Dagblaðið - 25.11.1977, Blaðsíða 3
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. NðVKMBKR 1977
N
3
Skýlislausir hestar á Nesinu:
Hlynnið að gæludýrunum ykkar
Auðvitað þurfa hestar að vera úti undir beru lofti en þeir þurfa nauðsynlega að hafa eitthvert athvarf
til þess að geta leitað skjóls i óveðrum. — DB-mvnd Sveinn Þormóðsson.
Skúli Helgason prentari
hringdi:
Hann sagðist daglega hafa
fyrir augunum úti á Seltjarnar-
nesi um eins hektara svæði þar
sem fjórir hestar eru á beit.
Hestarnir hafa verið þarna í
allt sumar algjörlega skýlis-
lausir. Það er dálítið ömuriegt,
sagði Skúli, að vera að skemmta
sér við að eiga hesta og fara
svona með þá. Aðeins í
austanátt geta þeir staðið undir
húsgafli.
Hestar hafa gott af þvi að
ganga úti en þeir þurfa
eitthvert skýli. Hestar þessir
eru þó ekki illa haldnir að sjá
en svæðið sem þeir eru á er
orðið rótnagað og því hlýtur
þeim að vera gefið eitthvað,
sagði Skúli, þótt hann yrði ekki
var við það.
Ekki sagðist Skúla verða var
við að hestar þesstr væru
notaðir. Hann sagðist oft koma
út á Nes um helgar en hann
hefði aldrei séð nokkurn mann
nálægt þessum skepnum.
Skúli sagðist hafa kvartað
undan þessu við Ingimund yfir-
lögregluþjón á Nesinu en
ekkert er víst hægt að gera í
málinu.
Maður er alinn upp í sveit við
skepnur, sagði Skúli. Maður
myndi ekki fara svona illa með
köttinn sinn og ég er hræddur
um að hundavinir byðu ekki
hundunum sinum upp á svona
meðferð.
Menn eru að gera sér til
gamans að hafa skepnur og
skyldi maður þá ætla að þeir
vildu hlynna að blessuðum
skepnunum.
MÆUKVARÐIMAMMONS - FJÓRIR HRÚTAR, MIKIÐ TJON
Ásgeir Guðmundsson iðnskóla-
kennari hringdi og bað DB að
birta eftirfarandi vísu:
Vísan er ort í tilefni fréttar í
DB 22. nóv., þar sem sagt var
frá fjórum hrútum sem brunnu
inni í hrútakofa á Svinafelli í
Öræfum.
Mikil er sorg fyrir mammons þjón,
minnst ef er á hrútatjón.
Hitt ég tel að hugsi fleiri,
hrúta teljist kvölin meiri.
„Alltaf
gengið
áhlut
ungling-
anna”
—segir
bréf ritari sem
mótmælir
styttingu
Laga unga
fólksins
Unglingur skrifar:
Þetta er nú ekki hægt. Nú er
ennþá búið að skera niður tíma
Laga unga fólksins í út-
varpinu. Það eina sem
hlustandi hefur verið á. Og það
á meðan umsjónarmaðurinn
segir í viðtali við Dagblaðið að
hann fái um 200 bréf á viku og
komist ekki yfir að lesa þau
nærri öll. Ef það væri fullorðna
fólkið sem væri farið svona með
er ég hræddur um að hljóð
heyrðist úr horni.
Það skal alltaf verið gengið á
rétt okkar unglinganna og talið
að við getum enga rönd við
reist. En ég vil bara minna á
að einhvern tíma verðum það
við sem fáum að greiða afnota-
gjöldin fyrir útvárp jafnt og
annað og þá skulið þið sko fá að
hlusta á það sem við viljum
heyra.
NY EIGULEG HLJOMPLATA
JJPMllt
Á þessari vönduðu hljómplötu syngur Bergþóra við undirleik nokkurra helstu
hljómlistarmanna landsins,
eigin lög við ýmiss ljóð valinkunnra íslenskra skálda.
EIGNIST EINTAK
MEÐ BERGÞÓRU ÁRNADÓTTUR
FALKINN
Spurning
dagsins
Kvíðirðu
fyrir
jólunum?
Bjarni Vilhjálmsson þjóðskjala-
vörður, 62 ára: Nei, það geri ég
ekki. Jú, ég hlakka frekar til
jólanna.
lúlius Hafstein verzlunarmaður,
30 ára: Nei, ég hlakka alltaf til
jólanna.
Þórunn Green Lands-
bankamær,33 ára: Nei, alls ekki.
Eg hlakka frekar til jólanna.
Bjargmundur Albertsson, starfar
við ýmislegt, aldur leyndarmál:
Nei, nei. Eg hlakka frekar til
jólanna.
Aðalbjörg Zophonfasdóttir síma-
mær, 59 ára: Nei, ég hlakka til
jólanna. Annað væri óeðlilegt!
Sigriður Vilhjálmsdóttir hús-
móðir, sent vinnur hlutastarf á
Thorvaldsensbasarnum, 67 ára:
Nei. það er frekar að ég hlakki til
þeirra.