Dagblaðið - 25.11.1977, Síða 6

Dagblaðið - 25.11.1977, Síða 6
6 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 25. NÖVEMBER 1977. Kalifornn: Fjöldamorðingi gengur laus —ellefu konur kyrktar á síðustu sex vikum Ellefu konur hafa fundizt myrtar á síðustu sex vikum nærri borginni Los Angeles í Bandaríkjunum. Öttast lögregl- an í Kaliforníuríki að hér sé á ferðinni brjálaður fjöldamorð- ingi. Öll fórnardýrin nema eitt hafa verið kyrkt. Lík kvenn- anna voru öll skilin eftir við vegarbrún í úthverfum Norð- austur af Los Angeles. Flest líkanna voru klæðlaus er að var komið og þrjú þeirra báru merki um kynferðislegar mis- þyrmingar. Helzti vandi lögreglunnar við leit að ódæðismanninum, er að ekki er fullljóst hvort hér er um einn og sama manninn að ræða í öll skiptin. Búið er að koma á fót sér- stakri lögreglusveit sem ein- göngu á að sinna þessu máli. Vitað er að tvær kvennanna sem orðið hafa fórnardýr morð- ingjans stunduðu vændi en hinar níu voru af ýmsum þjóð- félagsstéttum, meðal annars skólastúlkur. Brezkir og franskir Concordemenn hressir mmM Concorde þotan hin hljóðfráa leggur upp í sína fyrstu áætlunarferð frá Heathrowflugvelii við London og er ferðinni heitib til New York. Vélin var fullhlaðin farþegum og flugtíminn var þrjár klukkustundir og f jörutíu og fimm mínútur. Fyrstu upplýsingar um sæta- pantanir með Concorde vélum brezku og frönsku flugfélaganna lofa góðu að sögn félaganna. Segja þau að margir, einkum kaupsýslumenn, hafi nú þegar pantað far. British Airways hefur upplýst að nærri sé fullbókað í þær tvær áætlunarferðir í viku sem verða til London frá New York næsta mánuðinn. Talsmenn Air France segjast ánægðir með bókanir hingað til en þó séu nokkur sæti laus fyrir þá sem óski að fljúga með þeim til Parísar. Daglegar áætlunarferðir verða með hinni hljóðfráu Concorde- þotu milli New York og Parísar. Frakkland: Verkfallsmenn hand- tóku stjómarformann Renaultbílasmiðjanna Stjórnarformaður Renault bílaverksmiðjanna frönsku var sjö klukkutíma í haldi um það bil eitt hundrað verkfalls- manna í gær. í fyrstu sögðu þeir að honum yrði ekki sieppt lausum fyrf en samþykkt væri að hefja samningaviðræður en síðan var stjórnarformanninum sleppt í gærkvöldi. Vinnudeilan í bifreiðaverk- smiðjunum, sem eru í eigu franska ríkisins, stendur um hve starfsmenn verksmiðj- unnar eigi að fá mikinn hluta launa sinna greiddan síðustu vikurnar. Stjórn fyrir- tækisins ákvað að stytta vinnutímann mikið og lækka laun jafnhliða í síðasta mán- uði vegna verkalls 150 birgðavarða. A þetta vildu starfsmennirnir ekki fallast. Fundinn leyndardómur um ratvísi kattarins Sovézkir vísindamenn telja sig hafa fundið ástæðuna fyrir hinni miklu og öruggu ratvisi katta, að þvi er dagblaðið Isvestia í Moskvu sagði í gær. Telja vísindamennirnir sig hafa uppgötvað að völundarhús eyrans virki sem nokkurs konar áttaviti eða ratsjá kattarins. Tilraun er gerð var meö einn ulraunakött hófst þannig að bundið var fynr augu hans og hann síðan borinn í körfu ýms- ar krókarleiðir að matarskál og síðan aftur til baka að upphafs- staonum. Algjör Kyrrð var og borið var bensín á gólfið sem farið var um til að koma í veg fyrir að kötturinn gæti gengið á lyktina. Að þessu loknu var kettinum sleppt úr körfunni en ekki losaður við augnbindiö. Gekk hann þá hiklaust að mat- arskálinni, að sögn dagblaðsins. Að því loknu var völundar- hús eyrans fjarlægt úr kettin- um með uppskurði. Var gönguferðin í körfunni síðan endurtekin en þegar honum var sleppt reikaði hann aðeins stefnulaust um og fann alls ekki matarskálina. Bandaríkin: Nágranna- kryturinn settur í gerðardóm Bandaríkjastjórn hefur ákveðið að veita fé til að reyna að fækka málum, sem landsmenn höfða hver gegn öðrum af ýmsu tilefni. I tilraunaskyni er ætlað að koma á nokkurs konar gerðardómi í hverfum borga og bæja þar sem afgreiða megi mál sem til dæmis koma upp vegna deilna nágranne eða íbúa sama húss. Einnig er hugmyndin að í gerðardómnum verði ýmis neytendamál afgreidd. Griffin Bell dómsmálaráðherrá sagði í gær að með þessu væri verið að reyna að létta á yfir- hlöðnu dómstólakerfi landsins og einnig að gera tilraun til að flýta málum þannig að almenningur gæti fengið úr deilumálum sinum skorið á auðveldari og einfaldari hátt en áður. 1 byrjun verða hverfisgerðar- dómarnir settir á stofn í borgun- um Los Angeles, Atlanta og Kansas City. Bandaríkin: Sakkarín leyft næstu átján mánuði Carter Bandaríkjaforseti hefur undirritað lög sem fresta banni við notkun gervisykursins sakkar- íns við matvælaframleiðslu. Mat- vælaeftirlit Bandaríkjanna hefur krafizt banns við notkun þess vegna þess að það reyndist valda krabbameini í tilraunadýrum þegar þeim var gefið það í stórum skömmtum. Samkvæmt nýju lögunum á að kanna áhrif sakkaríns nánar á næstu 18 mánuðum og verður notkun þess heimil á meðan. Reyndu að smygla rússneskum kavíar Þrír Pólverjar, á fljótabát sem kom með vörur til Vestur-Berlínar, voru hand- teknir þar í gær fyrir að reyna að smygla og selja nokkurt magn af rússnesk- um kavíar. Voru þeir gripnir við sölutilraunir og fundust í fórum þeirra 177 krukkur af hinu rússneska hnossgæti. Verðmæti þess var talið nema 2400 dollurum eða um það bil hálfri milljón íslenzkra króna. Tollyfirvöld í Vestur- Berlín segjaað algengt sé að áhafnir pólskra fljótabáta, sem komi til Vestur- Þýzkalands, reyni að smygla ýmsum dýrum vörum inn í landið. Noti þeir síðan gjald- eyrinn sem þeir fái til að kaupa aðrar vörur sem sjald- séðar séu í Póllandi. Erlendar fréttir Vestur-Þýzkaland: Sjöfíuogníu fengu gaseitrun Flytja þurfti sjötiu og níu manns á sjúkrahús í gær í borginni Krefeld í Vestur- Þýzkalandi eftir að þeir höfðu orðið fyrir gaseitrun. Af einhverjum ókunnum ástæðum komust um það bil fimm hundruð lltrar af siturefni úr tanki efnaverk- smiðju í borginni út I and- rúmsloftið og urðu að eitr- uðu gasi. Að sögn lögregl- unnar voru það bæði slökkviliðsmenn sem urðu fyrir eitruninni og einnig starfsmenp verksmiðjunnar og fólk sem átti leið nærri verksmiðjusvæðinu. Slökkviliðsmenn sprautuðu vatni yfir gasskýið sem myndaðist en vandinn leyst- ist þegar gerði hressilega rigingarskúr og dreifðist þá gasiö __________ Indland: Enginn veit hve margir fórust Vikur munu líða þar til ljóst verður hve margir týndu lífi í hamförum veð- ursins á Indlandi undanfar- ið. Tölu um manntjón eru mjög óljósar og getgátur eru um allt frá tuttugu og fimm þúsundum til fimmtíu þús- unda látinna. Eru þetta taldar mestu náttúruham- farir síðustu hundrað árin á Indlandi. Björgunarsveitir vinna stöðugt að því að bjarga fólki á einangruðum svæðum og koma mat og vatni til annarra. Danmörk: Heróín fyrir hálfan milljarð Finnskur maður, tuttugu og tveggja ára að aldri, var handtekinn á Kastrupflug- velli í gær og fannst í fórum hans eitt kílógramm af heróíni, sem talið er jafn- virði nærri þrjú hundruð og fimmtíu milljóna íslenzkra króna. Lögreglan í Kaupmanna- höfn sagði að Finninn hafi verið handtekinn samkvæmt ábendingu hollenzku eitur- lyfjalögreglunnar, en hann var að koma frá Indlandi. Fyrr í gærdag fannst rúmlega eitt hundrað og fimmtíu milljóna króna virði af heröíni í íbúð f Kaupmannahöfn en þar leit- aði lögreglan samkvæmt ábendingu norsku lög- reglunnar. Spánn: Hætt við verkfall Spánskir flugvallastarfs- menn ákváðu að hætta við sólarhrings verkfall, sem hefjast átti í dag. Gerðu þeir það vegna þeirrar ákvörðunar stjórn- valda að láta hermenn taka við störfum á flugvöllunum til að ekki þyrfti að loka þeim. Báðir deiluaðilar hafa ákveðið að halda áfram samningaviðræðum. Hafa starfsmennirnir krafizt 50% launahækkunar en sam- kvæmt nýsettum lögum á Spáni mega laun ekki hækka meira en um 22%.

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.