Dagblaðið - 07.11.1977, Blaðsíða 31
31
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 7. NÖVEMBER 1977.
Utvarp
Útvarp í kvöld kl. 20.00: Lög unga fólksins
Sjónvarp jj
FA 200 BREF A VIKU EN
SAMT A AÐ STYTTA ÞÁTTINN
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir.
„Lög unga fólksins hafa verið á
þriðjudögum svo lengi sem ég
man eftir. En nú er búið að
færa þau yfir á mánudaga og
stytta þáttinn eins og það verður
líklega vinsælt eða hitt þó
heldur," sagði Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir er við hana var
rætt um þann þátt. Asta sér alltaf
um þáttinn aðra hverja viku en
Rafn Ragnarsson hina vikuna.
„Þátturinn hefur verið klukku-
tími en nú verður hann aðeins 50
minútur. Þetta er ekki nógu gott
með tilliti til þess að ég hef aldrei
haft undan að lesa allar þær
kveðjur sem mér hafa borizt,
hvað þá leika öll lögin. Það er í
rauninni aðeins brot af bréfunum
sem ég kemst yfir. Enda hafa
krakkarnir skrifað mikið að þátt-
inn verði að lengja og hafa hann
að minnsta kosti eins langan og
Óskalagaþátt sjúklinga. Þessar
óskir virðast þó greinilega ekki
hafa fallið í góðan jarðveg hjá
forráðamönnum útvarpsins.
í fyrra þegar ég var með þátt-
inn á móti Sverri Sverrissyni
báðum við krakkana að skrifa
okkur hvernig þau vildu hafa
hann. Margar tillögur komu fram,
meðal annars að þátturinn yrði
endurtekinn á morgnana fyrir þá
er misstu af honum. Ég veit líka
að það eru margir sem fá ein-
hvern til þess að taka upp fyrir
sig þáttinn þegar svona stendur
á jafnvel þó bannað sé með lögum
að taka upp úr útvarpi."
— Hvað heldurðu að þú fáir
margar kveðjur á viku?
„Ég fæ svona 200 bréf á viku.
Ef ég læsi þau öll gerði ég ekkert
annað. Þá yrðu engin lög leikin.
Ég verð því að velja úr. Ég hef
það oftast þannig að ég flokka öll
bréf eftir þeim lögum sem beðið
er um. Ef fleiri en einn biðja um
sama lagið athuga ég hvort það er
til niðri í útvarpi. Ef svo er ekki
verð ég að fará niður I bæ og
reyna að fá lögin þar. Það ræðst
Útvarp íkvöld kl. 20.50: Gagn oggæði
ALHUÐA ÞÁTTUR UM
ATVINNUMÁL
„Hugmyndin að þessum þátt-
um er að allir atvinnuvegir fái
nokkra umfjöllun, sérlega þó
landbúnaður, sjávarútvegur og
iðnaður. Þessu tengist svo sam-
göngumál og efnahagsmálin í
heild án þess þó að þetta eigi að
vera neinn beinn efnahagsmála-
þáttur,“ sagði Magnús Bjarnfreðs-
son er hann var spurður um nýjan
þátt er hefst í útvarpinu i k'völd
undir stjórn hans. Nefnist þáttur-
inn „Gagn og gæði“ og verður
fastur liður f vetrardagskrá.
„Hlustendum gefst svo kostur á
að senda spurningar um alla
þessa atvinnuvegi og mun ég
reyna að fá sérfræðinga á hverju
sviði til þess að svara þeim.
Stjórnendur þátta sem áður hafa
verið um einn og einn atvinnuveg
verða lfka spurðir spjörunum úr.
Ekki er þó vfst að alltaf fáist svör
við spurningunum strax heldur
mega menn búast við því að þurfa
jafnvel að bíða eitthvað."
— Saknarðu ekki sjónvarpsins,
Magnús?
„Ja, við erum svona að hvfla
okkur hvort á öðru. Það er svona
ágætt að vera kominn f fjölmiðil
aftur þvf alltaf er gaman að
vinna. Annars er ég að gera svona
hitt og annað,“ sagði Magnús
Bjarnfreðsson.
- DS
Magnús Bjarnfreðsson.
af austurrískum kvenkápum
Opið á laugardögum
kápan
Laugaveg66 llhϗ
mikið af því hvað mér tekst að ná
f hvað leikið er.
Nú svo fer ég talsvert eftir þvf
hvernig bréfin sjálf eru. Ef mér
finnst vera einhver rætingslegur
tónn í þeim þá sleppi ég þeim og
eins ef mér finnst að sá sem
skrifaður er fyrir þeim hafi alls
ekki skrifað þau.
Sum bréfin eru lfka svo illa
skrifuð að erfitt er að komast
fram úr þeim. Og flest öll mora
þau af hreinum málfræðivillum.
Það er þvf eins og maður sé að
lesa íslenzkustfl í skóla. Mikið er
um að krakkarnir skrifi alls kyns
orð sem forráðamenn vilja ekki
heyra í útvarpinu. Og þá verður
maður að semja bréfið upp á nýtt.
Þeim bréfum sem ég kemst
ekki yfir er einfaldlega hent því
ekkert þýðir aö geyma þau til
næstu viku þvf þá fæ ég önnur
200 bréf,“ sagði Asta Ragnheiöur
Jóhannesdóttir og var að vonum
ekkert of hress með ástandið þó
hún segði að vissulega væri
gaman að vera með þáttinn svona
að öðru leyti.
DS
NY ÞJ0NUSTA:
24 - STUNDA - FRAMKÖLLUN
LITMYNDIR A
24
KLUKKUSTUNDUM
Hafnarstræti
17
Sími 22580
_mynctó/an_
lSÁSTÞÓRf
Suðurlands-
braut 20
Sími 82733
ORRE FORS LAMPAR
EINNIG NÝJAR SENDINGAR ST0FULAMPA
- LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL —
LJÓS & ORKA
Suðurlandsbraut 12
simi 84488