Dagblaðið - 28.11.1977, Síða 2
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 28. NOVEMBER 1977.
r/jr/Æ/jr/Æ/Æ/Æ/jT/*/Æ/Æ/Æ/J*
höfum úrvalið
STRAUMLOKUR OG
SPENNUSTILLAR
í nær allar gerðir bifreiða
og vinnutækja
5 á mjög hagstæðu verði f/
á ^ . HABERG ht 5
^ c° Skeifunní 3e*Sixni 3*33*4S
Með notkun platínulausu transistor-
kveikjunnar losnar þú við algengustu
gangsetningarvandamál og kald-
aksturstruflanir — auk þess sem
ÞÚ SPARAR
öruggiega allt frá 9 krónum á bensínlítra. (Meðaltal sem
miðast við 93 kr. pr. llr.) En hvað spararðu þá á 2000
lítrum?
Bættu við þetta kostnaði á platínum, þétti og vinnulaun-
um — jafnvel bílkostnaði vegna þess að bíllinn fór ekki í
gang — og þá hefurðunokkra hugmynd um hvers virði er
að aka
MEÐ Lumenátion
ri HABERGM
SkeUunni Je' Simí } 33'4SyJ
„Bókabrennur’ á
Borgarsprtalanum?
Forráðamönnum Stéttabaráttunnar er heimilt að dreifa hlaði sinu innan veg
umsjónarmaðnr sjúkrahússins.
;ja Borgarspítalans. segir
„Þótt furðu gegni eru enn tií
þeir menn á Islandi sem brenna
bækur og blöð til að hindra
frjálsa skoðanamyndun. Slík-
um mönnum höfðum við sagnir
af á miðöldum og seinna meir
voru það aðdáendur brún-
stakka Hitlers sem eins og
kunnugt er voru andstæðingar
frjálsra skoðana og tjáningar.
Spítalar höfuðborgarinnar
hafa undanfarna mánuði
fengið vikublaðið Stéttabarátt-
una endurgjaldslaust til af-
lestrar fyrir sjúklinga og starfs-
fólk. Blaðið hefur hundruð
áskrifenda og margir þeirra
lenda oft á tíðum inni á spítala
eins og gengur og gerist með
fólk.
Þetta fólk vill gjarnan fá
blaðið reglulega eins og
reyndar önnur blöð og dagblöð
sem borin eru út á sjúkrahús-
unum.
Viðtaka starfsfólks spítal-
anna hefur verið með ágætum
utan nokkurra starfsmanna
Borgarsjúkrahússins sem vinna
í kjallara hans við eldhúsið, en
þangað er skilað inn dagblöðum
og öðrum blöðum til dreifingar
á spítalann. Sérhvern miðviku-
dag undanfarna mánuði hefur
Stéttabaráttan verið keyrð út
og skilin eftir í blaðaafgreiðslu
Borgarspítalans og hefur alltaf
verið tekið umyrðalaust við
henni. Fyrir nokkrum vikum
tóku okkur að berast kvartanir
frá áskrifendum og starfsfólki
spítalans þess efnis að þau
fengu ekki blaðið þrátt fyrir að
því væri reglulega skilað inn á
blaðaafgreiðsluna. Og ekki nóg
með það, okkur var tjáð að
ákveðnir starfsmenn á blaðaaf-
greiðslunni brenndu þeim ein-
tökum er þeir tækju á móti tii
dreifingar til sjúklinga og
starfsmanna.
Haft var samband við for-
stöðukonu sjúkrahússins og
skal það tekið fram að hún var
öll af vilja gerð að athuga af
hverju blaðinu væri ekki
dreift.
En nú í morgun, miðvikudag,
þegar komið er með blaðið á
spítalann bregður svo við að
starfsmenn sem hingað til hafa
tekið við blaðinu og brennt það
án okkar vitundar neita að taka
við þvi. Þeir báru því við að
Sigurður Angantýsson, sem
gegnir einhvers konar yfir-
mannsstöðu á spítalanum að
þeirra sögn, skipi svo fyrir að
Stéttabaráttan skuli ekki koma
á spítalann vegna þess að
sjúkrahúsið. sé ekki áskrifandi
að blaðinu.
Sigurður Angantýsson tók
þátt í prófkjöri Sjálfstæðis-
flokksins hér í Reykjavík, sem
nú er nýafstaðið, og tæplega
viljum við trúa því að stefna
hans hafi verið gegn frjálsri
skoðanamyndun og ákall um að
prentaðar skoðanir stjórnmála-
andstæðinga hans yrðu
brenndar á báli. Ef hann og
stuðningsmenn á vinnu-
stað vilja liggja undir þeim
ákúrum sem hér eru á þá born-
ar skulu þeir halda uppteknum
hætti. En ef þeir eru iýðræðis-
sinnar og fylgjandi frjálsri
skoðanamyndun skulu þeir
leyfa öllum prentuðum skoðun-
um pólitískra samtaka að koma
fram. Þau rök að Stéttabarátt-
an sé pólitísk en önnur blöð
ekki, eins og þessir starfsmenn
segja, teljum við haldlaus.
Það er ekki þeirra að dæma
um þau mál fyrir hundruð
sjúklinga spítalans nema þeir
vilji beita sömu aðferðum og
nasistarnir beittu á sínum tíma.
F.h. ritnefndar
Stéttabaráttunnar,
Benedikt Kristjánsson."
Aths. DB:
Haft var samband við Sigurð
Angantýsson umsjónarmann á
Borgarspítalanum og efni
bréfsins borið undir hann. Sig-
urður sagði að þarna væri um
einhvern misskilning að ræða
hjá forráðamönnum Stéttabar-
áttunnar. Þejm væri guðvel-
komið að koma með öll þau
eintök af Stéttabaráttunni sem
þeim þóknaðist inn á sjúkra-
húsið.
Raddir
lesenda
öísíma
27022,
millikl. 13ogl5