Dagblaðið - 28.09.1977, Page 24

Dagblaðið - 28.09.1977, Page 24
Skylda að nota öryggis- hjálma f rá næstu áramótum Öryggishjálmur bjargaði lífi sextán ára pilts á Patreksfirði, sagði í frétt á baksíðu Dag- blaðsins í gær. En þeim pilti er alls ekki skyit frekar en öðrum skellinöðrustrákum að bera hjálm við aksturinn. Á þessu verður þó ráðin bót áður en langt um líður. „Notkun öryggishjálma verður lögleidd frá og með næstu áramótum," sagði Almennar grunsemdir vakna á Bolungarvík: Þjófurinn ófundinn Tók aðeins fimm þúsund króna seðla Óhugnanlegt andrúmsloft ríkir nú í Bolungarvík þar sem illur grunur er farinn að læðast milli húsa um náungann, enda hefur enn ekkert gerzt í rannsókn Ríkis- rannsóknarlögreglunnar á inn- brotinu í trésmiðju Jóns Fr. Einarssonar fyrir tæpum tíu dögum. Þar hefur einhver, sem að því er virðist, mun hafa verið öllum hnútum kunnugur, haft á brott með sér ca 400 til 450 þúsund krónur úr læstum peningaskáp á skrifstofu trésmiðjunnar. Hefur lykill að peningaskápnum verið geymdur í ólæstri skúffu og at- hygli vekur að þjófurinn, eða þjófarnir, tók ekkert nema fimm þúsund króna seðla. Létu þeir alla minni seðla og ávísanir ósnerta. Þjófnaðarins varð ekki vart fyrr en um hádegi daginn eftir er leggja átti peningana inn á banka. Ríkisrannsóknarlögreglumenn- irnir Grétar Sæmundsson og Ragnar Vignir fóru til Bolungar- víkur sl. miðvikudag og yfir- heyrðu þeir hluta af tuttugu starfsmönnum trésmiðjunnar. Héldu þeir síðan á brott með gögn sín sl. föstudag. Eins og nærri má geta ríkir því spenna á Bolungarvík; vinnu- staðurinn, þar sem innbrotið var framið, er ekki stór og um eitt þúsund íbúar í bænum. ___________________-BB/HP Eldur laus í blokk í Breiðholti Slökkviliðið var í nótt kvatt að Grýtubakka 18, sem er þriggja hæða íbúðarblokk. Var eldur laus í eldhúskrók sem opinn er inn í stofu og hafði talsvert brunnið við eldavél og einnig nærliggjandi skápar. Reyk lagði um alla íbúðina og eitthvað lítillega fram á stigagang. Fljótlega tókst að ráða niðurlögum eldsins. Engin meiðsl urðu á fólki. Eldsupptök eru enn ókunn. -ASt. Gestkvæmt í Höllinni 21600 manns höfðu í gærkvöldi séð sýningu Iðnkynningar í Laug- ardalshöll. Sýningin hefur staðið í 5 daga en henni lýkur á sunnudagskvöld. Á hverjum degi er valinn „gestur dagsins" og fer hann heim hlaðinn gjöfum og veroiauuum. i dat, verðlaunin t.d. sjónvarpsstóll með skemli frá Sedrushúsgögnum. Verðmætið um 75 þús. kr. Auk þess fær gesturinn kransaköku o. fl. Mjög góð aðsókn er einnig að kynningu Iðnkynningar í Iðnskólanum og að sýningu i Ar- bæjarsafni. -ASt. Guðmundur Þorsteinsson hjá Umferðarráði í samtali við Dag- blaðið. Hann kvaðst ekki geta sagt neitt um, hvers vegna notkun hjálma hefði ekki verið sett í lög fyrr, en taldi líklegt, að menn hefðu viljað bíða og sjá til með notagildi þeirra. Þá hefði notkunin jafnframt verið mjög mikil. „Ég er viss um að mun meira er um að stjórnendur bifhjóla noti hjálma en til dæmis bíl- stjórar bílbeltin," sagði hann. Þrátt fyrir að ekki sé skylt að nota öryggishjálma við akstur mótorhjóla hefur verið komið að ýmsu leyti til móts við notendur þeirra, til dæmis með lágum tollum. Aðeins sjö prósent tollur er á hjálmun- um. Vilji eigendurnir hins veg- ar fá sér hlífðarplast fyrir and- litið þurfa þeir að greiða 70- 80% toll fyrir plastið. Dagblaðið fékk þær upp- lýsingar hjá Fálkanum hf. að mesta salan væri í dýrustu gerðum öryggishjálma. Þeir hjálmar eru „lokaðir", þannig að þeir hlífa einnig hökunni. Þessir lokuðu hjálmar eru nú uppseldir hjá Fáikanum. Þar eru einnig seldar tvær gerðir opinna hjálma. Verð þeirra er um helmingi lægra en verð lok- uðu hjálmanna. -ÁT- Ungi mótorhjólamaðurinn á myndinni sýnir hér þrjár gerðir af öryggishjálmum. — DB-mynd Bjarnleifur. Hafa lögreglumenn raunverulegan verkfallsrétt? — það skýrist með ákvörðun um hve margir þeirra eiga að vinna í verkfalli BSRB „Við lögreglumenn lítum á væntanlega ákvörðun um hve mikill hluti okkar eigi að starfa í hugsanlegu verkfalli sem nokkurs konar prófmál,“ sagði Björn Sigurðsson, formaður Lögreglufélags Reykjavíkur í viðtali við DB i gærkvöldi. „Sá háttur sem tekinn verður upp í verkfalli nú verður vafa- lítið til frambúðar í komandi kjaradeilum. Því mun ákvörðun um hvað talið verður nauðsynleg öryggisvarzla raunverulega skera úr um hvort við lögreglumenn höfum verkfallsrétt bæði í orði og á borði,“ sagði Björn ennfremur. Fulltrúar lögregluyfirvalda og lögreglumanna hefðu komið á fund kjaradeilunefndar og lagt fram álit sitt á, hve mikil þjónusta lögreglu væri nauðsynleg öryggis vegna, þó til verkfalls BSRB komi. „Þar fóru skoðanir ekki saman fremur en við var að búast. Ýmis atriði hljóta að orka tvímælis þegar hugleidd er aðgerð sem verkfall opinberra starfsmanna í fyrsta skipti," sagði Björn Sigurðsson. -ÓG. frfálst, pháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 28. SEPT. 1977 Vestmannaeyjar: Ævar ísberg tekur við skatt- stjóraembættinu Ævar tsberg, vararíkisskatt- stjóri, var í gær settur skatt- stjóri I Vestmannaeyjum um tveggja mánaða skeið. Mun Ævar gegna embættinu sam- hliða sínu núverandi embætti. Vararfkisskattstjóri tekur við starfi skattstjóra í Eyjum af Einari H. Eirtkssyni, sem varð að segja af sér vegna fjárdrátt- ar úr sjóðum Landakirkju. Jafnhliða skattstjóraskiptun- um — eins og venja er — mun ríkisendurskoðandi gera úttekt á skattstjóra-embættinu f Vest- mannaeyjum, að sögn Höskuld- ar Jónssonar, skrifstofustjóra I fjármálaráðuneytinu. Hann sagði að ekkert það hefði komið fram, sem benti til óreiðu á skattstofunni í Eyjum. -ÓV. Meint embættis- afglöp Hauks: „Eðlilegt að til dómstóla” „Ráðuneytið telur eðlilegt, eins og málið er vaxið, að það gangi til dómstóla," segir í umsögn dómsmálaráðu- neytisins um meint embættis- afglöp Hauks Guðmundssonar, rannsóknarlögreglumanns f Keflavík. Umsögnin var veitt embætti ríkissaksóknara, eins og lög gera ráð fyrir, þegar taka skal ákvörðun um útgáfu kæru á hendur opinberum starfsmönnum. Umsögn ráðuneytisins, sem þykir óvenju kjarnyrt, tekur einnig til lögreglumanna f Keflavík, sem áttu hlut í „handtökumálinu" svokallaða f Keflavík í fyrra, en það er eitt fjögurra mála Hauks og fleiri, sem sameinuð hafa verið í eitt. Embætti ríkissaksóknara biður nú hliðstæðrar umsagn- ar varnarmáladeildar utan- ríkisráðuneytisins, en Kristján Pétursson, tollvörður og nokkrir lögreglumenn á Kefla- vfkurflugvelli, sem komu við sögu f einu málanna, heyra undir varnarmáladeild. Dregizt getur fram undir miðjan næsta mánuð að umsögn varnarmáladeildar utanrfkisráðuneytisins berist rfkissaksóknara þvi starfs- menn deildarinnar, Páll As- geir Tryggvason deildarstjóri, og Hannes Guðmundsson fulltrúi, eru báðir f Banda- rikjunum og ekki væntanlegir heim fyrr en 10. eða 11. október, skv. upplýsineum varnarmáladeildar. -ÓV, Bankaráðið ræðir Hjalt- eyrartilboðin Bankaráð Landsbanka Islands mun á fundi sínum á föstudaginn fjalla um tilboð þau, sem bankan- um hafa borizt í Kveldúlfseign- irnar á Hjalteyri. Verða tilboðin kynnt fyrtr bankaráðsmönnum á fundinum á föstudaginn og sfðan rædd. Má búast við að bankaráðið geri ákveðnar tillögur um afstöðu til tilboðanna á þessum fundi eða fljótlega eftir hann, skv. upp- lýsingum Dagblaðsins. . A\/

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.