Dagblaðið - 08.11.1977, Blaðsíða 24
Framboð lítið af
íbúðum á fast-
eignamarkaðinum
— lítið framboð
en hækkandi
verð á minni
íbúðum
„Framboð á Íbúðum er ekki
nikið í dag og ekki er heldur
nikil hreyfing á verðlagi. Hins
/egar er teikn á lofti, þannig er
t'erðlag á minni íbúðum hækk-
andi — má segja að skjálfta-
v'irkni sé þar. Minnkandi fram-
boð + hækkandi verð á minni
ibúðum hefur yfirleitt verið
vísbending um hækkandi verð
á fasteignamarkaði almennt.
En við höfum svo oft rekið
okkur á að erfitt er að spá í
fasteignamarkaðinn, svo margt
verður að taka inn í dæmið,"
sagði Ragnar Tómasson hjá
Fasteignaþjónustunni er DB
innti hann eftir ástandinu á
fasteignamarkaðinum í dag.
„Þannig bjuggumst við við að
októbermánuður yrði i daufara
lagi vegna verkfalls BSRB en
reyndin varð önnur, sagði
Ragnar ennfremur. Staðan er
um margt Öðruvísi en við eðli-
legar aðstæður, þjóðmálin i
neild spila þar inn í. Efnahags-
mál, hærri kaupmáttur en
undanfarin misseri, boðun
vaxtahækkunar svo og að erfitt
er að fá fyrirgreiðslu i lána-
stofnunum. Allt gerir þetta erf-
itt fyrir um spádóma.
En verðhækkun íbúða hefur
vissulega átt sér stað, minni
íbúða. Þannig er til að mynda
dæmigerð íbúð í Hraunbæ nú
komin upp í 7,5 milljónir — en
var i sumar um 6,5 milljónir.
Fyrri hluti ársins var rólegur
en sala jókst síðari hluta ársins
og október hefur hingað til
verið bezti sölumánuður
ársins,“ sagði Ragnar Tómasson
að lokum.
„Það er fremur lítið framboð
á íbúðum nú en sala gæti verið
meiri ef framboð íbúða væri
meira,“ sagði Karl Jóhann
Ottósson, sölustjóri hjá Fast-
eignatorginu. „Það virðist
hafa gætt nokkurrar svartsýni
á markaðinum. Fólk virðist
tregt til að leggja í milljónavið-
skipti, fyrirgreiðsla lánastofn-
ana er ákaflega lítil.
Það sem af er árinu hefur
verið í meðallagi. Hins vegar
var októbermánuður slakur —
verkfall BSRB virðist hafa
dregið kjark úr fólki.
Með aukinni bjartsýni held
ég að viðskipti aukist og vona
að verðbólgunni verði ekki
aftur hleypt á gandreið," sagði
Karl að lokum.
„Það hefur verið nokkurt
framboð en lítið af minni
íbúðum. Auglýsingar hafa
verið talsverðar en oft er um
sömu íbúðirnar að ræða. Salan
á árinu hefur verið í meðallagi
en aukizt nokkuð með haust-
inu,“ sagði Birgir Ásgeirsson
hjá Aðalfasteignasölunni.
„Verkföll hafa ávallt,
neikvæð áhrif á sölu — fólk
kannar hins vegar málin þá.
Peningamöguleikar fólks eru
takmarkaðir, fólk byggir á
eigin fjármagnsgetu og útborg-
anir dreifast því á lengri tlma.
Ibúðir hafa lítið hækkað en
2—3 herbergja íbúðir fara fjót-
lega.
I heild tel ég þó að meiri
hreyfing verði á næsta ári,
meðal annars vegna þess að lík-
legt verður að teljast að líf-
eyrissjóðir hækki lán sín svo og
að lán frá veðdeild Landsbanka
íslands hækki en lán til kaupa
eldri íbúða hafa verið allt of
lág,“ sagði Birgir Ásgeirsson að
lokum.
- h halls.
Framsókn á Austurlandi
ákveður alþingisframboð
Efstu sætin á lista framsóknar-
manna á Austurlandi eru óbreytt:
Vilhjálmur Hjálmarsson, Tómas
Árnason, Halldór Ásgrímsson. I
fjórða sæti verður Jón Kristjáns-
son, ritstjóri Austra. Kemur hann
í stað Vilhjálms heitins Sigur-
björnssonar. í 5. sæti verður
áfram sr. Þorleifur Kristmunds-
son á Kolfreyjustað, og í 6. sæti
Kristján Magnússon, sveitarstjóri
á Vopnafirði. Hann er nýr maður
á listanum.
BS
‘Það var sannkallað loðnuskipa-
partí I höfninni á Akureyri um
helgina. Það er orðið langsótt í
loðnuna og veðrið frckar leiðin-
legt. Loðnuflotinn tók sér þvi
bara Ianga helgi. Sextán til átján
skip komu inn til Akureyrar og
áhafnir þeirra flugu til sinna
heima til hvíldar og hressingar og
fundar við fjölskvldur og vini.
DB-mynd FAX.
Rólegheit í
Mývatnssveit
Mjög hefur verið rólegt yfir
öllu í Mývatnssveitinni undan-
farna daga og fólk sinnir sínum
venjulegu störfum þrátt fyrir
smávægilega skjálfta og gufu-
mekki úr Bjarnarflagi.
DB hafði samband við
skjálftavaktina t Reykjahlíð í
morgun og höfðu þá aðeins þrir
litlir skjálftar orðið frá mið-
nætti I nótt. Allir voru þeir
undir 2 á Richterkvarða og
teljast smáræði.
HP
r r
SKIPAPARTIIAKUREYRARHOFN
frfálst, úháð daghlað
ÞRIÐJUDAGUR 8. NÖV. 1977.
Tveggja
milljóna
minkapels
stolið
Minkapels var stolið í banda-
ríska sendiráðinu sl. föstudag.
Þetta er pels úr villimink og er
metinn á um tvær milljónir
króna. Eigandinn er íslenzk kona
sem hefur verið búsett í Banda-
ríkjunum í mörg ár en er hér í
heimsókn hjá ættingjum og
vinum. Finnst henni að vonum
hart að missa þessa verðmætu
flík, en sá sem hefur tekið pelsinn
getur varla sýnt sig í honum
vegna þess hve auðþekktur hann
er.
KP
Sjö manns
slösuðust
— einn varð að
flytja til
Reykjavíkur
Sjö manns slösuðust og að
minnsta kosti einn alvar-
lega, er Mazda- og Citroén-
bílar rákust saman á Kefla
víkurveginum til móts við
Innri-Njarðvík. Slysið varð
skömmu fyrir klukkan átta I
gærkvöld. Bílarnir munu
hafa skemmzt mikið og
þurfti kranabíl til að koma
þeim af slysstaðnum.
Við þær akstursaðstæður
sem nú eru, myndast hjólför
í Keflavíkurveginn, en ann-
ars er þar glerhálka.
Citroenbíllinn var á leið til
Reykjavikur og mun hafa
lent upp úr hjólförunum.
Um leið bar að Mazdabílinn,
sem ók til Keflavíkur og
skall Citroénbíllinn á
honum.
Þrír farþegar voru í
Mözdunnu auk ökumanns og.
hlutu allir minni háttar
meiðsl. I hinum bílnum voru
þrír og slösuðust þeir öllu
alvarlegar. Meira að segja
varð að flytja einn á sjúkra-
hús í Reykjavík til frekari
aðgerða.
Lögreglan í Keflavik tók
það fram, er DB ræddi við
hana í morgun, að ekki hefði
verið hægt að rekja slys
þetta til hraðaaksturs, held-
ur einungis til þeirra akst-
ursaðstæðna sem nú eru á
Keflavíkurveginum. Fyllsta
ástæða er til að hvetja öku-
menn til að aka varLega þar.
AT
Krefst ríkissaksóknari lögbanns?
VERJANDISÆVARS CIESIELSKIS KREFST AÐGERÐA VEGNA BÓKAR KARLS SCHUTZ
Verjandi Sævars Marinós
Ciesielskis Jón Oddsson hrl„
hefur með bréfi til dómsmála-
ráðuneytisins krafizt aðgerða
stjórnvalda vegna bókar Karls
Schutz, sem áformað er að komi
út nú fyrir jól.
Fram hefur komið að Schutz
fjálli í formála bókarinnar um>
samanburð á afbrotamönnum
þeim sem koma við sögu í bók
hans, og sakborningum í Geir-
finns- og Guðmundarmáli, sem
svo eru nefnd. Staðhæfir
Schutz þar að hinir islenzku
sakborningar, þar á meðal
skjólstæðingur Jóns Oddssonar,
séu frá slæmum heimilum og
séu lítt gefnir. Hinir þýzku af-
brotamenn sem koma við sögu í
sakamálinu sem Schutz skýrir
frá, séu hins vegar vel mennt-
aðir og frá góðum heimilum.
Telur Jón Oddsson hrl. að
þarna sé vegið að skjólstæðingi
sinum á þann hátt sem varði við
136. gr. almennra hegningar-
laga. Sé skjólstæðingi sinum
nauðsyn að grípa til varna og
krefst lögmaðurinn þess, að
með lögbanni eða á annan hátt
sé stöðvuð útkoma bókarinnar.
Akvæði það sem lögmaður-
inn vitnar til í hegningarlögum
er f 136. gr. Segir þar: Opinber
starfsmaður sem segir frá ein-
hverju er leynt á að fara og
hann hefur fengið vitneskju
um i starfi sínu eða varðar em-
bætti hans eða sýslan, skal sæta
varðhaldi eða fangelsi allt að
einu ári. Hafi hann gert það til
þess að afla sér eða öðrum
óréttmæts ávinnings, eða noti
hann slika vitneskju í því
skyni, má beita fangelsi allt að
3 árum.
Sömu refsingu skal sá sæta
sem látið hefur af opinberu
starfi og eftir það segir frá eða
misnotar á ofangreindan hátt
vitneskju sem hann hefur
fengið i stöðu sinni og leynt á
að fara.
„Hvort óhamingja þessara
ungmenna eigi að verða ein-
hverjum að féþúfu nú um jólin
eða ekki tel ég ekki eingöngu
einkamál útgefanda og höf-
undar, heldur skjólstæðings
míns og fjölskyldu hans, svo og
þeirra yfirvalda er svipt hafa
hann frelsi vegna rannsókna
ofangreinds sakamáls. Ber ég
því fram þá kröfu f.h. skjól-
stæðings mins, að hið háa ráðu-
neyti grípi til viðeigandi að-
gerða áður en það kann að
verða of seint,“ segir Jón Odds-
son hrl. í bréfi sínu til ráðu-
neytisins.
Lögmaðurinn telur ofan-
greind ákvæði hegningarlaga
taka til Karls Schutz. Hanh hafi
unnið við rannsókn áður-
greinds máls, „þó ekki hafi
tekizt að leggja fram í málinu
opinbert skipunar- eða erindis-
bréf honum til handa.“
Dómsmálaráðuneytið hefur
ekki enn tekið afstöðu til kröfu
Jóns Oddssonar hrl. f.h. Sævars
Marínós. Telja má víst, að málið
beri undir embætti rikissak-
sóknara til ákvörðunar um að-
gerðir eða aðgerðaleysi í þá átt
að stöðva útkomu bókarinnar
eftir Karl Schutz. BS