Dagblaðið - 28.11.1977, Page 29

Dagblaðið - 28.11.1977, Page 29
I)ACBI.AÐIÐ. MANUDAdl’R 2K NOVKMBKK 1977 .33 Úrval Ijóða Hannesar Péturssonar í einni bók Kvæðasafn 1951-1976 nefnist bók sem Iðunn sendi .nýlega á bókamarkaðinn. Þar eru birt ljóð Hannesar Péturssonar á 25 ára skáldaferli. Valin hafa verið ljóð Hannesar úr öllum fyrri Ijóðabókum hans, kvæði úr bókinni Hugskot og nokkur sem einungis hafa birzt í tíma- ritum. Þá eru í bókinni nokkur áður óbirt Ijóð. Jóhannes Geir listmálari myndskreytti kvæðasafn Hannesar. í fréttatilkynningu út- gáfunnar um kvæðasafnið segir. að Hannes Pétursson hafi hlot- ið óumdeilanlegt sæti á skálda bekk 22ja ára gamall er Ijóð birtust eftir hann í safnritinu Ljóð ungra manna 1954. Þá er haft eftir Steini Steinarr að Hannes væri vonarstjarnan í bókinni og að aldrei hafi hann vitað íslenzkan mann á hans aldri yrkja jafn vel. Kvæðasafn Hannesar er 317 bls. að stærð, mnbundið. Það er prentað í Odda og bundið í Sveinabókbandinu. 18. bók Alistair McLean: Skáldsagan Jakob og ég: Ólíkleg til að valda telj- andi slysum í hjónarúmum Gunnar Gunnarsson rit- höfundur hefur sent frá sér nýja skáldsögu , Jakob og ég. Útgefandi hennar er bókaút- gáfan Iðunn. Gunnar hneigðist snemma að ritstörfum og varð blaðamaður á unga aldri. Á kápu bókarinnar rekur Flosi Ólafs- son rithöfundur og leikari feril Gunnars nokkuð og segir þar meðal annar: ...Fór þá fljótlega að örla á hans innri manni. Greinar hans vöktu strax athygli landsmanna vegna alls kyns ótímabærrar hótfyndni og ótuktarskapar og kom þessi iðja hins ótínda blaðasnáps oft illa við blásak- lausa samborgara." Jakob og ég segir frá miðaldra bankaútibússtjóra, sem skyndilega verður sér þess meðvitandi að hann lifir ekki því lífi sem hann þráir. Hann skiptir um umhverfi og vini og umfram allt viðhorf. Jakob, og ég er prentuð i Setberg og bundin í bókbandi prentsmiðjunnar Eddu. Hún er í pappírskiljuformi, eða eins og Flosi Ölafsson kemst að orði á kápu: „Þá má einnig geta þess að í hjónarúmi er hún ekki líkleg til að valda teljandi slysum á les- endum, þar sem hún er mun léttari í meðförum en sumir doðrantar aðrir. -AT- .... UGGVÆNLEGA SPENNANDI, ÓTRÚ- LEGA HUGVITSSÖM Aðdáendur Alistair McLean verða ekki sviknir fyrir þessi jól frekar en sautján þau síðustu. Nýjasta bók hans, For- setaránið, er nýkomið út hjá bókaútgáfunni Iðunni. Þýðandi bókarinnar er Anna Valdimars- dóttir. Blaðið Sunday Express segir um Forstaránið að hún sé „ugg- vænlega spennandi, ótrúlega hugvitssöm, lestrarefni, sem grípur mann heljartökum.... Bezta bók eftir McLean um langt skeið.“ Söguþráður Forsetaránsins er i stuttu máli sá að forseti Bandaríkjanna hittir að máli tvo arabíska olíufursta og ætlar að semja við þá um olíu- viðskipti. Er þeir aka yfir Gold- en Gatebrúna við San Francisco er bílalest þeirra stöðvuð og mannræningjar taka höfðingjana í gíslingu. Peter Branson, foringi mann- ræningjanna, krefst fimm hundruð milljón dollara lausn- argjalds og allt virðist komið í óefni. — En auðvitað fæst lausn á vandanum, eins og í öllum hinum McLeanbókunum sautján, sem hafa verið þýddar á íslenzku. Gunnar Gunnarsson. LEIKFANGAHÚSK) SKÓLAVÖRDUSTÍG10 - SÍMI14806 vörurnar komnar Barbie og Ken dúkkur — Tjöld — Bílar — Bátar — T öskur — Baðker — Hestar — Föt — Todd — Tutti — Barbie fjölskylda — Brúðuhús— ~ Barbieafiogamma FISHER PRICE Hin heimsf rægu þroskaleikföngfri FISHER PRICE Bóndabýli Brúðhús Bensínstöð Leikskóli Þorp Sjónvörp Peningakassi Sjúkrahús Tennisspil eru komin ímiklu úrvali Takmarkaðarbirgðir Sendum í pöstkröf u um alltland FISHER PRICE-HÚSIÐ Skólavörðustfe 10 Sími 14806

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.