4.
okt. nk. hefur verið valið, en það
er skipað eftirtöldum leikmönn-
um:
Markverðir: Drengjal. Ungll.
Guðmundur Baldursson
Fram
Bjarni Sigurðsson IBK
Aðrir leikmenn:
Benedikt Guðbjartsson
FH
Pálmi Jónsson FH
Ágúst Hauksson Þrótti
Benedikt Guðmundsson
UBK
Ömar Jóhannsson IBV
Skúli Rósantsson IBK
Kristján B. Olgeirsson,
fyrirliði Völsungi 3
Helgi Helgason Völsungi3
Heimir Bergsson
Selfossi
Ingólfur Ingólfsson
Stjörnunni
Páll Ólafsson Þrótti
Arnór Guðjohnsen
Víkingi
Sigurður V. Halldórsson
UBK 0
Þorvaldur Hreinsson
Aftureldingu 0
Það er Lárus Loftsson sem er
þjálfari liðsins og hann hefur
jafnframt valið það.
0
2
0
1
Það var ekki oft, sem mark norska liðsins Start komst i ha'ttu í ga>r — eöa knötturinn barst fyrir mark
liðsins. En þcgar þaö kom fyrir tókst leikmönniim Fram ekki aö nýta þaö eins og sjá má á DB-m.vnd
Bjarnleifs.
WALLY5
GALLABUXUR
I unglingalandsliðinu nú, sem
er eitt það yngsta er við höfum
teflt fram, eru piltar sem margir
hverjir hafa vakið á sér athygli á
liðnu keppnistímabili. Má þar
nefna markakóng 2. deildar, Pál
Ólafsson úr Þrótti, markakóng
Vlkings 1 3. fl., Arnór Guðjohn-
sen, Pálma Jónsson, sem er fastur
leikmaður í 1. deildarliðið FH,
Guðmund Baldursson markvörð
úr Fram, sem kom inn á í stað
Árna Stefánssonar I leiknum
gegn Start og stóð sig með
miklum ágætum. Þá má nefna
Húsvíkingana Helga Helgason og
Kristján B. Olgeirsson, en sá
síðarnefndi er fyrirliði unglinga-
landsliðsins að þessu sinni.
Það er vitað, að Wales hefur á
að skipa mjög sterku liði, þannig
að hér getur orðið um jafnan og
spennandi leik að ræða.
Astæða er til að hvetja knatt-
spyrnuáhugamenn til að koma og
sjá þennan leik og hvetja hina
ungu knattspyrnumenn okkar til
sigurs.
Smasaga
eftir
Björgu Vik
Ótal ráö
viö ófrjósemi
Endalaus
# ml
Æm -'i mm
m.f í mm
s/ 2
Sm f
rntiaid
milli elskenda
Jtík’., ‘f
mWi M
SeglrÞorkell G. Guðmundsson
höfundur
stærsta stóls i heimi
ElvisPresley ípoppfræöiriti