Dagblaðið - 31.10.1977, Side 9

Dagblaðið - 31.10.1977, Side 9
\N DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 31. OKTÖBER 1977. RÁN HOLLENZKA AUÐMANWSINS: Fjárkröfumar allt niður í tuttugu og fimm þúsimd krónur Ættingjar hollenzka auðmannsins Mauritas Caransa bíða með óþreyju eftir að ræningjar hans láti eitthvað frá sér heyra. Ekkert sem lög- reglan telur mark takandi á hefur borizt frá þeim siðan á föstudagsmorgun, þegar hinum sextiu og eins árs auðmanni var kippt upp í rauða bifreið fyrir utan spilaklúbb i Amsterdam,. Alls konar fólk er sagt hafa hringt bæði til lögreglu og dag- blaða og talið sig vera ræningja Caransa. Fjölskylda hans sendi í gær skilaboð til ræningjanna þar sem þeir voru fyrir alla muni beðnir um að gefa á einhvern hátt til kynna að þeir hefðu hann í haldi og hverjar kröfur þeir gerðu til lausnar honum. Lögreglan er sögð styðja beiðni fjölskyldu hins rænda manns. Annars hefur hún kvartað yfir að mikil truflun hafi orðið af upphringingum frá alls konar rugluðu fólki, sem ýmist teldi sig vera fulltrúa samtaka eins og þeirra sem rændu og myrtu vestur- þýzka iðjuhöldinn Hans Martin Schleyer eða það krefðist fjár- upphæða tiUausnar Caransa. Hæsta krafan var um eina milljón og sex hundruð og 'fimmtíu þúsund dollarar eða jafnvirði um það bil 350 milljóna króna. Einn sem hringdi var þó miklu nægjusamari og sagðist mundi sér láta nægja upphæð sem svara til 25.000 króna. Um hádegi í dag eru liðnar um það bil sjötíu klukku- stundir síðan Caransa var rænt og • hvorki yfirvöldum né ættingjum er enn ljóst hvers ræningjarnir munu krefjast. Ekki er heldur ljóst hvort peningar eru þeim efst í huga eða einhverjar hugsjónaá- stæður eru taldar liggja að baki. Hubert Humphrey hlaut hlýlegar viðtökur, þegar hann kom í fyrsta skipti til vinnu sinnar í öldungadeild bandaríska þingsins í YVashing- ton eftir að hann varð að gangast undir aðgerð vegna krabbameins í ágúst siðastliðnum. A myndinni heilsar hann viðstöddum fyrir utan þingbygginguna. Sonur Hitlers fundinn eftir tólf ára leit — Hitler hitti móður hans í Frakklandi árið 1918 þegar hann gegndi herþjónustu Vestur-þýzkur sagnfræðingur, Werner Maser, hefur gefið út þá yfirlýsingu að hann hafi fundið son Hitlers eftir 12 ára leit. Sagnfræðingurinn sagði í sím- tali við Reutersfréttastofuna, að maðurinn bæri nafnið Jean Lorret. Hann ætti heima í Norður Frakklandi, nálægt þýzku landa- mærunum. Maser sagði að ekki væri hægt að gefa upp nákvæmt heimilisfang mannsins að svo stöddu. Werner Maser hefur rannsakað Hitlers-tímabilið í Þýzkalandi töluvert. Það var fyrir tveim árum að hann komst að því að Hitler ætti son, sem nú er 59 ára gamall og faðir níu barna. Móður hans á Hitler að hafa hitt 1918, þegar hann gegndi herþjónustu í fyrra stríði. Hún lézt í París árið 1951. Það var ekki fyrr en nokkru áður en hún lézt að hún skýrði frá því að sonurinn væri afkomandi Hitlers. Lorret vill Ijóstra þvi upp nver hann er, vegna þess að hann á ekki langt eftir ólifað Maser segir að hann sé ekki mikið veikur, en hann sé ímyndunarveikur og geri meira úr veikindum sínum en ástæða sé til. Hitler gerði nokkrar tilraunir til að finna móður drengsins. Það er sannað að hann gerði sér ferð árið 1941 til að reyna að hafa upp á þeim. Með í förinni var Heinz Linge, aðstoðarmaður Hitlers. Þeir Ieituðu að bústað sonarins og móður hans, en án árangurs. Ári síðar hafði Gestapó upp á drengn- um. Læknar Hitlers tóku hann i heljarmikla rannsókn og yfirheyrðu. Sagnfræðingurinn Werner Maser, segir að mikill áhugi sé á yfirlýsingu hans og blöð um allan heim hafi sýnt áhuga á að fá fréttir. Þýzk blöð hafa ekki tekið við sér enn, að sögn Maser, en undanfarið hefur verið mikið rit- að um Hitler og ævi hans í þýzk blöð. Almenningur hefur sýnt mikinn áhuga á því að fræðast um þetta tímabil f þýzkri sögu. Stuðningsfóik Baader Meinhof hópsins vestur-þýzka taiui oruggara aó hyija andlit sín, þegar það bar mótmælaborða vegna láts þriggja félaga samtakanna i fangelsi. A borðanum stendur: Gudrun, Andreas og Jan voru pínd og myrt í Stammheim fangelsinu. Þettá er þveröfugt við skoðun fangelsisyfirvalda, sem halda því fram að þremenningarnir hafi svip siálfa sie lífi. Sérstök stilling fyrir straufri efni — auöveldari notkun. BlO-kerfi — lengir þvottatimann fyrir óhreinan þvott. Ryöfritt stál i tromlu og vatnsbelg — lengri endingartimi. 3falt öryggi á hurö — örugg fyrir börn. 3 hólf fyrir þvottaefni og mýkingarefni. Lósigti aö framan — auöveit að hreinsa — útilokar bilanir. Vinduhraði 520 snún/min — auöveld eftirmeöferö þvottar. Vökvademparar — mjúkur, hljóölaus gangur. 60cm breiö, 55 cm djúp, 85cm há. Islenskur leiðarvisir fylgir hverri vél. Vörumarkaðurinnhf. ^rínúl^a^iini8611I Electrolux þvottavélin er til á lager á þessum útsölustööum: AKRANES: Þóróur Hjálmarsson, BORGARNES: Kf. Borgfiróinga, PATREKSFJORÐUR: Baldvin Kristjánsson tSAFJÖRÐUR: Straumur hf., BOLUNGARVIK: Jón Fr. Einarsson, BLONDUÖS: Kf. Húnvetninga, SIGLUFJÖRÐUR: Gestur Fanndal, ÖLAFSFJÖRÐUR: Raftækjavinnustofan sf., AKUREYRI: Akurvik hf., HOSAVtK: Grimur og Arni, VOPNAFJORÐUR: Kf. Vopnfiróinga, EGILSSTAÐIR: Kf. Héraösbúa, ESKIFJÖRÐUR: Pöntunarfélag Eskfiróinga HÖEN: KASK, ÞYKKVIBÆR: Friórik Friöriksson, VESTMANNAEYJAR: Kjarni sf„ KEFLAVIK: Stapafell hf. Electrolux ELECTROLZJX WH 38 ERHESTSELDA M OTTil ÉUX ZSIÍMÓD 1 árs ábyrgð Electrolux þjónusta. Hagstæð greiðslu- kjör.

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.