Dagblaðið - 07.11.1977, Blaðsíða 4
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGyR 7. NÓVEMBER 1977.
Flugleiðir hefjá f lug til Gautaborgar á nýjan leik
Lent á hinum nýja Landvett
er f lugvelli í Gautaborg
Flugleiðir hófu flug tii
Gautaborgar á nýjan leik sl.
laugardag er flogið var þangað
með Boeing 727 þotunni Sólfaxa
með viðkomu 5 Kaupmanna-|
höfn. I Gautaborg var lent á
hinum nýja Landvetter flug-
velli sem opnaður var í október
sl. Það er mjög fullkominn
alþjóðaflugvöllur er leysir
Thorslandaflugvöllinnaf hólmi.
Loftleiðir héldu uppi flugi til
Gautaborgar frá 1954 til 1971
en þá hafði fél. tekið í þjón-
ustu sina þotur af gerðinni DC
8 og í stað GautaborgarflugS
var hafið flug til Stokkhólms.
Vorð 1973 hóf Flugfélag
Islands flug til Gautaborgar
með Boeing 727 þotum en það
sumar voru félögin tvö sam-
einuð og Flugleiðir stofnaðar.
Þegar millilandaflug félaganna
var samræmt var Gautaborgar-
flugið lagt niður en
Stokkhólsmflugi haldið áfram.
En nú hefur þráðurinn verið
tekinn upp á nýjan leik og
haldið verður uppi réglu-
legu áætlunarflugi til Gauta-
borgar.
Flugstjóri Sólfaxa i þessapj
fýrstu ferð til Landvetter flug-
vallar var Ingimundur Þor-
steinsson og með í förinni var
Sveinn Sæmundsson blaða-
fulltrúi Flugleiða og frétta-
menn islenzku fjölmiðlanna.
Svæðisstjóri Flugleiða í Sviþjóð
er Björn Steenstrup.
-JH.
Sólfaxi á Landvetterflugvellin-
um í Gautaborg. Sérstakir
„flngur“ koma að dyrum vélar-
innar og farþegar ganga þar i
gegn inn í flughöfnina.
DB-mynd JH.
Kaupmenn —
Innkaupastjórar
Skartgripir og gjafavörur í úrvali
Heildsölubirgðir
GOÐAFELL
Heildverzlun
Hallveigarstíg 10, sími 14733
Fifu skáparnfr eru ný form sem skapa fjölda möguleika og gerir
innréttingar mun aögengilegri en áöur, auöveldar einnig endur-
nýjun og breytingar á eldri husnæöum. Ytri fletir Fffu skápa eru
spónlagöir mefi Lamelspæni, hnotu, eik efia gullálmi, I harfiplasti
getifi þér valifi eigin liti.
Fífu skápareru sérstaklega ódýrlr. Kynnifi yfiur verfi og gæfii, leitlfi
tilboöa. Fifa er fundin lausn.
HÖFUM SÝNINGARELDHUS
KOMIÐ OG SKOÐIÐ.
UPPLÝSINGABÆKLINGAR
LIGGJA FRAMMI.
HUSGAGNAVINNUSTOFA
AUÐBREKKU 53
SÍMI 43820.
ÍSLENZK PLATA UM
EMIL í KATTHOLTI
Barnaeftirlætið Emil í Katt-
holti er að vísu horfinn af
sjónvarpsskjánum en undir
mánaðamótin kemur út hér
íslenzk plata með söngvum og
leik úr myndaflokknum. Platan
ber heitið „Emil I Kattholti*1 eftir
sjónvarpsþáttunum en Böðvar
Guðmundsson hefur þýtt texta
Astrid Lindgren.
Það er ungur sveinn, Helgi
Hjörvar, sem leikur og syngur
Emil á plötunni. Pabba hans
leikur og syngur Arni Tryggas.
Sigrún „Diddú“ Hjálmtýsdóttir er
Lína, Þóra Friðriksd. er mamma
Emils, Nina Sveinsdóttir er
Maja gamla, Arnar Jónsson er
Alfreð, Margrét örnólfsd. leik-
ur ídu, systur Emils og einnig
leikur Valdimar Helgason hlut-
verk. Sögumaður og leikstjóri er
Helga Jónsdóttir en útsetningu og
tónstjórn annast Karl Sighvats-
son. Aðrir tónlistarmenn eru Egg-
ert Þorleifsson, Sigurður Karls-
son, Þórður Arnason, Sigurður
Rúnar Jónsson og Áskell Másson.
Utgefandi plötunnar um Emil í
Kattholti er AA-hljómplötur. -OV.
Foðurverðið:
Bústólpi býður betur en KEA
Undanfarið hefur orðið mikil
verðlækkun á fóðurvörum —
eins og raunar var skýrt frá í
DB í vikunni. Astæða hinna
miklu verðlækkana er góð
kornuppskera víðast hvar um
heim. Við skýrðum frá því að
KEA hefði einna lægst fóður-
verð hér á landi — tonnið af
A-blöndu frá FAF kostar hjá
KEA 40.500 krónur heimkomið.
Jón Heiðar Kristinsson hjá
Bústólpa á Akureyri vildi koma
því á framfæri að Bústólpi
hefði lægra fóðurverð en KEA
— nú kostaði tonnið 40.300 kr.
heimkomið en í sumar
hefði verðmismunur verið mun
meiri.
-h. halls.
Vann allar 18 hraðskákir sínar
— og varð hraðskákmeistari Austurlands
Tuttugu og tveir keppendur
mættu til leiks, er hraðskákmót
Austurlands var haldið á Eski-
firði, 30. október sl. Þótti það
lítil mæting og léleg, endurparg
ti í síld og vinnu við hana.
Telldar voru 9 umferðir eftir
Monradkerfi, 2 skákir á 10
mínútum.
Hraðskákmeistaii Ausiurlands
varð Trausti Björnsson Eski-
firði með 18 vinninga — vann
allar sínar skákir. Annar varð
Gunnar Finnsson Eskifirði með
15 vinninga og síðan komu
Jóhann Þorsteinsson Reyðar-
firði með 14'/í, Hákon' Sófus-
son.Eskifirði með 10V4, Emil
Thorarensen, Eskifirði og Mag-
nús Ingólfsson, Egilsstöðum
medlO vinninga.
-Regina/ASt.
Snjáð budda
saknar
eiganda síns
„Eg get ekki með nokkru móti
snert þessa peninga. Ég á þá ekki,
þótt ég fyndi þá af tilviljun,"
sagði kona sem hafði samband við
Dagblaðið. „Það gæti verið að eig-
andinn hefði ekki efni á að aug-
lýsa eftir buddunni eða teldi litla
von um árangur slíkrar auglýsing-
ar. Ég væri Dagblaðinu þakklát
fyrir að taka þátt 1 því að þessi
snjáða budda kæmist aftur í
hendur eiganda síns,“ sagði
þessi heiðarlega kona.
Buddan fannst sl. miðvikudags-
kvöld á gangstéttinni við Hring-
barut á milli Ljósvallagötu og
Brávallagötu. 1 henni er fjárhæð
sem einhvern kynni að muna tals-
vert um.
Dagblaðinu er ánægja að því að
koma þessum upplýsingum á
framfæri í von um að eigandinn
hafi samband við ritstjórn og
endurheimti buddu sína. Hvort
sem hún hefur um dagana geymt
meira eða minna af þeim verð-
mætum, sem mölur og ryð frá
grandað erum við sammála
heiðarlegum finnanda um að eig-
anda gæti munað um það sem I
henni er nú.
-GS.
Ásgeir
Pétursson f er
ekki í
framboð
Ásgeir Pétursson, sýslumaður i
Borgarnesi gefur ekki kost á sér i
alþingisprófkjör í Vesturlands-
kjördæmi. I frétt í DB í gær var
talið víst að Ásgeir færi i þetta
prófkjör, enda Vitað um stuðning
fjölda manna í kjördæminu við þá
hugmynd. Þá var og vitað að hann
hafði ekki tekið fjarri áskorunum
um að verða í prófkjörinu, þar til
hann tók ákvörðun um að gefa
ekki kost á sér, tiltölulega
skömmu áður en framboðsfrestur
rann út.
Þeir, sem DB fullyrti að yrðu í
prófkjörsframboðinu verða það
allir, eins og fréttin sagði.
-BS.