Dagblaðið - 25.11.1977, Blaðsíða 12

Dagblaðið - 25.11.1977, Blaðsíða 12
12 Fulham þénaði 50 millj. króna — þegar Teddy Maybank var seldur til Brighton ígær Lundúnaliðið, Fulham, sem á við mikla fjárhagsörðugleika að stríða, rétti sig að mikiu leyti við í gær á því sviði, er félagið seldi Teddy Maybank, hinn snjalla fram- herja, til Brighton fyrir 200 þúsund sterlingspund. Fyrir tæpu ári keypti Fulham Maybank frá nágrannaliði sínu, Chelsea, og greiddi 75 þúsund steriingspund fyrir leikmanninn. Fulham fékk því 125 þúsund pundum meira fyrir leikmanninn frá Brighton en það greiddi Chelsea. Fulham græddi því tæpar 50 miiljónir á þessum viðskiptum, auk þess, sem Maybank hefur leikið mjög vel með Fulham og unnið inn mörg stigin fyrir félagið. Hins vegar er áreiðanlegt, að for- ráðamenn Chelsea naga sig nú í handar- bökin. Það félag er með langan skuldahala eftir miklar framkvæmdir á velli félagsins Stamford Bridge. Það er nú greinilegt, að Brighton ætlar sér stóra hluti og stefnir í 1. deild. í síðustu viku keypti félagið leikmann frá Southend fyrir 50 þúsund sterlingspund — og nú Maybank. Brighton ásamt útborginni Ilowe, þar sem völlur félagsins er, telur um 300 þúsund íbúa og hefur því möguleika á góðri aðsókn eins og gerist hjá liðum í 1. deild. Alan Mullery, framkvæmdastjóri Brighton, fyrirliði Tottenham um langt árabil og einnig enska landsliðsins, hóf feril sinn hjá Fulham og lék þar 199 deildaleiki áður en hann var seldur til Tottenham. Þar lék hann 312 deildaleiki en fór síðan aftur til Fulham. Lauk ferli sínum þar — eftir að hafa leikið hátt í 200 deildaleiki þar í síðara skiptið með frægum köppum eins og Bobby Moore og George Best. Hann þekkir því vel til Teddy Maybank og stcfnir greinilega hátt með sitt nýja félag. Mesta aðsókn áhorfenda hjá Brighton, þessari frægu skemmtilborg á suður- ströndinni, er 36.747 einmitt gegn Fulham. Það var 27. desember 1958. Russi mætir Klammer á „heimavelli" — Þegar fyrsta stórmót vetrarins íalpagreinum verður háð í Sviss á sunnudag Fyrsta stórmót vetrarins i skíðaíþróttun- um verður háð í Crans-Montana í Sviss á sunnudag. Þá verður keppt í bruni karla og kvenna í The World Series. Þar keppa átta beztu skíðamenn hverrar þjóðar í sinni sér- grein — og er undanfari heimsbikarsins, sem hefst í Val D’lsere í Frakklandi að venju- 7. desember. Keppnin á sunnudag átti í fyrstu að vera í Schladning en þar var ekki nægur snjór og brunkeppnin því flutt til Crans-Montana. Það er „heimavöllur” hins kunna svissneska brunkappa Bernhard Russi. Austurríkis- maður Franz Klammer, heimsmeistarinn í bruni, lendir því í harðri keppni í fyrstu brunkeppni vetrarins. í kvennakeppninni verður Anna-Maria Moser-Pröll enn einu sinni á ferðinni — og í svigi og stórsvigi karla keppir heimsmeistarinn Ingemar Sten- mark, Svíþjóð, ásamt helztu keppináutum sínum Heini Ilentmi, Sviss, Gustavo Thoeni og Piero Gros, ítalíu. Stórsigur Real Madrid Tveir leikir voru háðir í Evrópukeppni meistaraliða í körfuknattleik í gærkvöld. í Ankara í Tyrklandi vann sænska liðið Alvik góðan sigur á tyrkneska liðinu Eczacebasi — eða með 95 stigum gegn 85. Staðan í hálfleik var 48-43 fyrir Alvik. i Madrid léku Real Madrid og TUS 04 Bayern frá Vestur-Þýzkalandi og spánska liðið vann þar stóran sigur. Skoraði 116 stig gegn 70 stigum þýzka liðsins. Munurinn því 46 stig Real Madrid í hag. Staðan í hálflcik var 58-42 fyrir Real Madrid. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. NÖVEMBER 1977. MÖGULEIKAR FH Á SIGRI í 30. EVRÓPULEIK FÉLAGSINS —en engir möguleikar á áf ramhaldi í keppninni. FH leikur við Vorvárts, Austur-Þýzkalandi, á laugardag. Vinnur FH þar sinn 14. Evrópusigur? Josef Rose, gamli lands- liðskappinn hjá Vorvárts var FH- ingum mjög erfiður í fyrri leik liðanna í Austur-Þýzkalandi. Talsverðar líkur eru nú á að FH ráði til sín pólskan þjálfara fyrir næsta kcppnistímabil. Hann er ekki af verri tegundinni, Arthur Zbylicky, en hann er yfir- maður handknattleikskennslu við íþróttaháskólann í Gdansk. Don Megson hefur sagt starfi sínu lausu sem framkvæmda- stjóri Bristol Rovers í 2. deildinni ensku. Liðinu hefur gengið mjög illa í haust — og er í næst neðsta sæti. Megson, sem áður fyrr var kunnur leikmaður með Sheff. Wed., mun taka við bandaríska liðinu Portland. Bikarkeppni HSÍ i meistara- flokki karla hefst á næstu dög- um en alls keppa lið frá 21 félagi. Liðin átta í 1. deild sitja yfir í 1. umfcrðinni t-í og auk þess þrjú önnur, Grótta, Fylkir og Þór, Vestmannaeyjum. í fyrstu umferðinni verða því fimm leikir og eftirfarandi lið1 leika saman: UMFN — Þór, Akureyri. ÍA — Stjarnan KA — Týr, Vestmannaeyjum UMFA — UBK Leiknir — Þróttur, Rvík. Það lið, sem talið er á undan á heimaleik. Félögin eiga að koma sér saman um leikdag og leikstað. Ef það tekst ekki setur móta- FH leikur sinn 30. Evrópuleik í Laugardalshöll á morgun og and- stæðingarnir eru engir aðrir en Vorwárts frá Frankfurt am Oder, a-þýzku bikarmeistararnir. Róður bikarmeistara FH verður erfiður — FH tapaði stórt í A-Þýzkalandi, 14-30. Það er því við snillinga að etja, þrautþjálfaða atvinnumenn er æfa tvisvar á dag. Möguleikar FH til að komast í næstu umferð eru hverfandi —en sigurmöguleikar í leiknum gegn a-þýzku bikarmeisturunum eru vissulega fyrir hendi. Geir Hall- steinsson og ^élagar hafa áður mætt Vorwárts. Það var 1974 í Evrópukeppni meistaraliða. Fyrri leikurinn fór fram í Reykjavík, fyrir fullu húsi áhorfenda í Laugardalshöll. Geir Hallsteins- son byrjaði glæsilega fyrir FH — skoraði fyrsta mark leiksins en skömmu síðar meiddist Geir illa, nefbrotnaði. Við áfallið virtist FH ekki ná sér á strik — og Vorwárts sigraði 21-17. Síðari leikinn vann Zbylicky mun koma hingað um mánaðamótin febrúar-marz og kynna sér aðstæður og leikmenn. íðan kemur Zbylicky aftur væntanlega um mánaðamótin ágúst-september og mun hefja þjálfun hjá FH, þá alkominn fyrir næsta keppnistímabil. Birgir Björnsson formaður landsliðsnefndar HSÍ ræddi við Zbylicky er hann var með ís- lenzka landsliðið í Póllandi. Zby- licky lýsti miklum áhuga við Birgi á að koma til íslands og þjálfa hér og ef af verður mun hann væntan- lega þjálfa meistaraflokk FH, svo og hafa umsjón með þjálfun yngri flokkanna. nefnd HSÍ leikina á. Leikjum í þessari umferð á að ljúka fyrir 31. desember í ár. Bika'kepp ii kve'Via 14 félög tilkynnti lið til þátt- töku í bikarkeppni meistara- flokks kvenna. í fyrstu umferð sitja yfir lið KR og FH en saman keppa eftirtalin lið: Ármann — UBK Valur — Víkingur ÍR — Þór, Ak. Þróttur — KA Haukar — Fram UMFK — UMFG Það lið sem talið er á undan á heimaleik. Vorwárts síðan 30-18 — og vann Evrópukeppni meistaraliða, sigraði Gummersbach í úrslitum. „Við gerum okkur ljóst að möguleikar okkar til áframhalds í keppninni eru nánast úr sögunni, en sigurmöguleikar gegn a-þýzku bikarmeisturunum eru vissulega fyrir hendi,“ sagði Ingvar Björns- son, formaður handknattleiks- deildar FH. Hvorki fleiri né færri en sjö leikmenn Vorwárts eru a-þýzkir landsliðsmenn — en þeirra erfið- astir í Þýzkalandi voru Walter Smuch sem skoraði sjö mörk, Klaus Gruner með 6 mörk — og Joachim Pietsch, sem skoraði 5 mörk. Leikurinn gegn Vorwárts verður eins og áður sagði 30. Evrópuleikur FH — þar af hefur FH sigrað 13 sinnum, einu sinni hefur orðið jafntefli en það var gegn St. Otmar í Sviss 1974. FH hefur 15 sinnum tapað Evrópu- leikjum, vissulega góð frammi- staða. Meðal liða sem FH hefur sigrað má nefna Fredensborg, Honved, núverandi mótherjar Vals í Evrópukeppni meistara- liða. Franska liðið Ivry, Saab frá Svíþjóð, Oppsal frá Danmörku. Vissulega athyglisverð frammi- staða og því verður fróðiegt að sjá hvort Vorwárts verður fjórtánda fórnarlamb FH í Evrópukeppni. Kostnaður af Evrópukeppni FH er gífurlegur — þannig áætla forráðamenn FH að kostnaður af Eftir sigur á fimm tennis- mótum kom að því í gær, að Sví- inn snjalli, hinn 21 árs Björn Borg, tapaði. Það var á Grand prix móti í Oviedo á Spáni. Hinn hávaxni Sherwood Stewart frá Félögunum ber að hafa sam- vinnu um að setja leikina á. Þessum leikjum á að vera lokið fyrir 31. des. 1977. 2. fl. karla Til þátttöku í Bikarkeppni ann- ars flokks karla voru tilkynnt 15 lið. Í fyrstu umferð situr lið Fram yfir en eftirtalin 14 lið keppa sem hér segir: UMFA — Þróttur Grótta — Stjarnan UBK — FH Valur — HK KR — ÍR Haukar — Ármann Víkingur — Leiknir leikjunum við Vorwárts verði um 1750 þúsund krónur. Fyrirliðinn annast dráttinn Hinn þekkti fyrirliði ítalska landsliðsins í knattspyrnu, Giacinto Facchetti, mun annast dráttinn, þegar dregið verður i Evrópukeppni landsliða í Róm á miðvikudaginn. Frá þessu var skýrt í Róm í gær. Dregið verður í riðla fyrir Evrópukeppnina 1980 en úrslit hennar verða háð á ítaliu það ár. Leikirnir í riðlunum hefjast að einhverju leyti næsta haust. Urslitin verða 5.-20. júní 1980 og ítalir fara beint í úrslit sem gest- gjafar. Það verður spennandi að frétta á miðvikudag með hvaða þjóðum ísland lendir — og margir gera sér vonir um, að við lendum í riðli með Eng- lendingum. Sleppum nú einu sinni við Belgiumenn. Facchetti, sem er 35 ára og hefur leikið 94 landsleiki fyrir Ítalíu, hefur hlotið samþykki UEFA til að draga nöfn landanna úr hattinum. Bandaríkjunum gerði sér þá lítið fyrir og sigraði Björn örugglega 6-1 og 7-6. Stewart, sem er 31 árs frá Texast hafði yfirburði í fyrri lotunni — og virtist einnig ætla að vinna þá síðari örugglega. Björn Borg virkaði mjög þreyttur. En Wimbledonmeistarinn tók sigtals- vert á, þegar líða tók á Iotuna og virtist um tíma ætla að jafna. En honum tókst það ekki og Banda- ríkjamaðurinn stóð uppi sem sigurvegari. „Það hlaut að koma að því að ég tapaði,“ sagði Björn eftir leikinn. Á síðustu tveimur mánuðum hefur hann sigrað á mótum í Madrid, Barcelona, Basel, Köln og Lundúnum. íþróttir Pólskur þjálfari FH næsta vetur? LIÐ FRÁ 21FÉLAGI í BIKARKEPPNIHSÍ Þá kom að því að Björn Borg tapaði Schutz. Segðu . Sigfinni að koma. Ætla að kvnna hann. Baróninn spjallar við hina ungu fanga sína eins og þeir væru geslir hans Herra Barón [iycHÖ OUvtRft- 6-5 málefni glimunnar —á ársþingi Glímusambands íslands Arsþing Glímusambands fs- lands var haldið að Hótel Loft- , leiðum 30. október sl. Þingið sóttu um 30 manns. Gestir1 þingsins voru Gísli Halldórsson forseti fSÍ, Þorsteinn Einarsson iþróttafulltrúi, Valdimar Oskars- son fyrrverandi formaður GLf og Hermann Guðmundsson fram- kvæmdastjóri ÍSf, en hann var jafnframt þingforseti. f skýrslu stjórnar fyrir síðasta starfsár kom m.a. fram að: 1. Reglur um gráðun glímu- manna tóku gildi á árinu. 2. Tækninefnd var skipuð í fyrsta skipti á árinu og hún er tekin til starfa. 3. Fyrsta landsmót í glímu með útsláttarfyrirkomulagi fór fram á árinu. Miklar umræður urðu um málefni glímunnar. Snerust þær einkum um ýmis keppnistilbrigði bæði að fornu og nú á dögum. f því sambandi má nefna að mjög voru skiptar skoðanir manna á því hvort taka beri upp útsláttar- keppni á fslandsglímunni en sigurvegarinn í þeirri keppni hlýtur sæmdarheitið Glímukappi fslands. f stjórn voru kosnir: Ólafur Guðlaugsson var endurkjörinn formaður. Meðstjórnendur: Sig- tryggur Sigurðsson, Sigurður Jónsson, Þorvaldur Þorsteinsson og Erlingur Sigurðsson. RITSTJORN: HALLUR SIMONARSON FJÖLBREYTT HUSGAGN AÚRVAL A 2 HÆÐUM - LÍTIÐINN 0G GERID GÓÐ KAUP - ___ hf. Sími11940 tilkl.7 íkvold, Feðgarnir Guðmundur Sveinsson og Sveinn Guðmundsson voru snjallir í skíðagöngunni á síðasta keppnistimabili. Þeir fengu verðlaun nú í vikunni. Guðmundur varð Reykjavíkurmeistari í 15 km göngu og Sveinn sigraði í 5 km göngu unglinga. Agúst Björnsson tók myndina að ofan, þegar þeir veittu verðlaunum sínum móttöku á heimili Ellenar Sighvatsson við Amtmannsstíg. Þeir halda til Noregs til æfinga nú um helgina — og Ingólfur Jónsson er nýlega farinn þangað í sama tilgangi. Síðar fer svo Halldór Matthíasson. Miklar umræður um SLOPPABÚDIN Sérverzlun með shppa FR0TTÉSL0PPAR VELÚRSL0PPAR VATTSL0PPAR ÞUNNIR SL0PPAR HERRASL0PPAR BARNASL0PPAR Komiöogsjáið SL0PPABÚDIN VERZLANAHÖLUNNI Laugavegi26 2. hæð — Sími 15186 Lrtil frægðarför Dana, en Spánn kom á óvart —á miklualþjóðlegu móti íhandknattleik íRúmeníu Austur-Þýzkaland sigraði á miklu stórmóti í handknattleik, sem nýlega var háð í Karpater í Rúmeníu, á betri markatölu en sovézku olympíumeistararnir. Spánverjar komu mjög á óvart í þessari keppni og sigruðu Sovét-' ríkin — en danska landsliðið gerði þangað litla fræðgarför. Lenti í lakari riðlinum í úrslita- keppninni. Alls tóku átta lið þátt í keppninni. Rúmenía var með A- og B-lið — en hin löndin vóru Ungverjaland, Austur-Þýzkaland, Sovétríkin, Spánn, Danmörk og Búlgaría. Löndunum var upphaflega skipt í tvo riðla. í A-riðli léku Austur-Þýzkaland, Rúmenía A, Danmörk og Búlgaria. í B-riðli léku Sovétríkin, Spánn, Rúmenía B og Ungverjaland. Strax urðu mjög óvænt úrslit. Þannig sigraði Spánn Sovétríkin 24-22 en þessi lönd eru ásamt íslandi og Danmörku í riðli saman í heimsmeistarakeppninni. Sovézku leikmennirnir höfðu þó lengstum yfir, 12-10 í hálfleik, en lokasprettur Spánverja setti þá út af laginu. Þess er þó rétt að geta að fáir af frægustu leikmönnum Sovétríkjanna tóku þátt í keppninni. Þeir Albizu og Cascallana skoruðu flest mörk Spánar eða 6 hvor. Hjá sovézkum voru Gassij 8, Kidjajev 6 og Siuk 4/3 markhæstir. Ungverjaland og Rúmeína B gerðu jafntefli 22-22 og hjá Ungverjum var Kovacs, sem leikur með Honved gegn Val í Laugardalshöll í kvöld, mark- hæstur með 8 mörk. í A-riðlinum sigraði Danmörk Búlgaríu 32-25 í mjög grófum leik eftir að Búlgaría hafði yfir í hálf- leik 15-14. Tomas Pazyj skoraði flest mörk Dana eða 8 en Thor Munager og Jesper Petersen sex hvor. Anders Dahl-Nielsen skoraði aðeins eitt mark. Þá vann A-Þýzkaland Rúmeníu A með 24- 21. Dreibrot var markhæstur Þjóðverja með 10 mörk en hjá Rúmenum skoraði Birta mest 6/4. Sovétríkin sigruðu Rúmeníu B með 17-15 — en Ungverjaland og Spánn gerðu jafntefli 25-25. Kenyeras var markhæstur Ung- verja með 6 mörk og Albizu skoraði mest fyrir Spán — einnig sex. Rúmenía sigraði Búlgaríu 27- 21. í lokaleikjunum í riðlunum komu Búlgarar á óvart og sigruðu A-Þjóðverja með 26-22. Dreibrot var aftur markhæstur hjá Þjóðverjum með sjö mörk og Gruner skoraði fjögur. Rúmenía A sigraði Danmörku 23-20 eftir 11-5 í hálfleik. Michael Berg var markhæstur Dana með 6 mörk. Áður höfðu A-Þjóðverjar unnið Dani með 28-21 eftir 12-11 í hálf- leik fyrir Dani. Wahl skoraði flest mörk Þjóðverja eða 7 en hjá Dön- um var Michael Berg markhæstur með 6/4 mörk. Úrslitin frá undankeppninni milli einstakra þjóða giltu i úr- slitariðlunum. í A-riðlinum léku A-Þýzkaland, Sovétríkin, Spánn og Rúmenía A — en í B-riðlinum Ungverjaland, Danmörk, Rúmenía B og Búlgaría. Loka- staðan í úrslitum var þessi. 3 63-56 4 A-Þýzkaland Sovétríkin Rúmenía A Spánn Sovétríkin Þýzkaland 18-17 3 59-57 4 3 65-64 2 3 62-72 2 sigruðu A- og Rúmeníu A með 19-16 svo tapið gegn Spáni i undanúrslitum hafði afgerandi áhrif í úrslitunum. Rúmenía vann Spán 28-21. og Austur-Þýzkaland vann Spán 22-17. 1 B-riðlinum í úrslitum varð lokastaðan þessi: Ungverjaland 3 82-65 5 Danmörk 3 77-71 4 Rúmenía B 3 76-61 3 Búlgaría 3 62-89 0 Ungverjaland sigraði Dan- mörku 28-24. 1 þeim leik skoraði Anders Dahl-Nielsen 10 mörk fyr- ir Dani —3 úr vítum. Bent Lar- sen skoraði fjögur. Hjá Ung- verjum var Kovacs markhæstur með tólf mörk. Rúmenía B vann Búlgariu 25-18, Ungverjaland vann Búlgaríu 32-19 og Danmörk vann Búlgaríu með 21-18. Heine Sörensen var markhæstur Dana með sjö mörk. I keppninni skoraði Michael Berg flest mörk Dana eða 22. Anders Dahl-Nielsen var næstur með 20 mörk. Erik Bue Petersen skoraði 19, Thor Munkager 14 og >Thomas Pasyj 12. Aðrir færri. Niðursoðnir ávextirá hagstæðuverði Símar 34648 og 23075 Heildverzlun Á. A. Pálmasonar Austurborg Búðargeröi 10—Súni33205 vörutegundir ágömlu, góðu verði. Opnum á morgun ínýju húsrými jólamarkaö MIKIÐ ORVAL AF LEIKFÖNGUM OG ÖÐRUM GJAFAVÖRUM. JÖLAKORT. JÖLA- PAPPlR. JÖLASKRAUT. JÖLAKERTI. SKRAUTKERTI. JÖLASERVtETTUR. EINNIG SNYRTIVÖRUR FYRIR KONUR OG KARLA. AUSTURB0RG, Búðargerði 10\

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.