Dagblaðið - 25.10.1977, Side 24

Dagblaðið - 25.10.1977, Side 24
betrí samningum” „Auðvitað get ég ekki sagt að ég sé ánægður með samkomu- lagið,“ sagði Kristján Thorlacius formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja í morgun éftir fund forráða- manna bandalagsins með ráðherrunum og sáttasemjara. „Samt tel ég að við megum nokkuð vel við una og fullyrði að við hefðum náð miklu betri samningum, ef eitt aðildar- félaganna, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar, hefði ekki gert sérsamning við sinn vinnu- veitanda á viðkvæmu stigi samninganna." hraða eftir megni.“ Kristján færði að iokum öll- um þeim hundruðum manna sem lagt hefðu hönd á plóginn í að samtökin þessu verkfalli sínar beztu þessa raun. þakkir og lýsti þeirri von sinni hefðu eflzt við -HP. Sagðist Kristján harma að sú samstaða sem berlega kom í ljós er félagsmenn banda- lagsins felldu fyrstu sáttatil- lögu ríkisins, hefði verið rofin með slíkum sérsamningi, „en ég vona að við lærum af slíkum mistökum,“ sagði Kristján enn- fremur. Kristján sagði að vikan eftir að sérsamningur Reykjavíkur- borgar hefði verið gerður, hefði verið sérlega árangursrík og að BSRB hefði náð fram ýmsum viðbótum við þá samninga, sem gerðir voru í sveitar- félögunum. „Verkfallinu verður frestað nú á næstu mínútum," sagði Kristján, „og allsherjarat- kvæðagreiðslu félaganna um samkomulagið verður reynt að Samningar á lokasprettinum, — þrír af forystumönnum BSRB; Einar Ölafsson, Haraidur Steinþórs- son og Kristján Thorlacius vestur í Háskóia að ræða samningsdrögin. — DB-mynd Sv. Þorm. ✓ Fjármálaráðherra í morgun: „VONA AÐ RÍKISSJÓÐUR GETISTAÐIÐ VIÐ Sin” „Eg ér ánægður méð það sam- komulag sem nú hefur tekizt," sagði Matthías Mathiesen fjár- málaráðherra á fundi með frétta- mönnum úti í Háskóla í morgun, er samkomulag hafði tekizt um kjarasamninga BSRB og rikisins. „Það hefur verið erfitt mál að leysa þessa deilu, enda er BSRB fjölmenn samtök og samninga- nefndin fjölmenn." Færði ráðherra öllum þeim.sem unnið hefðu að gerð samkomu- lágsins þakkir sínar og kvaðst vona að samkomulagið yrði til góðs. „Ég vona einnig að ríkissjóður reynist þess megnugur að standa við skuldbindingar sínar í þessum samningum," sagði Matthías enn- fremur. „Þá vil ég nota tækifærið og færa formanni BSRB mínar beztu þakkir fyrir samstarfið." Ráðherra kvaðst ekki vilja ræða það þá stundina hversu mikill kostnaðarauki samningarnir væru fyrir ríkissjóð en sagði að samningarnir sýndu að ríkið hefði teygt sig til hins ítrasta. „Það var vitað að sumir aðilar innan BSRB stóðust ekki saman- burð við kjör annarra á vinnu- markaðinum og ég vona að nú hafi fengizt lagfæring þar áV -HP. Samninganefnd ríkisins á göng- um Háskólans í nótt: Þorsteinn Geirsson, Indriði Þorláksson, Matthías Mathiesen, Halldór E. Sigurðsson og Höskuídur Jóns- son. DB-mynd Sveinn. MÚS Á VEGI SAMNINGANNA! Það varð uppi fótur og fit í nótt þegar lítil mús kom í heim- sókn á sáttafundinn í Háskólan- K Myndirnar: Brynjólfur Ingólfs- son ráðuneytisstjóri sækir að ofninum þar sem músin hefst við. Litla innfelida myndin sýnir músina í skjóli sínu. um. Vitað var að engin ljón voru í veginum hjá samninga- mönnum, — en að það væri bara lítil mús....Það vissu fæstir. Músin var króuð af og varð af mikið fjaðrafok í samningasölunum. Gerðu menn góðlátlegt grín úr öllu saman og fullyrtu margir að samning- arnir hefðu tekið stökk fram á við eftir þessa óvæntu heim- sókn — DB-mynd Sv. Þorm. fxfálst, nháð dagbJað ÞRIÐJUDAGUR 25. OKT 1977. Geirfinnsmálið: Hæstiréttur staðfestir úrskurði sakadóms - í máii sendibílst jórans Hæstiréttur staðfesti síðdegis í gær gæzluvarðhaldsúrskurð Saka- dóms Reykjavíkur frá 14. október yfir Sigurði Öttari Hreinssyni, „sendibílstjóranum í Geirfinns- málinu“. Jafnframt staðfesti Hæstiréttur sakadómsúrskurð um að lögreglurannsókn færi fram i málinu í stað dómsrannsóknar. Sigurður Öttar var úrskurðaður í gæzluvarðhald allt til 9. nóvember þegar hann hafði dregið til baka framburð sinn frá í desember sl., þegar hann kvaðst hafa tekið þátt í ferð til Kefla- víkur ásamt sakborningunum 1 Geirfinnsmálinu 19. nóvember 1974. Kveðst hann nú hvergi hafa farið þessa för heldur hafa látið undan þrýstingi lögreglumanna um að játa þátttöku og „skáldað 1 eyðurnar“ I þeirri frásögn sem þeir hafi lagt fyrir sig. Verjandi Sigurðar Öttars, Sig- úrður Georgsson, hdl., kærði gæzluvarðhaldsúrskurðinn til Hæstaréttar og jafnframt þann úrskurð sakadóms að lögreglu- rannsókn færi fram í málinu í stað dómsrannsóknar — þ.e. að þeir sömu menn, sem Sigurður Öttar telur hafa lagt^sér orð í munn, önnuðust hina nýju rann- sókn málsins. Lögreglurannsókn- inni hefur verið haidið áfram á meðan beðið hefur verið eftir úr- skurði Hæstréttar. Hæstaréttardómararnir Magnús Þ. Torfason, Logi Einars- son og Björn Sveinbjörnsson kváðu upp dóm Hæstaréttar, en Ingibjörg Benediktsdóttir fulltrúi kvað upp hina kærðu úrskurði Sakadóms Reykjavíkur. ÖV Eiður Guðnason Eiður í framboð á Vesturlandi „Ég ákvað um helgina að gefa kost á mér 1 fyrsta sæti lista 'Alþýðuflokksins á Vesturlandi," sagði Eiður Guðnason sjónvarps- fréttamaður í gær. Hann kvað hafa verið leitað eftir því við sig að hann gæfi kost á sér og eftir talsverða umhugsun hefði hann ákveðið að gefa kost á sér í próf- kjörið. Eiður kvaðst mundu óska eftir þvi að verða fluttur úr fréttunum í sjónvarpinu meðan á prófkjör- inu stendur en það er regla hjá útvarpi og sjónvarpi að þeir sem standa í framboði komi ekki fram á meðan. Framboðsfrestur til prófkjörs Alþýðuflokksins á Vesturlandi er til 29. október. JBP

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.