Dagblaðið - 07.11.1977, Blaðsíða 16
DAGBLAÐIÐMANUDAGUR 7. NOVEMBER 1977.
SPRENGJUHOTANIR - HÆTTI
KLUKKUSTUND SIÐAN ALVEG
þegar Vestur-Þýzkaland og Island léku landsleik í handknattleik á laugardag.
Ólaf ur H. iónsson skrifar um landsleikina fyrir Dagblaðið
Frá Ólafi H. Jónssyni, Þýzka-
landi.
Það var uppi fótur og fit í síðari
landsleik Vestur-Þýzkalands og
íslands í Elsenfelt á laugardag.
Leikurinn hófst á tilsettum tíma
kl. 19.30 — en fljótt bárust
lögreglunni í bænum símhring-
ingar — og það fleiri en ein —
um að sprengju hefði verið komið
fyrir í íþróttahöllinni. Þegar að
leikhléinu kom voru allir látnir
yfirgefa íþróttahúsið. f heila
klukkustund var leitað þar að
sprengju eða sprengjum en ekk-
ert fannst. Þá var leikurinn
hafinn á ný eða kl. 21.00 og Ieikið
í 15 mín. en áfram héldu hótanir
að berast til lögreglunnar. Þá var
tilkynnt I hátalara að ákveðið
hefði verið að hætta leiknum.
Lögreglan tæki ekki þá áhættu að
láta hann halda áfram. Staðan var
þá 17—12 fyrir V-Þýzkaland og
verða þær tölur látnar gilda.
Eftir leikinn hélt lögreglan
blaðamannafund, þar sem
lögreglustjórinn í Elsenfelt
skýrði frá því, að margoft hefði
verið hringt til lögreglunnar og
sagt að sprengja væri í íþróttahús-
inu. Því miður hefði lögreglan
ekki getað tekið þá áhættu að láta
leikinn halda áfram til loka. Mjög
erfitt væri að finna slíkar
sprengjur, þær gætu alls staðar
leynzt. Yfirvöldum í V-Þýzkalandi
berast alls konar hótanir og því
hefur meðal annars verið hótað,
að sprengja eina flugvél upp í
nóvember fyrir hvern þann RAF-
félaga, sem lézt í flugráninu
mikla á dögunum.
En nóg um það. Snúum okkur
að þeim 45 mínútum, sem leiknar
voru. Leikið var á heimavelli
Grosswallstadt og íslenzka liðið
byrjaði mjög glæsilega. Skoraði
mörk í fimm fyrstu upp-
hlaupum sínum og staðan varð
fljótt 5-2 fyrir ísland. Þjóðverjar
misnotuðu þá víti. Síðan stóð 6-3
og eftir það fór þýzka liðið að
minnka muninn. Á 13 mín. var
staðan 8-7 fyrir Island. Þá átti
Jón Pétur skot í stöng og Þjóð-
verjar jöfnuð i 8-8 eftir mistök
Ólafs Einarssonar og Þorbjörns
Guðmundssonar. Lítið var skorað
á næstu mín. en ísland komst
aftur yfir, 9-8. Þjóðverjar jöfnuðu
í 9-9 eftir klaufalegan ruðning
Þorbjörns Guðmundssonar — og
voru þýzku leikmennirnir þá ein-
um færri. Þá voru 26 mín. af leik.
Þjóðverjar skoruðu síðasta mark
hálfleiksins og staðan fyrir þá 10-
9 í leikhléinu.
Þessi hálfleikur var prýðilega
leikinn — betri en leikurinn
daginn áður í Ludwigshafen.
OLAFUR H. J0NSS0N
EKKIMEÐIHM
— en Axel Axelsson, Einar Magnússon og Jón Hjaltalín
tilbúnir að leika fyrir ísland
„Landsliðsnefndarmennirnir
Birgir Björnsson og Kar)
Benediktsson spurðu mig hér í
Þýzkalandi hvort ég gæti tekið
þátt i undirbúningnum og leik-
ið i heimsmeistarakeppninni í
Danmörku um mánaðamótin
janúar-febrúar — en ég sagði
þeim, að ég gæti það ekki af
persónulegum ástæðum," sagði
Olafur H. Jónsson, leikmaður-
inn kunni hjá Dankersen,
þegar blaðið ræddi við hann i
gær.
„Þetta er endanlegt svar hjá
mér og getur ekki breytzt. Ég
er ekki hræddur um íslenzka
liðið á HM. Það eru góðir strák-
ar að koma upp.“ sagði Ólafur
ennfremur. Þá ræddu þeir Birg-
ir og Karl einnig við Einar
Magnússon. Hann var áhorf-
andi að landsleikjum íslands
og Vestur-Þýzkalands. Svar
Einars var jákvætt. Hann er
reiðubúinn að taka þátt í undir-
búningi fyrir HM og leika þar,
álíti landsliðsnefnd hann nógu
góðan.
Dablaðið ræddi um þessi mál
við Axel Axelsson og Jón
Hjaltalín Magnússon í gær og
þeir eru báðir tilbúnir í HM-
siaginn með íslandi á HM.
Axel sagði. „Eg hef fullan
áhuga á að taka þátt í undir-
búningi fyrir HM-keppnina og
er reiðubúinn að koma heim í
desember ef landsliðsnefndin
telur að þörf sé fyrir mig. Enn
hefur ekki verið rætt við mig
um þessi mál.“
Jón Hjaltalín sagði: — „Já,
ég hef mikinn áhuga á að taka
þátt í þessu — og gæti komið
heim síðari hluta desember og
verið með islenzka liðinu fram
yfir HM í Danmörku. Ég hef
æft miklu betur í haust en
undanfarin ár og ekkert verið í
ferðalögum nú en þau settu oft
strik í reikninginn hjá mér
áður,“ sagði Jón en hann er nú
29 ára.
Fleiri íslenzkir landsliðs-
menn leika erlendis eins og
Ólafur H. Benediktsson, Viðar
Simonarson og Agúst Svavars-
son í Svíþjóð, og Gunnar
Einarsson í Þýzkalandi. Allt
leikmenn, sem mjög koma til
greina í íslenzka HM-liðið eins
og þeir Axel, Einar og Jón
Hjaltalín.
hsím
Reynslan
er
ólygnust
HÖRPUSILKI er íslenzk gæða-
vara, sérstaklega framleidd fyrir
íslenzkt veðurfar.
Á rannsóknarstofu Hörpu er
ávalt fylgst með framförum í efna-
iðnaðinum, sem tryggir, að
HÖRPUSILKI er framleitt úr
beztu fáanlegu hráefnum á hverj-
um tima.
HÖRPUSILKI er ódýr málning,
auðveld í notkun, mjög áferðar-
falleg og fæst í nýtízkulegu lita-
úrvali.
Við byggjum á yíir 40 ára reynslu við málningarframleiðslu.
Islenzku strákarnir komu enn á
óvart — voru harðir og ákveðnir í
þessum öðrum landsleik sínum á
tveimur dögum. Tveir leikmenn
Þýzkalands fengu að kæla sig í
hálfleikinn og Þorbergur af hálfu
Islands.
Síðan kom tilkynningin að allir
yrðu að yfirgefa tþróttahúsið og
þegar leikurinn hófst að nýju
klukkustund síðar var leikurinn
mjög slakur af hálfu beggja lið-
anna. Erfitt að ná vöðvunum f
gang á ný eftir slika bið — og það
var mikið fum og taugaspenna.
Þjóðverjar sigu framúr. Komust I
11-9, 12-10 og 13-11 og skoruðu svo
þrjú mörk í röð úr hraðaupp-
hlaupum, 16-11, án þess tslandi
tækist að skora. Síðan skoraði
hvort lið eitt mark, 17-12, og þá
var leiknum hætt. Þessar 15 mín.
í s.h. voru gjörólíkar því sem sást
i fyrri hálfleik. Þá léku bæði lið
vel — síðan illa.
Urslitin 17-12 voru látin gilda.
íslendingar hefðu getað neitað
því og látið úrslitin falla niður
sem slík en þeim fannst ekki á-
stæða til þess.
Mörk íslands i leiknum skor-
uðu Þorbergur Aðalsteinsson,
Þorbjörn Guðmundsson og Jón
Karlsson þrjú hver. Jón skoraði
eitt sinna marka úr víti Ólafur
Einarsson skoraði tvö mörk og
Árni Indriðason eitt. í fyrri hálf-
leiknum átti íslenzka liðið 19 upp-
hlaup og skoraði níu mörk. Það er
góð nýting en um síðari hálfleik-
inn er ekkert hægt að segja eða
dæma leikmenn af honum.
Eins og í fyrri leiknum var
aðall íslenzka liðsins hve það var
jafnt. Þorbergur átti góð skot og
Ólafur Einarsson og Jón Karlsson
stóðu vel fyrir sínu. Vörnin var
samstillt og það var góður
keppnisandi í íslenzka liðinu. Það
sýndi ágætan handknattleik í
fyrri hálfleiknum og Þjóðverj-
arnir voru hissa hve íslenzku leik-
mennirnir voru harðir og stóðu
sig vel. í markinu lék Gunnar
Einarsson allan tímann og átti
aftur ágætan leik. Ölafur Einars-
son lék sinn 50. landsleik þarna
og í hófi á eftir voru menn að
stríða honum með að hann hefði
leikið 49 og þrjá fjórðu úr lands-
leik.
Það fer ekki á milli mála, að
íslenzka liðið kom á óvart í þess-
um landsleikjum. Þjóðverjar voru
með alla sína beztu leikmenn —
en hjá tslandi vantaði marga
þekkta leikmenn. Eftir á sögðu
þýzku leikmennirnir að þeir
hefðu vanmetið íslenzka liðið —
en það er lítil afsökun — og ég er
ekkert hræddur um framtíðina í
íslenzkum handknattleik. Það eru
margir góðir strákar að koma
upp, sem eiga eftir að ná góðum
árangri með íslenzka landsliðinu í
framtíðinni.
Jón Indriðason, Þór, á fullri ferð í hraðat
LÆTI ÞEGJ
VÍKINGAR
Það var handagangur í öskjunni
þegar Njarðvíkingar sigruðu Reykia-
víkurmeistara KR mjög svo óvænt á
laugardag i 1. deild fslandsmótsins í
körfuknattleik. Urslit leiksins komu
mjög á óvart. UMFN sigraði KR 75-71,
en miklar deilur stóðu um annan
dómara leiksins, Sigurð Val Halldórs-
son.
Leikmenn KR héldu því fram að
Sigurður Valur lyktaði af áfengt — og
fóru fram á það við UMFN að leika
ekki síðari hálfleik. En síðari hálf-
leikur var leikinn, Einar Bollason
krafðist þess, sem fyrirliði KR, að Sig-
urður Valur færi í blóðprufu. Einar
fékk rautt spjald fyrir vikið — KR-
ingar sömdu þá plagg til dómara-
nefndar KKÍ þar sem þeir fóru þess á
leit við dómaranefndina að æskja þess
af Sigurði að hann færi í blóðprufu.
Jón Otti Ólafsson, formaður dómara-
nefndar fór á fund Sigurðar og fór þess
á Ieit við hann að fara í blóðprufu — en
Sigurður neitaði.
Þar við sat — og Njarðvíkingar tóku
tvö stig suður með sjó. Ekki þar fyrir,
UMFN verðskuldaði fyllilega bæði
stigin, barðist af krafti allan Ieikinn.
Þegar í upphafi tók Njarðvík forustu,
Frá Ólafi H. Jónssyni, Ludwigshafen.
Jákvæður leikur
Fyrri landsleikur islenzka
landsliðsins við Vestur-Þýzkaland
á föstudagskvöld var mjög já-
kvæður af háifu íslenzka liðsins.
Liðið spilaði sambland af taktik
Vals og Víkings — einfalda taktik
en kerfisbundna, sem gerði oft
mikinn usla i vörn Þjóðverja. Og
allan leikinn léku islenzku strák-
arnir mjög skynsamlega, þó oft
kæmu slæm göt í varnarleikinn.
Þýzkaland sigraði 18-16.
Leikurinn var mjög jafn í fyrri
hálfleik. Þýzka liðið skoraði yfir-
leitt á undan, en strákarnir héldu
vel I við það. Staðan í hálfleik 10-9
og Þorbergur Aðalsteinsson skor-
aði sfðasta mark tslands beint úr
aukakasti eftir að leiktíma var
lokið.
Hins vegar fylgdi slæmur kafli
í upphafi síðari hálfleiks og þá
breyttu Þjóðverjar stöðunni í 14-
10. Þar lögðu þeir grunn að sigri
sfnum. Islenzka liðið minnkaði
muninn í 15-14 og þá var hálf-
leikurinn hálfnaður. Eftir það var
mikil barátta og á markatöflunni
sáust tölurnar 16-15, 17-15, 17-16
og 18-16, sem urðu lokatölur leiks-
ins.
tslenzka liðið átti 34 sóknir og
skoraði 16 mörk. Það er tæplega
50% árangur, sem er mjög gott
—og liðið í heild kom á óvart.
Gunnar Einarsson markvörður
var bezti maður liðsins. Hann
kom fljótt inn á. Kristján Sig-
mundsson byrjaði en fann sig
ekki í leiknum. Gunnar varði
mörg skot úr dauðafærum Þjóð-
verja — og einnig tvö vítaköst.
Hann var aðalmaður liðsins, sem
að öðru leyti var mjög jafnt.
Dómararnir voru greinilega á
bandi þýzka liðsins — og það
viðurkenndu Þjóðverjar á 'eftir.
En þessu megum við . einnig