Dagblaðið - 07.11.1977, Blaðsíða 3

Dagblaðið - 07.11.1977, Blaðsíða 3
Stefanfa Sigurbjörnsdóttir, hús- móðlr: Bóndinn er tvfmælalaust mun þarfari. Herdfs Hermóðsdóttir, húsmóðir: Ef bóndinn væri eins og hann var og ætti að vera, bústólpi og 'búlandsstólpi, en ekki styrkþegi á fslenzka rfkinu, teldi ég hann1 fullt eins þarfan og blaðamann- HERRAFRAKKAR - DOMUDRAGTIR «0» BankastrœH 9 símiliau Til hverser BÚKKINN Á HORNI LAUGAVEGS OG KLAPPAR- STÍGS? Haukur Guðjónsson hringdi: Rétt við gatnamót Laugavegs og Klapparstígs hefur undan- farið staðið búkki nokkur, að því er virðist án nokkurs til- gangs. Þetta hefur valdið mér mikl- um óþægindum. Daglega á ég leið þarna um — ek upp Klapparstfg frá Hverfisgötu og beygi niður á Laugaveg. Eg er f mjög stórum bíl og lendi stundum í mestu vandræðum þarna á horninu, þvf beygjan verður of kröpp fyrir mig. Það væri frólegt að fá upp- lýst hvers vegna þessi búkki er þarna og hvaða tilgangi hann þjónar. Svar: Guttormur Þormar hjá um- ferðardeild Reykjavfkurborgar upplýsti að búkkinn væri þarna vegna þess að götumálning dugði ekki til þess að beina umferð á vinstri akreininni upp Klapparstíginn en ekki er leyfi- legt að aka niður Laugaveginn á báðum akreinunum. Búkkinn á ekki að vera þarna til fram- búðar en komið hefur til tals að setja þarna upp stöðumæla, þannig að umferðin geti engan veginn haldið áfram eftir vinstri akreininni. Ef vinstri akreinin er notuð verður algert öngþveiti neðar í götunni þvf við Lækjargötu beygja flestir til vinstri. Þannig má segja að búkkinn þarna á Laugaveginum sé af- leiðing þess hve ökumenn eru ólöghlýðnir. Ef þeir færu eftir þeim leiðbeiningum sem mál- aðar eru á göturnar þyrfti engan búkka! í mótsetningu við öll önnurstereo-heyrnar- tæki getur þú á KOSS Technican/VFR stjórnað hljómburðinum alveg eftir þínu höfði. ístaðinn fyriraðþúhlustiráuppáhalds tónverkin eins og aðrir heyra þau, nýtur þú þess að geta framkallað þann hljómburð sem er þér að skapi- aðeins með því að færa til VFR-stillinn. Tæknilegar upplýsingar: 50 mm aflhátalarar • Mótstaða : 230 ohm/1 kHz • Tíðnisvið: 10-22000 Hz • Næmleiki: 95 V-rms/1 kHz • Bjögun: Minni en 0,4%/1 kHz/100 dB SPL • Hljóðstyrkur við 1% bjögun: 108 dB/1 khlz • 3 metra gormlaga aðtaug • „Pneumalite" eyrnapúðar. • Tenging fyrir gálgahljóðnema • Þyngd: 483 g (u/aðtaug) Verð kr. 23.967 FÁLKIN N SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 Hljómburðurinn einmitt eins og þú óskar þé hann... Jóna K. Halfdórsdóttir, húsmóðir með meiru: Persónulega álft ég bóndann þarflegri þar sem hann vinnur að nauðsynlegum fram- leiðsluiðnaði í landinu. Hifmar F. Thorarensen, skrif- stofustjóri: Hiklaust bóndinn. Ef þyrfti að skera niður aðra hvora stéttina þá þætti mér óifkt meiri eftirsjá f bændum en blaðamönn- um. Þakklæti tilKópa- vogslögreglunnar Kona nokkur sem búsett er f Kópavogi hringdi og vildi koma á framfæri þakklæti sínu til lögreglunnar i Kópavogi. Sagðist kona þessi vilja mót- mæla harðlega lesendabréfi þar sem deilt var á Kópavogs- lögregluna, sem talin var bæði harðhent og óspör á sektarmiða sfna. Hún sagði að lögregian I Kópavogi væri bæði kurteis og tæki aldrei harkalega á fólki. Konan sagði að Iögreglan hefði stundum þurft að hafa afskipti af henni sjálfri þegar hún hefði verið drukkin og gæti hún alls ekki kvartað undan neinum fantabrögðum. Hins vegar hefðu lögreglumennirnir jafn- an tekið á sér með mjúkum höndum, þótt hún hefði sjálf séð á eftir að kannski hefði verið full ástæða til þess að tuska hana eitthvað til. Konan sagði að sú staðhæfing að Kópavogslögreglan væri óspör á útdeilingu sektarmiða væri hrein vitleysa og alls ekki satt. Gunnar Finnsson, tfkisstarfs- maður (fyrrverandi blaða- maður): Þjóðfélagið hefur sjálf- sagt jafn mikla þörf fyrir góðan og dugmikinn bónda og heið- virðan og harðskeyttan rannsókn- arblaðamann (áDB). Birgir Björnsson, iðnverka- maður: Ég myndi ætla að bóndinn væri þarfari. Það á að efla stærri búin en leggja niður smábænd- urna, sem hokra á smá land- skikum og svo verður ekki neitt úr neinu. DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. NÖVEMBER 1977. " " Hvor er þjóðinni þarfari, bóndinn eða blaðamaður- inn? Spurt á Eskifirði. Raddir lesenda Spurning dagsins

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.